Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.04.1994, Síða 59

Sveitarstjórnarmál - 01.04.1994, Síða 59
ÍÞRÓTTIR OG ÚTIVIST Finnbogi Björnsson, oddviti Geröa- hrepps, í ræöustóti viö vígsluathöfnina. Sigurður Ingvarsson, formaður byggingamefndar mannvirkisins, byggingarsögu hússins og lýsti því. Byggingarsagan er stutt því að það var hinn 6. maí 1992 sem hrepps- nefnd samþykkti að ráðast í að byggja íþróttamannvirkið. Skyldi íþróttahús og sundlaug reist í einum áfanga. Þá var ákveðið að íþrótta- húsið yrði í fullri stærð og með 26 x 44 metra sal sem tekur 384 áhorf- endur í sæti. A hinn bóginn var í öndverðu áformað að sundlaugin yrði aðeins kennslulaug en síðar var ákveðið að lengja hana í 25 metra. í maí 1992 var byggingin boðin út, fyrsta skóflustungan var tekin 27. júní 1992 og framkvæmdir hófust fljótlega eftir það. Tæpum 16 mán- uðum síðar var húsið fullbúið. Lýsing á mannvirkinu Aðkoman að húsinu er á þann veg að gengið er inn að vestanverðu og komið inn í afgreiðslu. A vinstri hönd er íþróttasalurinn, samtals 1153 fermetrar að stærð. A hægri hönd em búningsklefar fyrir sundlaug. Þar eru klefar fyrir allt að 50 manns og sturtur og gufuböð. En tveir bún- ingsklefar eru fyrir notendur íþrótta- Sundlaugin. Hana vígði Ásmundur Böövarsson úr Féiagi eldri borgara i Garöi en hann hefur um langt árabil hvatt til þess aö sundlaug yröi byggö f hreppnum. Á hann sér viö sundlaugarbakkann nálægt miöri mynd. Leikskólabömin spretta úr spori á góifi íþróttahússins. Unnar Stefánsson tók myndirnar meö greininni. salar. Samtímis rúma búningsklefar 180 manns. í kjallara, sem samtals er 368 fermetrar, er hreinsibúnaður og dælur fyrir sundlaug auk herbergja fyrir dómara og leikfimikennara og um það bil 250 fermetra rými sem enn er óráðstafað en gefur kost á ýmsum möguleikum. 1 kjallarann er sérinngangur. íþróttahúsiö Húsið er steinsteypt og einangrað að utan og klætt með lituðu báru- jámi. Þak er uppbyggt úr límtrésbit- um og ofan á það koma einingar með hljóðeinangrun og síðan tvö lög af pappa. Ofan á steingólf íþróttasalar koma tvöfaldar lektur með gúmmíþynnum 121

x

Sveitarstjórnarmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.