Læknablaðið : fylgirit - 01.07.1995, Blaðsíða 65
LÆKNABLAÐIÐ 1995; 81
65
Krabbameinsleit á Akureyri síðastliðin 25 ár.
Þessi þjónusta mæltist vel fyrir og var þátttaka í
skoðun framúrskarandi góð. Þannig jókst þriggja
ára mæting kvenna á Dalvík úr 60% árið 1983 í
78% árið 1987 og þriggja ára mæting kvenna á
Ólafsfirði jókst úr 60% árið 1983 í 92% árið 1987,
sem var næst besti árangur á landsvísu það árið.
Aðsóknin í skoðun á Akureyri var nokkuð
minni þessi ár, en jókst þó aðeins, úr 60% árið
1983 í 65% árið 1985. í byrjun ársins 1986 fóru
kvensjúkdómalæknar á Akureyri að veita þá
þjónustu, að taka krabbameinssýni í eigin mót-
töku (á stofu) og jók það nokkuð mætinguna.
Þannig jókst þriggja ára mætingin í73% árið 1986.
Síðla árs 1984 stóð Krabbameinsfélag Akureyr-
ar fyrir því, að keypt var leghálsspeglunartæki,
tæki til að að kanna nánar frumubreytingar og
gáfu konur sem héldu „Krúttmagakvöld" hér á
Akureyri það árið ágóðann af þeim skemmtunum
til þeirra kaupa, auk þess gaf Akureyrardeild
Sjúkraliðafélags Islands einnig peninga til þessa
verkefnis. Tækið var svo fært leitarstöðinni að
gjöf 1. október 1984. Síðan þá hafa kvensjúk-
dómalæknar hér á Akureyri, framkvæmt nánast
allar leghálsspeglanir fyrir upptökusvæði krabba-
meinsleitarinnar hér á Akureyri, auk þess annast
þeir oft leghálsspeglanir fyrir leitina annars staðar
á Norður- og Austurlandi.
í júlí 1987 gerði Krabbameinsfélag íslands
verktakasamning við Heilbrigðis- og tryggingar-
málaráðuneytið um skipulega leghálskrabba-
meins- og brjóstakrabbameinsleit. Markmið
þessarar leitar var að draga úr þessum sjúkdóm-
um og fækka dauðsföllum af völdum þeirra í sam-
ræmi við tilmæli Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinn-
ar um krabbameinsvarnir. Þannig var Krabba-
meinsfélag íslands gert ábyrgt fyrir samræmingu
og framkvæmd leitarinnar. Krabbameinsfélagið
skyldi þannig annast eftirlit með framkvæmd og
tilhögun leitarinnar í samvinnu við heilsugæslu-
lækna og aðra sérfræðinga að höfðu samráði við
héraðslækna.
Þessi samningur breytti nokkuð framkvæmd
leitarinnar hér á Akureyri. Áður hafði leitin verið
rekin þannig, að hún var auglýst rækilega að
hausti í upphafi vetrarstarfsins og var þá gjarnan
gert skoðunarátak, leitarstöðin höfð opin daglega
í viku í stað þess að vera opin einn dag í viku. Blöð
og útvarp voru fengin til að fjalla um leitina og
gildi þess fyrir konur að mæta reglulega í skoðun.
Skilaði þessi umfjöllun yfirleitt ágætri mætingu.
Með tilkomu þessa samnings var tekið upp inn-
köllunarkerfi, sem byggði á því, að allar konur á
aldrinum 20-69 ára, fengu sent bréf með boði um
að mæta í skoðun, en fram til ársloka 1987 tak-
markaðist leitarstarfið við konur á aldrinum 25-
69 ára. Stefnt var að því, að skoða allar konur á
tveggja ára fresti, konur 20-69 ára með legháls-
skoðun og innri þreifingu, konur 35 og 40-69 ára
með brjóstaröntgenmyndatöku og konur 20-39
ára með brjóstaþreifingu. Brjóstaröntgenmynda-
töku fyrir konur 35 ára var svo hætt snemma á
árinu 1993.
í samræmi við þennan samning var gert sam-
komulag um krabbameinsleit á Akureyri á fundi,