Sveitarstjórnarmál - 01.04.1994, Blaðsíða 12
HEILBRIGÐISMÁL
Bláa lóniö. Ljósm. Kristinn Benediktsson.
Starfsemi Heilsufélagsins
við Bláa lónið hf.
Grímur Sœmundsen, lœknir og framkvœmdastjóri
Heilsufélagsins við Bláa lónið hf.
Heilsufélagið við Bláa lónið hf.
(HBL) var stofnað í júní 1992.
Stofnaðilar voru íslenska heilsufé-
lagið hf. og Grindavíkurbær.
Tilgangur félagsins er uppbygging
gjaldeyrisskapandi heilsuferðaþjón-
ustu og almennrar ferðaþjónustu við
Bláa lónið. Einnig framleiðsla á
heilsu- og fegrunarvörum úr hráefn-
um tengdum lóninu til útflutnings.
í lok júní 1993 var hlutafé í HBL
aukið í 30 milljónir króna og gerðust
þá öll önnur sveitarfélög á Suður-
nesjum, Hitaveita Suðumesja, ís-
lenskir aðalverktakar sf. og Delta hf.
hluthafar að félaginu. Á hluthafa-
fundi, sem haldinn var þann 11.
nóvember 1993, var ákveðið að auka
hlutafé félagsins enn frekar, eða úr
30 milljónum í 100 milljónir króna.
Þróun meöferöarþjónustu við
Bláa lónið
HBL hefur unnið markvisst að
undirbúningsstarfi til að unnt væri að
hefja markaðssetningu ferða fyrir er-
lenda psoriasissjúklinga til meðferð-
ardvalar við Bláa lónið og einnig að
skapa aðstöðu fyrir íslenska psorias-
issjúklinga til að nýta lækningamátt
Bláa lónsins í baráttunni við sjúkdóm
sinn.
Félagið hefur stutt vísindarann-
sóknir Bláa lónsnefndar heilbrigðis-
ráðuneytisins, en á vegum nefndar-
innar og sérfræðinga hennar dvöldu
30 Þjóðverjar til meðferðar vegna
psoriasis í Bláa lóninu um þriggja
vikna skeið í ágúst 1992.
74