Sagnir - 01.04.1990, Page 79

Sagnir - 01.04.1990, Page 79
Píningsdómur 500 ára Með mjólkursölulögunum 1934 var komið í veg fyrir að tæknivæddur stórbúskapur fengi að dafua á fslandi. Hátt verð á landbúnaðarvörum er afleiðing peirrar stefnu sem þar var mörkuð. fleiri lög og reglur sem takmarka at- hafnafrelsi fólks leiða ekki til neins annars en lélegri lífskjara fyrir al- menning. Paö er nokk sama í hvaða stjórnmálaflokki menn eru, sama miðaldaviðhorfið er alls staðar ríkj- andi þó vissulega séu til undan- tekningar. I stjórnarskrá lýðveldis- ins segir að ekki megi leggja hömlur á atvinnufrelsi manna nema al- mannaheill krefji og vissulega geta verið þær aðstæður að almannaheill krefjist takmarkanna. Á miðöldum kröfðust yfirstéttin og bændur tak- markanna á athafnafrelsi fólks og fengu vilja sínum framgengt með Píningsdómi. Afleiðingar þess eru öllum kunnar. Nú á dögum þiggja yfirvöld völd sín frá almenningi, þannig að færa má rök fyrir því að aðgerðir þeirra séu tilkomnar að kröfu almennings. Samkvæmt þessu er það að kröfu almennings sem óðaverðbólga hef- ur geysað hér undanfarna tvo ára- tugi, vaxtaokur viðgengist, verð á matvöru, sérstaklega íslenskum landbúnaðarafurðum, verið óeðli- lega hátt og síðast en ekki síst lág laun og vinnuþrælkun. Nú hef ég ekki trú á að þetta sé stefna nokkurs manns, en hver er þá skýringin á því að þetta hefur viðgengist? Ástæðan fyrir lélegum lífskjörum, hendstefnu og óráðsíu stjórnvalda er fyrst fremst tilkomin vegna hags- muna yfirstéttarinnar, þ.e. fram- leiðenda og seljenda, við að við- halda einokunnaraðstöðu sinni á nær öllum sviðum þjóðlífsins. Al- menningur, þ.e. neytendur, hefur látið bjóða sér þetta vegna þess að honum er talin trú um að ekki sé annarra kosta völ. Þjóðernisstefnu, rómantík og guð má vita hverju er ofið saman í þennan blekkingarvef, jafnvel íslenskir kommúnistar létu fallerast. Þróun undafarinna áratuga stefn- ir í nýjan Píningsdóm og á sama tíma sem þjóðir Evrópu taka stefn- una fram á veginn horfa íslending- ar til baka. Miðöldum í Evrópu er talið Ijúka 1492, með fundi Amer- íku, og 1992 er stefnt að sameigin- legum markaði Evrópu og nánari samvinnu flestra Evrópuþjóða á nær öllum sviðum. Sú spurning sem íslendingar standa frammi fyrir á þessum tímamótum er hvort þeir ætla að ganga framtíðinni á hönd eða ljúka við að endurskapa samfélag miðalda áður en 21. öldin Heimildir Þessi grein byggir á prentuðum og þekktum heimildum sem lesendum Sagna ætti flestum að vera vel kunnugar og er því ástæðulaust að vera með heimildatilvísanir í svo margþvældu efni. Helsta ritið er auðvitað ísiensk miðalda- saga, og raunar Enska öldin einnig, eftir Björn Þorsteinsson, bók Gísla Gunnarssonar Upp er boðið ísaland og rit Ólafs Ásgeirssonar lðnbylt- ing hugarfarsins. Auk þeirra má nefna bækurn- ar; Mellan kung och allmuge eftir Harald Gustaf- son, íslenskan söguatlas og „Sjdvarhættina" hans Lúðvíks. Af einstökum greinum vil ég sérstaklega benda á frábæra grein Helga Þor- lákssonar um söguskoðun Björns Þorsteins- sonar í afmælisriti Magnúsar Más Lárussonar Saga og kirkja. í Sögu 1989 birtist grein eftir undirritaðann, ásamt Gunnari Halldórssyni og Theódóru Kristinsdóttur, sem heitir „íhaldssemi og framfarahugmyndir fyrr á tímum." og er þessi grein nokkurs konar við- bót. Að síðustu er að nefna þá bók sem var kveikjan að þessum vangaveltum en hún heitir The European Miracle og er eftir hag- fræðiprófessor í Ástrah'u, sem heitir því frum- lega nafni, E.L. Jones. SAGNIR 77

x

Sagnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.