Sveitarstjórnarmál - 01.02.1982, Blaðsíða 23
Framkvæmdir á árinu 1979
Verkið hófst aö nýju 27. apríl og því lauk 7. sept-
ember 1979.
Garður var lengdur um 76 m, auk þess sem gengið
var frá fláa að innanverðu og króna hækkuð og lag-
færð á verkhlutanum frá 1978.
Mælingar sýndu, að ekki þyrfti að ganga betur frá
fláanum að utanverðu á sama kafla.
Alls var ekið úr námum ca. 115.000 tonnum af
grjóti eða ca. 57.000 m1 2 3í garði. Af þessu magni voru
20.000 tonn sett út í garðfláann með pramma, neðan
sjávarkóta +2. Verulegur hluti þessa magns var
kjarni, sem útlagður var neðan — 4 m dýpis.
Að öðru leyti var útlagt með grjótprammanum
flokkað milligrjót allt að 5 tonn að þyngd, en opnun
pramma skammtaði stærðina.
I ljós kom á miðju sumri, að náma sú, sem nýtt
hafði verið frá 1976, myndi ekki gefa þá flokkun á
grjóti, sem sótzt var eftir. Bezti hluti hennar var á
þrotum, og eftir var gólfið í eldri námu, sem kurlað-
ist fullmikið við sprengingar. Ráðizt var í að opna
nýja námu skammt frá holtinu, þar sem þró Síldar-
og fiskimjölsverksmiðju Akraness er. Arangur var
sæmilegur í þessari nýju námu og í fullu samræmi
við árangur liðinna ára.
Kostnaður pr. m3 garðs varð 3026 kr. og skiptist
þannig: Akstur 37%, vinnsla 43%, garður 9%, annað
11%.
Tækjaútgerðin 1979 var sú sama og árið áður að
viðbættum vélpramma og 25 tonna Lorraine-krana
Hafnamálastofnunarinnar, sem sérstaklega var not-
aður við garðútlagninguna. Framkvæmdin 1979
þótti takast frekar vel, enda fengust hagstæð ein-
ingaverð úr verkinu.
Skýring þess, hvers vegna hér tókst svo vel til, er:
1. Einstaklega gott og stillt veður allan fram-
kvæmdatímann.
2. a) Útlagnir kápuklæðningar með grjótpramma
gerðu það að verkum, að verkið gekk verulega hrað-
ar en áður með tilheyrandi aukinni nýtni á tækjum,
bílum og mönnum.
b) Grjótprammaútlagningin leiddi til þess, að
neðan — 4 m dýpis var hægt að leggja út með
kjarnagrjóti. Þetta þýddi verulega hagkvæmari
rekstur námunnar og var því verulega ríkur þáttur
til lækkunar einingaverðs, þar sem garðurinn er
grundaður á — 12 m dýpi.
3. Að verkið komst snemma árs í gang og að því
lauk fyrir hinar miklu hækkanir, sem urðu í sept. á
vinnu tækja, bíla og manna.
Sé litið til baka yfir sl. 4 ár, þá eru komin í allan
garðinn, sem orðinn er 330 m langur og nær 122 m
fram fyrir hafnargarðsenda, 425.000 tonn eða 212.00
m3.
Flokkuðu grjótl í námu mokað á bíla.
Heildarkostnaður þessara fjögurra ára við grjót-
garðinn færður upp til verðlags ársins 1981 yrði vart
undir 20 millj. nýkróna.
Grjótframkvæmdir 1980
Á árinu 1980 fóru svo fram endurbætur á grjót-
vörn framan einingaveggs. Verkið hófst 21. júní og
lauk 11. ágúst. Verkið hófst á því, að byrjað var að
færa út grjót, sem fyrir var í garðinum. I garðinn var
síðan ekið 6500 m3 af grjóti, en af þessu grjóti voru
um það bil 3000 m3 kjarni. Lengd þessa uppgerða
garðs var 200 m.
I námu voru sömu tæki og áður, en á garði var
notuð JcB 807 beltagrafa til upphleðslu á grjótinu.
Kostnaður pr. m3 var 6200 kr., en í þeim kostnaði
var auk þess forfærsla á 2000 m3.
SVEITARSTJÖRNARMAL