Sagnir - 01.04.1990, Síða 78

Sagnir - 01.04.1990, Síða 78
Jón Ólafur ísberg samstaða næðist milli þeirra sem töldu sig tapa, þ.e. landeigenda, bænda, kirkjuvaldsins, kóngs og síðast en ekki síst Hansakaup- manna. Samvinna tókst milli þessara að- ila seint á 15. öld eftir töluverð átök og áfangar á þeirri leið eru meðal þekktari atburða íslandssögunnar s.s. drápið á Jóni Gerrekssyni, „brottrekstur" Guðmundar Arason- ar, Langaréttarbót og víg Björns hirðstjóra Þorleifssonar. Píningsdómur staðfesti sam- komulag þessara aðila og hagsmun- ir þeirra voru tryggðir. Hansakaup- menn höfðu náð undirtökunum í verslun og boluðu Englendingum, með stuðningi Islendinga, smám saman í burtu. Að vísu höfðu Þjóð- verjar einnig vetursetu, réðu fólk í vinnu og gerðu út, en tekið var fyrir það þegar Englendingar höfðu verið flæmdir brott og lögum komið yfir búðsetufólkið. Píningsdómur var fyrsti áfanginn í framhaldslífi miðalda hér á landi. Stöðugt varð að standa vörð um þá hagsmuni sem þar voru tryggðir og kemur það glögglega fram í dómum síðari alda, t.d. marköngla- og ormadóm- um íslenskra valdsmanna, lögum konungsvaldsins, t.d. einokunar- Með Thor Jensen, og fyrirtæki hans Kveldúlfi, og Guðnntndi ríka Arasyni á Reykhólum er margt líkt. versluninni og banni við lausa- mennsku, sem voru sett með stuðningi og að óskum fslendinga, og síðast en ekki síst í skrifum yfir- stéttarmanna og hugmyndafræði- legra fylgifiska þeirra, t.d. Ólafs Stefánssonar á 18. öld og Baldvins Einarssonar á 19. öld. Píning og píningur Píningsdómur hélt velli í um 400 ár og má segja að afnám vistarbands- ins marki endalokin. Verulegt hættuástand (fyrir Píningsmenn) skapaðist seint á 18. öld með um- bótatilraunum danskra stjórnvalda, sem nutu stuðnings fámenns hóps upplýstra Islendinga, s.s. Skúla Magnússonar og Jóns Eiríkssonar, en þær miðuðu að því að draga ís- land upp úr miðaldafeninu og end- urskipuleggja stjórnsýslu og at- vinnuhætti til samræmis við það sem var að gerast í Danmörku og annars staðar í Evrópu. Þessar til- raunir mistókust að mestu en þær lögðu grunnin að síðari breyting- um. Merkilegasta nýjungin var tví- mælalaust stofnun kaupstaðar í Reykjavík og að hún skyldi gerð að stjórnsýslumiðstöð, sem síðar átti eftir að vaxa og dafna. Yfirstéttin gerði sér vissulega grein fyrir hvað var að gerast og hvert framhaldið yrði ef umbótatilraunirnar skiluðu árangri. Snúist var til varnar með gengdarlausum áróðri í ræðu og riti gegn lausamönnum, lötu vinnu- fólki og þurrabúðarpakki, eins og fram kemur í sumum ritum upplýs- ingarmanna, Armanni á Alþingi og síðar umræðum á Alþingi. En allt kom fyrir ekki og að lokum varð kerfið að láta undan, eftir að stór hluti landsmanna hafði flúið vestur um haf. Píningsdómur var þó ekki öllum gleymdur. Eftir stutt en farsælt frjálsræðis- tímabil komu kreppur í hinum ýmsu greinum, og loks hin alþjóð- lega kreppa á fjórða áratugnum. Meðan allt gekk vel voru menn ánægðir með að vera lausir við höft- in en þegar eitthvað bjátaði á var krafsað í pilsfaldinn. Bændur urðu fyrstir fyrir barðinu á kreppu þegar markaðir fyrir sauði, og síðar salt- kjöt, lokuðust. Árið 1919 var síldar- Frjdlshyggjupostullinn ]ón Sigurðsson áttaði sig fljótt á pvi að evrópsk frjálshyggja átti ekki upp á pallborðið meðal íslenskra bænda. krakkið fræga og margir útgerðar- menn fóru á hausinn. Ríkisstjórnir sem þá voru við völd töldu það ekki í sínum verkhring að setja lög sem skertu athafnafrelsi manna til þess að vernda þá fyrir eigin vitleysis- gangi. En fljótt skipast veður í lofti. Áður en ísland varð lýðveldi hafði verið stofnuð síldareinkasala, ein- okunarverslun með saltfisk og tæknivædd stórbú í landbúnaði bönnuð. Fleiri lög og reglugerðir hafa síðan fylgt í kjölfarið. Einkaframtak og einstaklings- frelsi hafa oft verið skilgreind sem sjúkdómur, mein í þjóðarlíkaman- um, í fyrri alda heimildum og svo virðist sem það viðhorf hafi lítið breyst þó orðalagið sé annað. Nú er svo komið að kvótakerfi er bæði í landbúnaði og sjávarútvegi, einok- un í útflutningi og óeðlilegar höml- ur á athafnafrelsi fólks. Ríkisvaldið er vald skussanna, sem sér til þess að draga máttinn úr þeim sem geta og vilja. Þeir sem fiska fá ekki að róa, nema upp á náð annarlegrar kvótastjórnunnar og þeir sem fram- leiða góða vöru og vilja selja erlend- is eða innanlands eru beittir óeðli- legum þvingunum. Þetta ástand minnir óþægilega mikið á gamla bændasamfélagið, nema nú höfum við ekki Danina til að kenna um það sem aflaga fer. Stefna stjórnvalda undanfarinna áratuga hefur beðið skipbrot. Sífellt 76 SAGNIR
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Sagnir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.