Sveitarstjórnarmál - 01.04.1994, Side 58
ÍÞRÓTTIR OG ÚTIVIST
íþróttamiðstöð í Garði
„Trú fólksins hefur verið sú að
þessi íþróttamiðstöð væri sú fram-
kvæmd sem Garðurinn þarfnaðist
helst nú og yrði hvati að enn betri
tilvist og ánægjuauki Garðmönnum
til handa. Engin ein framkvæmd í
sögu byggðarlagsins síðustu áratugi
hefur verið umfangsmeiri og kostn-
aðarsamari miðað við tekjur sveitar-
sjóðs. Þetta var hreppsnefnd Gerða-
hrepps ljóst er ákvörðun var tekin.
Stórum áfanga er náð. Aldnir sem
ungir hafa beðið þessarar glæstu að-
stöðu. Þessi aðstaða mun valda
þáttaskilum m.a. í skólastarfi."
Þannig ávarpaði Finnbogi Björns-
son, oddviti Gerðahrepps, sveitunga
sína og gesti er Iþróttamiðstöðin í
Garði var vígð með hátíðahöldum
hinn 16. október sl. Hann gat þess í
ávarpi sínu að fyrir hálfri öld, á árinu
1944, hefði verið tekið í notkun við
Gerðaskóla íþróttahús sem þá var
eina íþróttahúsið á Suðurnesjum, 8 x
12 m að stærð. En á síðustu árum
hefur Gerðahreppur þurft að leigja
aðstöðu í nágrannabyggðarlögum til
íþróttakennslu til viðbótar þeirri er
fram fór í þessum fimmtíu ára gamla
sal. Sundlaug er hins vegar í fyrsta
sinn tekin í notkun í Garði nú.
Skipulögð sundkennsla fyrir nem-
endur hefur farið víða fram, fyrst á
Laugarvatni, hálfan mánuð í senn, og
síðar í Keflavík, Njarðvík og í Sand-
gerði. Finnbogi þakkaði nágranna-
sveitarfélögunum velvildina í sam-
bandi við kennsluaðstöðuna.
Byggingarsagan
Að loknu ávarpi oddvitans sagði
Iþróttamiöstööin í Garöi á vígsludegi hennar 16. október 1993.
^9
íþróttasalurinn. Á miöri mynd standa Hjalti Guðmundsson verktaki og Siguröur Jónsson
sveitarstjóri.
120