Sagnir - 01.04.1990, Side 23
„Ó, vesalings tískunnar þrælar."
in í nýjan kjól væri hún ekki orðin
dama. En bærinn væri hér og hann
væri miðstöð þeirrar litlu siðmenn-
ingar sem íslendingum hefði
lærst.12 Þar ætti „Reykjavíkurstúlk-
an" drjúgan hlut að máli en henni
væri ætlað stærra hlutverk. Hún
ætti að siðmennta þjóðina — taka
hinni alþjóðlegu siðfágun. Hrinda
af Islendingum því óorði að þeir
væru ekki nema hálfmenntuð þjóð
og jafnvel ekki það. Bæta hina ytri
framkomu þannig að hún líktist
framkomu siðaðra þjóða. Þá fyrst
yrði íslensk menning dæmd rétt.
Og Guðmundur Kamban blés í her-
lúðra:
frá því að alþjóðleg siðfágun
hófst í Evrópu hafa konurnar
allsstaðar tekið henni fyrst. Hún
er í raun konunnar verk og ég
veit ekkert fegra að segja um
konur. Reykjavíkurstúlkan hef-
ur á fáum árum tekið gagngerðri
breyting, ekki aðeins í klæða-
burði og fasi, heldur lfka að sjálf-
stæðum smekk. Og það er blind-
ur maður sem ekki sér að bak við
þessa ytri breyting gægist fram
sjálf orsök hennar, þrá eftir að
prýða umhverfi sitt, þrá eftir að
njóta þægilegra samvista, þrá
eftir unaði af lífinu, eftir meiri
fegurð, meiri siðfágun. Og ef
hún vill það sjálf fær þessi þrá
hennar nú að vaxa í friði og
frjálsræði, hún verður ekki drep-
in. ...
Kjólar yðar, ungu Reykjavík-
urstúlkur, kosta meira en sá
búningur sem nú er á förum,
hársetning yðar margfalt á við
fléttur móður yðar og ömmu.
Borgið það aftur, borgið það
margfalt. Borgið það fyrst í
djúpri virðing fyrir þeirri kyn-
slóð sem þráði unað lífsins eins
heitt og þér, undir íslensku húf-
unni, en gat betur veitt yður
hann af því að hún gekk með
fléttað hár. En borgið það þar-
næst allri þjóðinni því að bún-
ingur yðar táknar fórn og fátækt
margra íslenskra kynslóða.
Skyldan til að siðmennta þjóðina
liggur á yðar herðum. Og ef þér
bregðist henni ekki þá innið þér
af höndum ómetanlegt starf.
Innið þetta starf af höndum!
Sýnið að tískan sem þér tókuð
upp sé ekki tómt hjóm. Ef þér
viljið halda áfram að uppskera
þá sáið nú fyrst. Ef þér viljið hafa
unað af lífinu þá veitið lífinu un-
að. Hefjið að því forgöngu, eins
og konur hafa gert annars stað-
ar, að fegra hót og hætti í þessu
landi, að gangast fyrir alþjóð-
legri siðfágun.13
Þær voru þungar skyldurnar sem
Kamban lagði á herðar „Reykjavík-
urstúlkunnar" en honum þótti
vænt um hana, unni henni heitt, af
því að hann taldi hana besta sam-
herja þeirra manna sem vildu koma
íslandi undir alþjóðlega siðmenn-
ingu, til þess að íslensk menning
fengi að njóta sín.14 Annað mál er
hvort „Reykjavíkurstúlkan" hafi
gert sér grein fyrir þessu hlutverki
sínu.
„Reykjavíkurstúlkan 1939"
„Reykjavíkurstúlkan" óx og dafn-
aði. Undir lok fjórða áratugarins var
farið að bera meira á henni en áður.
Bærinn sem fóstraði hana hafði vax-
ið svo og blómgast að svigrúm til
athafna hafði aukist til muna miðað
við fyrri tíð. Menn tóku að gefa
henni enn frekari gaum. Hún var
þó ennþá litin hornauga líkt og sú
menning sem hún þótti standa
fyrir. En það var ekki aðeins útlitið
og orðfærið sem menn óttuðust.
Staða konunnar var að breytast. Og
ekki til batnaðar að áliti sumra karl-
manna. Einkum var þeim í nöp við
„kynjöfnunarstefnuna", ávöxt
kvenréttindabaráttu víða um heim.
Óttuðust að frjálslyndið í sambúð
kynjanna hefði gengið of langt.
Konan væri á leið út fyrir sinn
áskapaða „verkahring, sem eigin-
kona og húsmóðir og uppfræðari
barna sinna."15 I stað þess að helga
sig húsmóðurstarfinu heilshugar og
sinna börnum og búi væru konur
byrjaðar að leita sér sérmenntunar,
jafnvel keppa við karla á vinnu-
markaði. Þetta kynni ekki góðri
lukku að stýra. Ungar stúlkur væru
meira að segja hvattar til að koma ár
sinni svo fyrir borð að þær þyrftu
ekki að vera upp á það komnar að
giftast. Og giftum konum væru
Bylgið sjálf hár yðar*
á tiu minútum.
Heynift jiessa auftveldu aftferft tll a&
Öyl^ja hárift. I>uft þarf hvorki hita nje
rafstrauni! Xotift aöeins West Electric
Hárbyln junál, og ’á 10—15 mfriútum haf-
ift þjer l'vlgjaft hár yftar cins fagurlega
og ]mð kæ:ni undan höndum leiknustu
hárgrei ftslukonu.
West I-jlectric Hárbylgjunál er scgul
mögnuft Hfin gerir hvorki aö svlfta,
skera, brjóta nji- slfta upp hárift. H6n
er smíftuft íír rafinögnuftu stáli, nikkel-
gljáuft, fáguft og hál á alla vcg-u. t>ar er
• •kkert Kt.-m gotur fterat ör lagi. Nálin
er mjög einföld, og er áhyrgst, aö lián
geti varaft æfllangt.
l>jor n.'ttuft aft reyna þessa dásamlogu
hárhylgjunál! Vjer endursendum yftur
andvirftift um hæl, ef þjer skylduft elgi
verfta ánægftar meft nálina. En vjer vit-
um. aft.er þjt^r elnusinni haflft komist aft-
■raun uih, hve auftveldlegra o g falloga.
Vv»‘,st Eiectric bylgjar hár yftar, þá getlft
þjcr ■aldrei án hennar verift.
AV. Ósviknar eru aftelns nálar
flatri loknNpÐng!
meft
WE
'okiiríjUTÍers
TRIC
(Iwtfft yftnr fvrlr hiiium Ijelejcti NtaeV-
Ingiiin. si*iii fást í tififtnnumr —— 2.00 fyrlr
4. sik. ij spjnldi I hfíftunnm.
Biftji.ft íetíft um rjettu nállna. Ef kaup-
maftur vftar cfta liúgreiftslukona hafa
eigi nál }>cssa. sendum vjer vftur 4 stk. á
spjaldi burBargrjaldsfrítt. ef þjer sendift
oss kr. . Einnig s.-,n birn vjer yftur
leiftarví.sir »;g srnárit um laeftferft hárs-
ins. Klippiö ufklipjtinginn af og sendift
hann ásamt andvirftlnu.
s<*n<iift nfkiipping-iau strux!
Einkaumboö fyrir
'VeuI Hleetrle llnir t'urler Co., Londoa
n. Mnn s ci, sííjí.
un f
ás;t M:
nál
iHsfa
vift 1
s--níli hj»*r meö kr. 2.00 sem borg-
rlr sýnissjald meft 4 bylgjunálunt»
t J«*iftarvfsi og .smáriti um yfirburfti
innar. Skrif.fj nafn yftar og heirn-
nt •’• Mr.k .• feHiift afklippinglmn
Fjdlglegitm auglýsingum var gjarnan ætlað að ná
til kvenna, ekki síst ungra stúlkna.
SAGNIR 21