Sagnir - 01.04.1990, Síða 65

Sagnir - 01.04.1990, Síða 65
„Óhæfa og fordæðuskapur" á rétttrúnaðaröld Tvö tilbrigði við sama stef: Hórdóm. T.v. snýr ung kona baki við öldnum og óásjálegum eiginmanni og lætur freistast afungum og myndarlegum hefðarmanni. T.h. hefur eiginmaðurinn betur og hefur kotnið konu sinni og elskhuga að óvörum. armenn komu á fjölkvæni og leið- togi þeirra kallaði sig konung Mun- ster og alls heimsins í nafni Krists. Hreyfingin virtist njóta stuðnings fólks og her biskupsins tókst naum- lega að brjóta hana á bak aftur. Hefnd stjórnvalda var blóðug.22 Með hliðsjón af þessu dæmi er auðvelt að gera sér í hugarlund þá ógn sem stjórnvöld hafa talið sér stafa af hreyfingum sem þessum og trúarlegri upplausn í samfélaginu. Það þarf þá ekki að koma á óvart að þau hafi reynt að berja rétta trú og siðferði inn í lýðinn af hörku og vægðarleysi. Páttur sárasóttar Eitt af því sem einkenndi 16. öldina í Evrópu var hræðilegur kynsjúk- dómur, þekktur í dag undir nafn- inu sýfilis eða sárasótt. Hún er talin hafa borist til Evrópu 1493 með sjó- mönnum sem komu heim úr fyrstu Ameríkuferð Kólumbusar en olli fyrst faraldri í Evrópu tveimur árum síðar í kjölfar frönsku innrásarinnar 1 Napólí á Ítalíu. Sárasótt sem gekk undir nafninu „lues" (lat. „plága"), atb ekki aðeins eftir að verða skæð- asti sjúkdómur 16. aldarinnar held- ur er talið að hún hafi þá náð sínu hámarki, aldrei orðið eins skæð á síðari öldum.23 Þorgeir Kjartansson skrifar í Sngnir 1982 að Stóridómur „hafi átt að vera e.k. sóttvörn gegn sýfilis"24 þó hann telji það ekki einu skýring- una. Hér er Þorgeir kominn út á hálan ís þar sem ekkert bendir til að sárasótt hafi verið komin til lands- ins á þessum tíma hvað þá orðin skæður faraldur. Hitt er annað mál að faraldrar úti í Evrópu gætu vel hafa haft áhrif á aukna refsihörku í siðferðismálum. Smitleiðirnar hljóta að hafa verið þekktar og því má hugsa sér að harðari refsingar hafi átt að draga úr smiti sjúkdóms- ins. Hitt er þó líklegra að menn hafi séð fyrir sér plágurnar sem refsingu guðs fyrir ólifnað og siðleysi og átt hafi að milda hann með hinum þungu refsingum. Slík ályktun væri í góðu samræmi við hugmyndir sið- skiptamanna um hinn stranga, föð- urlega guð sem hikaði ekki við að refsa börnum sínum ættu þau það skilið. Uppruni orðsins sýfilis bend- ir reyndar til þessa hugarfars: í vin- sælu ljóði frá 1530 eftir ítalann Gir- olamo Fracastoro segir frá fjárhirð- inum Syphilis sem var lostinn sýkinni vegna óguðlegs athæfis.25 Þaö er ekki ólíklegt að sárasótt hafi átt sinn þátt í harðari siðferðis- löggjöf úti í Evrópu, þar með talið hinni dönsku, og haft þannig óbein áhrif á setningu Stóradóms. Ekkert bendir hins vegar til þess að ís- lenskir lögréttumenn hafi verið uppfullir ótta við pláguna og litið á lögin sem „sóttvörn". Niðurstaðan hlýtur að vera sú að afsprengi að- stæðna úti í heimi hafi verið flutt inn til íslands án þess að þær væru fyrir hendi hér að nokkru marki og var þetta ekki í síðasta sinn sem slíkt gerðist. Sérhagsm u n ir íslenskra Þegar Stóridómur er borinn saman við erlend lög stingur einkum tvennt í stúf, fyrir utan það hve ítar- legur hann er. Eitt er að samfarir fólks sem skylt var eða tengt í þriðja og fjórða lið töldust refsiverðar. Þetta var í samræmi við upphafleg- ar kenningar Lúthers26 en í mót- mælendalöndum hafði sú regla skapast að fjarskyldari en þremenn- ingar fengju að giftast og samfarir þeirra töldust ekki sifjaspell. Þessi regla átti líka að gilda á íslandi þegar kirkjuskipan Kristjáns III frá 1537 var lögleidd hér, í Skálholts- biskupsdæmi 1541 og í Hólabisk- upsdæmi tíu árum síðar. íslenskir ráðamenn kusu hins vegar að túlka kirkjuskipanina á þá leið að bannið næði uppí þriðja og fjórða lið. Þetta má sjá á ákvörðun Gissurar biskups um að banna ákveðnum hjónum samvistir sem voru þannig skyld eða mægð. Samþykkt prestastefnu í Hólabiskupsdæmi var á sömu leið og loks Alþingissamþykkt 1552. Reyndar voru margir alls ekki til- búnir að gefa eftir gömlu fjórmenn- SAGNIR 63
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Sagnir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.