Sveitarstjórnarmál


Sveitarstjórnarmál - 01.04.1994, Qupperneq 44

Sveitarstjórnarmál - 01.04.1994, Qupperneq 44
ATVINNUMAL stuðning úr starfsmenntasjóði við námskeið sem einkum hafa verið ætluð atvinnulausu fólki. Með tilliti til þessa ákvæðis taldi starfsmennta- ráð sér skylt að leggja málefninu lið. Ljóst er að viðfangsefnið er mun stærra en starfsmenntasjóður ræður við. Á síðasta ári var þetta vandamál tekið til sérstakrar umfjöllunar af nefnd á vegum heilbrigðis- og trygg- ingamálaráðuneytisins. Tillaga hennar var að atvinnuleysistrygg- ingasjóður legði til fjármagn til svo- nefndra grunnnámskeiða fyrir at- vinnulausa en starfsmenntaráðið legði sérhæfðara námskeiðahaldi lið. I 3. gr. er að finna skilgreiningar á hugtökum. Grunnstarfsmenntun er skilgreind sem grundvallarstarfs- menntun til ákveðinna starfa eða starfa í tiltekinni atvinnugrein í framleiðslu og þjónustu. Til eftir- menntunar er talin endurnýjun fag- kunnáttu og viðbótarmenntun sem fólk stundar á sínu fagsviði. Kveðið er á um skipun félags- málaráðherra á sjö mönnum í starfs- menntaráð til tveggja ára í 2. kafla laganna. Þrír eru skipaðir samkvæmt tilnefningu samtaka atvinnurekenda og þrír af samtökum launafólks. Ráðherra skipar einn án tilnefningar. Starfsmenntaráð skiptir með sér verkum. Á fyrsta fundi var ákveðið að hinir þrír aðilar sem eiga fulltrúa í ráðinu, þ.e. ríksvaldið, samtök at- vinnurekenda og samtök launafólks, skyldu skiptast á að gegna starfi for- manns. I samræmi við það var full- trúi ráðherra kosinn fyrsti formaður ráðsins til árs, síðan skyldi fulltrúi samtaka launafólks taka við og loks fulltrúi atvinnurekenda. Hlutverk starfsmenntaráðs er að úthluta styrkjum til starfsmenntunar og vera stjórnvöldum til ráðuneytis unt stefnumótun og aðgerðir á sviði starfsmenntunar. í þriðja kaflanum er fjallað um fjármál. Samkvæmt 8. gr. laganna skal ráðstöfunarfé starfsmenntaráðs ákveðið á fjárlögum og ráðstafað í sérstakan sjóð sem nefndur er starfs- menntasjóður. Níunda grein hefur að geyma ákvæði um styrkhæf tilvik. Hægt er að veita styrki vegna kostn- aðar við undirbúning námskeiða, t.d. verkefnisstjórnun, náms- og kennslugagnagerð. Enn fremur vegna greiðslu kostnaðar við nám- skeiðahald, þar með talinn kostnaður vegna kennsluaðstöðu eða kostnaður vegna ferðalaga og ílutninga. Starfs- menntaráð getur veitt styrki vegna annarra útgjalda samkvæmt eigin ákvörðun. Að því verður vikið síðar. Eitt þeirra atriða sem starfshópar og nefndin sem samdi frumvarp til laga um starfsmenntun í atvinnulíf- inu staldraði mest við var fram- kvæmd starfsmenntunar. í höndum hverra átti hún að vera? Félagsmála- ráðuneytisins eða menntamálaráðu- neytisins? Einkaaðila eða opinberra aðila? Átti að stefna að uppbyggingu sjálfstæðs starfsmenntunarkerfis að erlendri fyrirmynd? Leiðin sem valin var kemur fram í 10. gr. Þar segir að rétt til að sækja um styrki til starfs- náms eigi samtök atvinnurekenda og launafólks, einstök atvinnufyrirtæki, einka- og opinberir aðilar sem standa fyrir starfsmenntun í atvinnulífinu, starfsmenntaráð einstakra atvinnu- greina og samstarfsverkefni tveggja eða fleiri framangreindra aðila. Upphaflega stóð til að láta hér staðar numið vegna þess að hugmyndin var sú að byggja sem mest á því frum- kvæði sem ýmsir aðilar höfðu tekið. t.d. með stofnun Rafiðnaðarskólans, fræðslunefndar í málmiðnaði og síð- ar Prenttæknistofnunar. Þannig hefur aldrei staðið til að starfsmenntaráð félagsmálaráðuneytisins standi sjálft að starfsmenntun. Sama átti að gilda um skóla. Hugsunin var sú að samtök aðila vinnumarkaðarins fengju stuðning til að stofna til starfs- menntunar. Þeir gætu síðan ákveðið hvort þeir sæju sjálfir um fram- kvæmdina eða leituðu til annarra, t.d. skóla. Með þessu yrði reynt að koma í veg fyrir fjárveitingu til viðfangs- efna sem lítil eða engin raunveruleg þörf væri fyrir í atvinnulífmu. At- hugasemdir komu fram við 10. gr. og tókst samstaða um að bæta við hana ákvæði um að skólar hefðu rétt til að sækja um styrki þegar um væri að ræða samstarf við áðurnefnda aðila, einn eða fleiri. I fimmta kafla laganna eru ýmis ákvæði. Þar er m.a. að finna ákvæði um upplýsingaskyldu í 12. gr. í 13. gr. er kveðið á um það að aðilar sem hafa fengið stuðning samkvæmt lög- unum skuli senda félagsmálaráðu- neytinu eintak af kennslugögnum sem samin hafa verið. Áskilinn er réttur til að ráðstafa þessum gögnum til frekari notkunar samkvæmt til- lögum starfsmenntaráðs í samráði við höfundarréttarhafa. Enn fremur eru í lögunum ákvæði um skýrslu- gerð um nám sem hefur verið styrkt. Einnig um mat á því til námseininga í hinu almenna skólakerfi. Starfsmenntaráð Ef til vill er fullsnemmt að leggja dóm á árangur laganna. Starfs- menntaráð var skipað í fyrsta skipti í ágúst 1992. Stuttu síðar var auglýst eftir umsóknum um stuðning úr starfsmenntasjóði. Þegar umsóknar- frestur rann út höfðu borist umsóknir um stuðning við 75 verkefni frá 44 aðilunt. Samtals var sótt unt fjár- stuðning að upphæð 120 milljónir króna. Sjóðurinn hafði til umráða 48 milljónir króna. Fyrsta úthlutun úr starfsmennta- sjóði var tímafrek. Samanlögð upp- hæð umsókna var langt umfram það fjármagn sem var til úthlutunar. Þar af leiðandi þurfti starfsmenntaráð að setja sér reglur sem gerðu kleift að raða umsóknum á skynsamlegan hátt í forgangsröð. Nefna má nokkur at- riði sem lögð voru til grundvallar í þessu sambandi. Áhersla var lögð á stuðning við skipulagningu og samningu á námsefni fyrir ný starfs- menntanámskeið. Enn fremur stuðn- ing til að endurskoða námsefni fyrir námskeið sem höfðu reynst vel. Starfsmenntaráð varði verulegum 106
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.