Sveitarstjórnarmál

Volume

Sveitarstjórnarmál - 01.04.1994, Page 14

Sveitarstjórnarmál - 01.04.1994, Page 14
HEILBRIGÐISMÁL lækna og er aðstaða HBL við Bláa lónið nýtt í þessu skyni. Reyndir hjúkrunarfræðingar sjá um ljósameðferð í samræmi við fyrir- mæli sérfræðinganna. Njóta rúmlega 20 sjúklingar þessarar þjónustu. Hafa sjúklingamir látið mjög vel af ár- angri vegna Bláa lónsmeðferðarinn- ar, m.a. hafa sjúklingar, sem mjög illa hefur gengið að meðhöndla, fengið meiri bata en þeir hafa kynnst áður. Hafa skal í huga að á meðan psoriasissjúklingar geta haldið niðri einkennum sjúkdóms síns með nátt- úrulegri meðferð við Bláa lónið geta þeir oft minnkað eða hœtt notkun mjög dýrra lyfja. Þjónustan við Bláa lónið nú hefur verið sjúklingum að kostnaðarlausu og hefur HBL staðið straum af kostnaði vegna þessa. Þetta mun breytast í tengslum við væntanlega samninga við Tryggingastofnun. Kynningarátak erlendis í framhaldi af rannsóknum Bláa lónsnefndarinnar, starfsleyfi heil- brigðisráðuneytis og væntanlegri kostnaðarþátttöku TR er HBL að undirbúa markaðsátak til að kynna kosti meðferðarþjónustu við Bláa lónið fyrir erlendum psoriasissjúkl- ingum. Mun félagið einbeita sér að þýskumælandi löndum meginlands Evrópu, sérstaklega Þýskalandi, og Norðurlöndum. Þýskir sjúkrasjóðir og dönsk heil- brigðisyfirvöld hafa stutt psoriasis- sjúklinga í þessum löndum til með- ferðar við Dauðahafið í ísrael en HBL hefur í undirbúningsstarfi sínu tekið nokkurt mið af eftirspum og uppbyggingu lækningaferða þangað. HBL hefur átt mjög gott samstarf við SPOEX í þessu skyni og mun í samvinnu við samtökin standa fyrir kynningu á Bláa lóninu sem með- ferðarvalkosti við psoriasis á vett- vangi alþjóðlegra psoriasissamtaka. Bláa lónsnefnd heilbrigðisráðuneytis Aðstöðu fyrir fjöl- þætta þjónustu- starfsemi Heilsu- félagsins viö Bláa lóniö er ætlaö aö risa vestan undir fjallinu Þorbimi. Á miöri mynd er orkuver Hitaveitu Suöurnesja og Bláa lóniö. Ljósm. Ímynd/Guömund- ur Ingólfsson. mun sennilega einnig styðja kynn- ingarstarf félagsins. Kynningarátakið mun annars veg- ar beinast að því að vekja áhuga og fá psoriasissjúklinga frá þessum lönd- um til að koma til Islands til með- ferðar og hins vegar að því að kynna sjúkrasjóðum og heilbrigðisyfirvöld- um kosti „íslensku meðferðarinnar" við psoriasis og fá þessa aðila til að taka lækningaferðir til Islands í þessu skyni inn í sitt styrkjakerfi. Með starfsleyfi íslenskra heil- brigðisyftrvalda, kostnaðarþátttöku tryggingakerfisins vegna íslenskra sjúklinga og samstarf við SPOEX í höndum hefur HBL öflug tceki til markaðssetningar erlendis. Möguleikar til arðbærrar gjaldeyr- issköpunar eru miklir í þessu verk- efni. Má nefna að meðaldvöl þýsks psoriasissjúklings við Dauðahafið í ísrael er 25,6 dagar. Meðalkostnaður vegna slíkrar ferðar er 5000 DM sem eru að 95% greidd af þýskum 76

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.