Sveitarstjórnarmál - 01.04.1994, Blaðsíða 15
HEILBRIGÐISMAL
Frumdrög að
heilsudvalarstaö
sýna nýstárlegar
byggingar. Mynd-
in er úr kynningar-
riti, sem dreift er
til hugsanlegra
samstarfsaöiia.
sjúkrasjóðum. Þá er ótalinn eyðslu-
eyrir meðan á dvöl stendur. Má gera
ráð fyrir að hver sjúklingur í sam-
bærilegri dvöl á íslandi skili á bilinu
200-300.000 kr. í gjaldeyri.
Sérstakur kostur er að þessir
sjúklingar hafa áhuga á að koma til
íslands utan háannatíma í ferðaþjón-
ustu og geta því stuðlað að mjög
bættri nýtingu atvinnutækja í al-
mennri ferðaþjónustu, s.s. hótela og
flugvéla.
Við Dauðahafið í fsrael eru hótel-
herbergi alls 2000 og nýting yfir 80%
að meðaltali á ársgrunni. 10.000
Danir og Þjóðverjar sækja þangað nú
árlega og er stöðug aukning í eftir-
spum. Þá er ótalinn fjöldi sem fer til
Kanaríeyja frá þessum löndum og
öðrum en náttúrulegir meðferðarval-
kostir í meðhöndlun psoriasis njóta
sífellt meiri vinsælda.
Ytri aðstæður við Bláa lónið eru
mjög frábrugðnar Dauðahafinu og að
mati sérfræðinga betri, t.d. hvað
varðar ferðalengd frá heimalandi.
öryggi og loftslag, en hiti við
Dauðahafið fer í 50° C á sumrum.
HBL vinnur nú að því að setja
saman „pakka“ sem inniheldur ferð-
ir, gistingu með fullu fæði og með-
ferð fyrir erlenda psoriasissjúklinga.
Gera verður ráð fyrir að HBL þurfi
að taka á sig mikinn kostnað í upp-
hafi vegna þeirra sjúklingahópa er
koma til meðferðar til að byrja með
þar sem þeir þurfa að greiða fyrir sig
að fullu sjálfir. Það mun taka ein-
hvem tíma að vinna þessum lækn-
ingaferðum sess þannig að stuðning-
ur frá opinberum aðilum í heima-
löndum sjúklinga fáist.
Feröaþjónusta
HBL tók við rekstri baðhúss við
Bláa lónið úr höndum Grindavíkur-
bæjar um síðustu áramót. Er þá öll
baðþjónusta við Bláa lónið á einni
hendi. Þetta er gífurlega mikilvægt
skref fyrir þróun þjónustu við Bláa
lónið þar sem þetta tryggir samhæf-
ingu þjónustu og uppbyggingar. Auk
þess mun rekstur almennu ferða-
þjónustunnar styrkja starfsgrunn
HBL og hæfni þess til að standa fyrir
áframhaldandi þróun þjónustu og
framleiðslu við Bláa lónið.
Kristinn Benediktsson, er rak bað-
húsið fyrir Grindavíkurbæ, hefur
verið ráðinn áfram af HBL sem
staðarhaldari við Bláa lónið.
Er nú unnið að ýmsum lagfæring-
um á núverandi aðstöðu en áætlanir
gera ráð fyrir að 30% aukning verði
á fjölda gesta í baðhúsið frá því í
fyrra en þá heimsóttu 108.000 gestir
Bláa lónið.
Fyrstu þrjá mánuði þessa árs komu
40% fleiri gestir í Bláa lónið en sömu
mánuði í fyrra. Jafnframt og nú er
unnið að því að auka fjölda gesta er
verið að leita leiða til að auka þjón-
ustuframboð og fá hvem gest til að
dvelja lengur og eyða meiru en áður.
Er sérstaklega horft til innlendra
ferðamanna nú á ári fjölskyldunnar
og íslensku ferðaári á 50 ára afmæli
lýðveldisins.
77