Sveitarstjórnarmál - 01.02.1982, Blaðsíða 16
JÓHANNES INGIBJARTSSON,
form. stjórnar dvalarheimilisins Höfða:
DVALARHEIMILIÐ HÖFÐI,
AKRANESI
Dvalarheimilið Höfði á Akranesi er sjálfseignar-
stofnun, en að henni standa, auk Akraneskaupstað-
ar, fjórir hreppar í Borgarfjarðarsýslu sunnan
Skarðsheiðar.
Bygging 1. áfanga, er rúmar 44 vistmenn, hófst
árið 1972. Áður hafði farið fram athugun á högum
aldraðra á Akranesi og á þeim breyttu viðhorfum og
háttum á þjónustu við aldraða, er jaá hafði rutt sér
til rúms víða á meðal grannþjóða okkar. 1. áfangi var
síðan tekinn í notkun árið 1978, og fluttu fyrstu
vistmenn inn hinn 2. febrúar.
Við hönnun heimilisins var strax frá upphafi við
[jað miðað, að það gæti, jafnframt því að vera vist-
heimili fyrir aldraða og öryrkja, sem ekki jjyrftu sér-
stakrar hjúkrunar við, verið alhliða jrjónustustofnun
fyrir þessa aðila á þjónustusvæði sínu. Lögð var rík
áherzla á, að aðbúnaður hvers einstaklings væri
jsannig, að sem minnst röskun yrði á högum hans við
vistun, Jt. e. að hann gæti búið að sínu i þeim mæli,
er hann óskaði og heilsa leyfði, haft sín eigin hús-
gögn, en jafnframt væri tryggð sú þjónusta, er hann
kysi og jryrfti. Reistar voru 38 íbúðir, þar af 32 fyrir
einstaklinga, en 6 fyrir hjón. Ibúðir einstaklinga eru
um 28 m2 og hjóna um 43 m2. I öllum íbúðum er
anddyri með eldunaraðstöðu, stofa, svefnrými og
bað. Að sjálfsögðu er allt rými miðað við þarfir
hreyfihamlaðra.
Við gerð 1. áfanga var lögð höfuðáherzla á að reisa
vistrými, en þjónusturými ýmiss konar var látið bíða
Dvalarheimilið Höfði á Akranesi.
Gamall hlaðinn grjótgarður í
forgrunni.
SVEITARSTJÓRNARMÁL