Sveitarstjórnarmál

Volume

Sveitarstjórnarmál - 01.04.1994, Page 15

Sveitarstjórnarmál - 01.04.1994, Page 15
HEILBRIGÐISMAL Frumdrög að heilsudvalarstaö sýna nýstárlegar byggingar. Mynd- in er úr kynningar- riti, sem dreift er til hugsanlegra samstarfsaöiia. sjúkrasjóðum. Þá er ótalinn eyðslu- eyrir meðan á dvöl stendur. Má gera ráð fyrir að hver sjúklingur í sam- bærilegri dvöl á íslandi skili á bilinu 200-300.000 kr. í gjaldeyri. Sérstakur kostur er að þessir sjúklingar hafa áhuga á að koma til íslands utan háannatíma í ferðaþjón- ustu og geta því stuðlað að mjög bættri nýtingu atvinnutækja í al- mennri ferðaþjónustu, s.s. hótela og flugvéla. Við Dauðahafið í fsrael eru hótel- herbergi alls 2000 og nýting yfir 80% að meðaltali á ársgrunni. 10.000 Danir og Þjóðverjar sækja þangað nú árlega og er stöðug aukning í eftir- spum. Þá er ótalinn fjöldi sem fer til Kanaríeyja frá þessum löndum og öðrum en náttúrulegir meðferðarval- kostir í meðhöndlun psoriasis njóta sífellt meiri vinsælda. Ytri aðstæður við Bláa lónið eru mjög frábrugðnar Dauðahafinu og að mati sérfræðinga betri, t.d. hvað varðar ferðalengd frá heimalandi. öryggi og loftslag, en hiti við Dauðahafið fer í 50° C á sumrum. HBL vinnur nú að því að setja saman „pakka“ sem inniheldur ferð- ir, gistingu með fullu fæði og með- ferð fyrir erlenda psoriasissjúklinga. Gera verður ráð fyrir að HBL þurfi að taka á sig mikinn kostnað í upp- hafi vegna þeirra sjúklingahópa er koma til meðferðar til að byrja með þar sem þeir þurfa að greiða fyrir sig að fullu sjálfir. Það mun taka ein- hvem tíma að vinna þessum lækn- ingaferðum sess þannig að stuðning- ur frá opinberum aðilum í heima- löndum sjúklinga fáist. Feröaþjónusta HBL tók við rekstri baðhúss við Bláa lónið úr höndum Grindavíkur- bæjar um síðustu áramót. Er þá öll baðþjónusta við Bláa lónið á einni hendi. Þetta er gífurlega mikilvægt skref fyrir þróun þjónustu við Bláa lónið þar sem þetta tryggir samhæf- ingu þjónustu og uppbyggingar. Auk þess mun rekstur almennu ferða- þjónustunnar styrkja starfsgrunn HBL og hæfni þess til að standa fyrir áframhaldandi þróun þjónustu og framleiðslu við Bláa lónið. Kristinn Benediktsson, er rak bað- húsið fyrir Grindavíkurbæ, hefur verið ráðinn áfram af HBL sem staðarhaldari við Bláa lónið. Er nú unnið að ýmsum lagfæring- um á núverandi aðstöðu en áætlanir gera ráð fyrir að 30% aukning verði á fjölda gesta í baðhúsið frá því í fyrra en þá heimsóttu 108.000 gestir Bláa lónið. Fyrstu þrjá mánuði þessa árs komu 40% fleiri gestir í Bláa lónið en sömu mánuði í fyrra. Jafnframt og nú er unnið að því að auka fjölda gesta er verið að leita leiða til að auka þjón- ustuframboð og fá hvem gest til að dvelja lengur og eyða meiru en áður. Er sérstaklega horft til innlendra ferðamanna nú á ári fjölskyldunnar og íslensku ferðaári á 50 ára afmæli lýðveldisins. 77

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.