Læknablaðið : fylgirit - 01.07.1995, Síða 66
66
LÆKNABLAÐIÐ 1995; 81
sem haldinn var í Alþýðuhúsinu á Akureyri þann
13. maí 1988. Þetta samkomulag gerði Krabba-
meinsfélag Islands við starfandi kvensjúkdóma-
lækna, röntgenlækna og stjórn FSA annars vegar
og heilsugæslulækna og stjórn Heilsugæslustöðv-
arinnar hins vegar.
Pannig var gerður samningur við Heilsugæslu-
stöðina á Akureyri um að annast sameiginlega
innköllun kvenna í brjósta- og leghálskrabba-
meinsleit. Pessar skoðanir skyldu í byrjun vera
aðskildar, þannig að leghálsskoðanir og brjósta-
þreifing skyldu vera áfram á Heilsugæslustöðinni
á Akureyri í umsjá kvensjúkdómalækna, en
brjóstaröntgenmyndatökur færu fram á röntgen-
deild FSA. Stefnt skyldi að því að þessar skoðanir
færu fram samtímis á FSA strax og hentugt hús-
næði væri fyrir hendi. Að þeirri sameiningu hefur
enn ekki orðið, þrátt fyrir viljayfirlýsingu og
áskorun kvensjúkdómalækna og röntgenlækna
FSA þar að lútandi.
Á miðju ári 1987 barst Krabbameinsfélagi Ak-
ureyrar vegleg minningargjöf að upphæð kr.
500.000 frá frú Margréti Halldórsdóttur til minn-
ingar um eiginmann hennar Tryggva Jónsson.
Með hennar samþykki, var ákveðið að þeim pen-
ingum skyldi varið til söfnunar fyrir nýju brjósta-
röntgenmyndatökutæki fyrir röntgendeild FSA. í
lok janúar 1988 var svo boðað til blaðamanna-
fundar, þar sem sjúkrahúsinu var formlega afhent
gjafabréf fyrir fyrrnefndu tæki og má segja, að þá
hafi hin raunverulega söfnun hafist.
Formaður Krabbameinsfélags Akureyrar Jón-
as Franklín kvensjúkdómalæknir, en hann tók við
formennsku í félaginu 1986, og gjaldkeri þess
Halldóra Bjarnadóttir hjúkrunarfræðingur héldu
þann vetur marga fjáröflunar- og kynningarfundi
og gekk söfnunin vel. Halldóra var svo ráðin til
félagsins, sem starfsmaður þess haustið 1988. Pau
Jónas og Halldóra héldu svo áfram söfnuninni þá
um haustið með þeim árangri, að hægt var að
greiða upp og afhenda tækið formlega 21. janúar
1989.
Þannig hófust 16. janúar 1989 reglubundnar
brjóstaröntgenmyndatökur hér á Akureyri, en
skipuleg leit að brjóstakrabbameini með röntgen-
myndatækni hófst hjá Krabbameinsfélagi íslands
í Skógarhlíð í nóvember 1987. Fyrsta árið var 1571
kona mynduð hér á Akureyri og greindust 15
konur með brjóstakrabbamein. Ári síðar voru
559 konur myndaðar og greindust sjö konur með
brjóstakrabbamein. Tveggja ára mæting í brjóst-
aröntgenmyndatöku var í árslok 1990 68%. Síðan
hefur mætingin í brjóstaröritgenmyndatöku hér á
Akureyri verið nokkuð jöfn, 986 konur myndaðar
árið 1991, 884 konur árið 1992 og 948 árið 1993.
Alls hafa þannig greinst 42 konur hér á Akureyri
með brjóstakrabbamein síðastliðin fimm ár.
Tveggja ára mæting í árslok 1993 var 60% og hafði
mætingin þá heldur dregist saman.
Þegar litið er til baka yfir þessi 25 ár krabba-
meinsleitar á Akureyri má skipta starfseminni í
fimm tímabil. Fyrsta tímabilið spannar fyrstu 10
árin rúmlega (1969-1979), en þá var leitin rekin af
Krabbameinsfélagi Akureyrar og Bjarni Rafnar
yfirlæknir veitti leitinni forstöðu og sá nánast al-
farið einn um allar skoðanir. Annað tímabil leit-
arinnar spannar næstu þrjú árin (1980-1982), þá
var leitin með óbreyttu sniði nema hvað Heilsu-
verndarstöðin á Akureyri sá um reksturinn.
Breyting varð á rekstri leitarinnar á næsta þriggja
ára tímabili (1983-1985), en þá störfuðu að jafnaði
tveir kvensjúkdómalæknar við leitina, farið var í
skoðunarferðir til Dalvíkur og Ólafsfjarðar og
Heilsugæslustöðin 'á Akureyri annaðist rekstur-
inn. Fjórða tímabilið spannar einnig þriggja ára
tímabil (1986-1988), en auk skoðana á leitarstöð-
inni á Akureyri, Dalvík og Ólafsfirði, tóku kven-
sjúkdómalæknar á Akureyri umtalsvert magn
sýna. Síðan þá (1989-1994) hefur leitin verið fast-
mótuð, beitt hefur verið innköllunarkerfi, þrír
kvensjúkdómalæknar hafa að jafnaði starfað við
leitina og boðið hefur verið upp á brjóstaröntgen-
myndatöku fyrir konur á aldrinum 40-69 ára, auk
leghálsskoðunar og innri þreifingar og brjósta-
skoðun fyrir konur á aldrinum 20-39 ára.
Unnið úr ársskýrslum Krabbameinsfélags ís-
lands, Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrenn-
is og Heilsugæslustöðvarinnar á Akureyri.