Sagnir - 01.04.1990, Page 58
Steinunn V. Óskarsdóttir
að skrifa og reikna, tala erlendar
tungur, leika á hljóðfæri o.s.frv.;
móðir hennar getur einnig kennt
henni matartilbúning, að sauma,
spinna, prjóna, hekla, filera,
skattera, bródera, baldýra og fl.,
einnig aðra algenga innan og ut-
anbæjarvinnu . . .
Hún verður að lifa, en vinna
hennar er lítilsmetin; hún situr
við og saumar eða spinnur allan
daginn, frá morgni til kvölds, en
hefur tæplega málungi matar; sé
hún í vist, gangi á eyrinni, fari í
kaupavinnu, eða hvaða helzt
vinnu hún gerir, hvað verður þá
um kaupið? Hún fær allt að
helmingi minna, en karlmenn-
irnir, og hvers vegna?
Af því að hún er stelpa . . .
Eg verð að haga uppeldinu svo,
að eg geti með tímanum fengið
henni „forsorgara" og „vergja",
hugsar faðirinn. Hún getur orðið
góð húsmóðir, gegnt innanhús-
störfum, og gætt bús og barna.38
„karlkyninu frelsið og
kvennkyninu þrældóminn
//
Við athugun á minningarritum
kvenna fæddum á árunum 1850-
1900 kemur fram, að mikill meiri-
hluti þeirra segist hafa verið alin
öðruvísi upp en bræður þeirra. Það
var lögð áhersla á að þær lærðu
handavinnu og öll almenn matar-
verk. Að gæta barna var það starf
sem stelpur sinntu nær eingöngu.
Fram kemur í allflestum frásagn-
anna að þær gættu yngri systkin-
anna á meðan bræðurnir sinntu út-
istörfum.
Fyrir þeim flestum lá að verða
vinnukonur í lengri eða skemmri
tíma og jafnvel alla ævi. Sem vinnu-
konur kom þeim best að vera undir-
gefnar og auðmjúkar, þannig vildu
húsbændur hafa þær og þar með
gátu þær lifað nokkuð áhyggju-
lausu lífi. I mörgum frásögnum má
sjá húsbændur hæla vinnukonum
fyrir trúmennsku. Það er t.d. um-
hugsunarefni hvers vegna vinnu-
konur mótmæltu ekki kjörum sín-
um á sama tíma og vinnumenn.
Skýringin getur legið í undirgefn-
inni og trúmennskunni. Þær gátu
ekki hugsað sér að fara að „svíkja"
húsbændur sína sem reynst höfðu
þeim svo vel!
Góð eiginkona og húsmóðir
þurfti ekki að læra til bókar og lýsa
margar kvennanna yfir vonbrigð-
um sínum með að hafa fæðst sem
stúlkur. Drengirnir gengu fyrir
þegar nám var annars vegar og
Stúlka með heylest.
56 SAGNIR