Sagnir - 01.04.1990, Page 66

Sagnir - 01.04.1990, Page 66
Óskar Bjarnason og Unnur Karlsdóttir ingsregluna eins og sést á miklum deilum um skilgetni barna fjór- menninga árin á eftir sem voru ekki settar niður fyrr en með dómi 1558. í Stóradómi var tekin upp reglan frá Alþingissamþykktinni og skapaði hann Islandi sérstöðu meðal mót- mælendaþjóða í þessum efnum, sem varð ekki rofin fyrr en með konungstilskipun frá 1585 um að leyfa skyldi hjúskap þeirra sem voru mægðir eða skyldir í þriðja og fjórða.27 Andstöðunni við þessu bréfi lýsir Guðbrandur Hólabiskup skemmtilega: ... og þá það sama bréf var upplesið í lögréttu, hrinu menn þar á móti með lófataki, og klöppuðu það út — hvað aldrei hefir í fornum sögum eðr nýjum skeð fyrri —, og sögðust aldrei skyldu þar undir gánga. Og enn nú finnast nokkrir, sem láta heyra af sér, að þá menn, sem svo eru getnir, skuli þeir aldrei skilgetna dæma, með mörgum fleirum heimskuorðum, sem ég vil ekki herma.28 Inga Huld Hákonardóttir telur hina geysilegu áherslu á sifjaspell vera séríslenskt fyrirbrigði sem eftirfar- andi tölur staðfesti: Á einum ára- tugi (1641-50) komu upp 113 sifja- spellsmál á Islandi en á Norður-Jót- landi aðeins 22 á 200 ára tímabili!29 Parna hefur tog um jarðir verið á ferðinni en þegar börn skyldmenna Dómendur að störfum. Úr Jónsbókar handriti frá st'ðari hluta 16. aldar, svonefndri Reykjabók. urðu allt í einu skilgetin og þar með arfgeng varð óhjákvæmilega ein- hver röskun á jarðeignum. Pessi íhaldssemi Islendinga hlýtur að telj- ast til einkenna fámenns bænda- samfélags þar sem jarðeign skipti öllu máli og auðvelt var að kunna skil á ættmennum sínum og vensla- fólki. Uti í heimi hins vegar jókst á þessum tíma fólksfjöldi, þéttbýli og hreyfanleiki fólks ört og erfiðara hefur orðið að rekja skyldleika fólks langt aftur í ættir. Hugtakið sifja- spell hlaut því að þrengjast. Pað er athyglisvert í þessu sambandi að um þetta leyti báðu Færeyingar um að vera dæmdir eftir Stóradómi fremur en dönskum lögum.30 Annað sérkenni Stóradóms mið- að við dönsk lög eru fastákveðnar sektir án tillits til kyns og efna þess seka. í Danmörku voru sektir látnar fara eftir eignum afbrotamannsins, t.d. helmingur, fjórðungur eða einn sjöundi partur var dæmdur af hon- um. Höfundar Stóradóms, lögréttu- mennirnir 24 sem voru örugglega í tölu betri bænda landsins, hafa þarna greinilega gætt hagsmuna efnamanna, því eins og bitur al- þýðumaður skrifaði hátt í öld síðar: „Hvad ætlar þu rijkismanninn drægi vmm eina 6 dali, honum er þad ecki meira straff enn tekid sie j haunk vr hrosstagli hans."31 í Dan- mörku borguðu konur helmingi minna fyrir sama brot, en hér skipti kyn þess brotlega engu máli enda hefur Inga Huld kallað Stóradóm „fyrstu jafnréttislöggjöf" Islend- inga.32 Sjaldnast voru þó íslenskar konur, fremur en danskar stöllur þeirra, borgunarmenn fyrir sektir sínar enda voru margfallt fleiri kon- ur húðstrýktar vegna fátæktar en karlar.33 Þarna fær jafnréttishugtak- ið býsna kaldhæðnislega merkingu. Loks má benda á hinar stórlega hertu refsingar við frillulífisbrotum sem sagt var frá hér að framan. Valdsmenn hafa viljað nota tæki- færið til að draga úr óskilgetni og létta ómegð af hreppunum. Hér skín í gegn hugarfar staðnaðs þjóð- félags þar sem fólksfjölgun var álit- in óeðlileg og beinlínis hættuleg þar sem hún byði heim harðindum.34 Af ofansögðu má ráða eins og reyndar af aðdraganda Stóradóms að hann er ekki algjörlega útlent kúgunartæki sem var þröngvað uppá íslendinga að þeim forspurð- um heldur höguðu íslenskir valds- menn samingu hans talsvert eftir eigin nefi. Framkvæmd laganna Heimildir vantar um að Stóradómi hafi verið beitt að ráði fyrstu áratug- ina. Guðbrandi biskupi Þorlákssyni virðist hafa þótt valdsmenn sinnu- lausir um að beita dómnum sem skyldi og bað um konungsbréf þess efnis að eftir honum skyldi farið undanbragðalaust. Biskup segir að menn hafi komið: . . . til að rengja Stóradóm og vé- fengja hann, vildu heldr hafa peníng, en refsa og straffa eptir Guðs lögum og dæmdum dómi og af kóngl. maj. samþykktum, og vildu svo inn leiða agaleysi, synd og skammir inn í landið, Guði til stygðar, þá meðkenni eg að eg bað kóngl. maj. að gjöra áminníng sínum umboðsmönn- um, að synd og last væri straff- að. Biskup ógnaði með reiði guðs ef dauðarefsingar yrðu felldar niður því þær væru syndurum víti til varnaðar.35 Þess má geta að eitt- hvað varð biskupi þó hált á svelli eigin siðgæðis því að sjálfur átti hann barn í lausaleik áður en hann varð biskup.36 Már Jónsson hefur bent á að var- hugavert sé að taka skrif biskupsins sem merki þess að valdsmenn hafi hikað við að beita Stóradómi, þau séu liður í persónulegum deilum Guðbrands við Jón lögmann Jóns- son enda hafi biskupinn ekki nefnt nema eitt dæmi máli sínu til stuðn- ings. Stórar yfirlýsingar voru gefnar út í hita leiksins.37 Það er þó vel hugsanlegt að embættismenn hafi tregðast við að beita lögunum af fullri hörku til að byrja með. Sú em- bættismannastétt sem þá ríkti mátti muna tímana tvenna, bæði kaþólska og lútherska, og líklega verið ófús að rjúka upp til handa og fóta og fara að aflífa fólk fyrir brot sem fram að þessu höfðu ekki talist dauðasök. Þeir hefðu þá eflaust 64 SAGNIR

x

Sagnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.