Sagnir - 01.04.1990, Qupperneq 61

Sagnir - 01.04.1990, Qupperneq 61
„Óhæfa og fordæðuskapur" á rétttrúnaðaröld ástamál sín en var hindraður í því þar sem íslensk lög bönnuðu slíkt. Þrjóska hljóp í hið danska yfirvald og sama sumar reið landfógeti norður með fingurskrúfu í fartesk- inu. A héraðsþingi var málið enn tekið upp og endaði með því að fó- geti fyrirskipaði böðli að leggja skrúfuna á fingur Þórdísi. Þórdís gaf sig og sagði: „Ef nokkur hefur gert það, þá er það Tómas Böðvars- son." Tómas, sem var staddur þar hjá, vippaði sér á bak hesti sínum, þeysti yfir móa og mýrar og komst með undraverðum hætti undan þeim sem eltu, sumir sögðu með fjölkyngi. Hann komst austur á firði, þaðan í skip til Englands og náðist aldrei. Málaþrefið stóð áfram í nokkur ár og endaði Þórdís loks líf sitt í poka á botni Drekkingarhyls í Öxará árið 1618.1 Saga Þórdísar og Tómasar er kannski ekki dæmigerð fyrir fórnar- lömb Stóradóms. Það var ekki al- gengt að óléttar stúlkur þættust hreinar meyjar eða að menn gætu forðað sér eins létt og Tómas. Þetta var líka í eina skiptið sem sögum fer af því að fólk hafi verið pyntað til sagna eða a.m.k. hótað pyntingum. En það voru margir fleiri, sérstak- lega á 17. öldinni, sem komust í kast við Stóradóm, voru líflátnir, húð- strýktir eða, ef þeir voru svo heppnir, sluppu með fésekt. En hvað var Stóridómur? A Öxarárþingi 1564 innsigluðu lögréttumenn, lögmennirnir báðir og hirðstjórinn yfir íslandi lög um „hordoma frændsemis spioll og mægda og um frijllulifi"2 sem síðar fengu viðurnefnið Stóridómur. Þetta er langt og mikið skjal yfir framhjáhald, sifjaspell (einnig nefnt blóðskömm), lausaleik og mismun- andi refsingar handa þeim sem gerðust uppvísir að þess háttar at- hæfi allt eftir eðli glæpsins og fjölda brota. Stóridómur var löggjöf einkalífsins í ströngum anda rétt- trúnaðarins og hans hefur verið minnst sem einna harðneskjuleg- ustu laga íslenskrar réttarsögu. En hverjir báru ábyrgð á þessari hörku og refsigleði? Var danska kúgunar- valdið að verki sem oftar eða áttu íslenskir embættismenn sinn þátt? Af hverju hljóp þessi harka í refs- ingar einmitt á þessum tíma? Hvernig bitnaði hún á fólki? Voru allir jafn berskjaldaðir eða var ekki sama Jón og séra Jón? „Ærlegir og velburðugir menn" Forsaga málsins er sú að 13. desem- ber 1558 var lögleiddur í Danmörku svokallaður „Kaldangursrecess" m.a. um siðferðismál. Þetta voru ein af fyrstu lögunum sem Friðrik II. Danakonungur skrifaði undir en hann var að föður sínum látnum krýndur snemma sama ár aðeins 24 ára að aldri. Nú skyldu þeir dæmdir til dauða sem héldu fram hjá í þriðja skiptið, þ.e. urðu uppvísir að þreföldu hórdómsbroti.3 Islending- ar hljóta að hafa frétt af recessnum sumarið eftir en hann hlaut ekki lagagildi hér strax. Þess ber að gæta að á þessum tíma hafði Alþingi löggjafarvald til jafns við konung og samdi oft lög fyrir Island sem konungur fékk síðan til undirskrift- ar. Það virðist sem fyrsta tillagan um nýja siðferðislöggjöf hafi komið frá íslendingum sjálfum. Lögmennirn- ir Eggert Hannesson og Páll Vigfús- son skrifuðu konungi bréf 2. júlí 1559 og báðu um að Daninn Páll Stígsson, sem gegnt hafði landfóg- etaembætti, yrði settur hirðstjóri yfir ísland eftir landa sinn Knút Steinsson. í sama bréfi klöguðu þeir að klaustur og kirkja hefðu komist yfir jarðir sem þeim ekki bæri, báðu um að konungur setti strangari refsingar við skírlífisbrotum og kvörtuðu undan því að í þáverandi lög vantaði dauðarefsingar. Kon- ungur brást skjótt við (á þessa tíma mælikvarða) og árið eftir sendi hann íslensku biskupunum bréf, kvaðst hafa frétt að á landinu „skule brukast stór óskickanligheit á medal vorra vndersáta . . . með hórerij og ödrum óchristilegum og ótilheyrelegum giörningum" og óskar þess að sá „vondskapur mei- ge afleggiast". í bréfinu, sem barst með kaupskipi þá um vorið, bað hann biskupana að semja frumvarp að refsingum við sifjaspellum, laus- læti og fleira. Sama ár skrifa svo biskuparnir konungi og biðjast undan því að semja frumvarpið sökum eigin fáfræði en leggja til að „vijsustu og hálærdustu" menn konungs taki verkið að sér og munu þeir í öllu hlýta þeirra úrskurði.4 Afskiptaleysi biskupanna er nokkuð merkilegt. Þarna höfðu þeir tækifæri til að hlutast til um eitt helsta hugðarefni kennimanna fyrr og síðar, siðferðismál almúgans, en biðjast undan því. Getur verið að þeir hafi verið sáróánægðir með að þetta dómsvald væri tekið frá kirkj- unni eða voru þeir á móti því að herða lögin? Það má slá því föstu að einhver óánægja hafi verið á ferð- inni og líklegast hafa biskuparnir viljað hafa siðferðismálin áfram á sinni könnu. Konungur bað háskólakennara við Hafnarháskóla um tillögur um refsingar við sifjaspellum og laus- læti á íslandi með bréfi dagsettu í janúar 1561. Kennararnir svöruðu rúmum hálfum mánuði síðar. Til- lögur þeirra voru allróttækar. Þeir vildu afnema öll afskipti kirkjunnar af siðferðislöggjöf, setja harðar refs- ingar við sifjaspellum og afnema SAGNIR 59
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100

x

Sagnir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.