Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.04.1994, Síða 13

Sveitarstjórnarmál - 01.04.1994, Síða 13
HEILBRIGÐISMÁL Meðferð þeirra var eingöngu fólg- in í böðun í lóninu. Niðurstöður af þessari einföldu meðferð voru mjög uppörvandi, en í ljós hefur komið að lífríki Bláa lóns- ins er einstakt í veröldinni en það er talið hafa jákvæð áhrif á húð sjúkl- inganna. Um miðjan ágúst 1993 kom til landsins hópur 23 Þjóðverja á vegum Bláa lónsnefndarinnar, sem dvaldi við böðun og ljósameðferð í Bláa lóninu í fjórar vikur. Eru menn fullvissir um að þessi samsetning meðferðar, þ.e. böðun í Bláa lóninu og ljósameðferð í sér- stökum meðferðarlömpum, þar sem sjúklingar fá geislun frá 30 sek. upp í 3 mínútur, sé mjög árangursrík og gefi Bláa lóninu einstaka sérstöðu. Bráðabirgðaniðurstöður vegna þessarar rannsóknar sýna frábœran árangur. Geta má þess að meðferðarlamp- inn sem notaður er við Bláa lónið er íslensk smíð, þannig að segja má með sanni að þar sé verið að veita alíslenska meðferð við psoriasis. Ferðir þessara tveggja hópa til ís- lands voru skipulagðar í samvinnu við Flugleiðir og samstarfsaðila HBL í Þýskalandi, en þessi aðili sérhæfir sig í lækningaferðum fyrir þýska psoriasissjúklinga og er stærstur á þessum sérhæfða markaði í Þýska- landi. Innra skipulag er nauðsynlegt til að geta þróað þessa vöru og hefur HBL nú reist meðferðaraðstöðu við Bláa lónið sem eingöngu er ætluð einstaklingum með psoriasis, inn- lendum og erlendum. Heildarflatarmál þessarar aðstöðu er 250 fm með öllum nauðsynlegum meðferðarbúnaði (sérstakri Bláa lónslaug, ljósaskápum o.fl.) ásamt aðstöðu fyrir lækna og hjúkrunarfólk og hvíldaraðstöðu fyrir gesti. HBL sótti sl. haust um starfsleyfi til heilbrigðisráðuneytis til að reka meðferðarþjónustu fyrir psoriasis- sjúklinga við Bláa lónið. Bárust mjög jákvæðar umsagnir Bláa lóns- nefndar og landlæknisembættisins. Barst staðfesting frá heilbrigðis- ráðuneyti á að HBL fengi leyft til rekstrar meðferðarstofnunar fyrir psoriasissjúklinga við Bláa lónið frá og með l.janúar sl. Nú þegar starfsleyfi er fengið hef- ur HBL átt viðræður við Trygginga- stofnun ríkisins (TR) um þátttöku í kostnaði vegna meðferðar íslenskra psoriasissjúklinga við Bláa lónið. Er búist við því að TR samþykki kostn- aðarhlutdeild fyrir íslenska sjúklinga nú í vor. Kynningarátak innanlands HBL vinnur með SPOEX - Sam- tökum psoriasis- og exemsjúklinga - að kynningu og uppbyggingu meðferðarþjónustu við Bláa lónið fyrir íslenska psoriasissjúklinga. Hafa fyrstu íslensku sjúklingarnir þegar hafið meðferð undir eftirliti Bárðar Sigurgeirssonar og Jóns Þrándar Steinssonar húðsjúkdóma- 75

x

Sveitarstjórnarmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.