Sveitarstjórnarmál

Volume

Sveitarstjórnarmál - 01.12.1995, Page 10

Sveitarstjórnarmál - 01.12.1995, Page 10
AFMÆLI „Trúin og atvinnulífiö". verða nýtt til kyndingar á skóla, sundlaug og íþróttahúsi. Við það myndi sparast töluverður kyndingarkostnaður. Atvinnumál Útgerðarfyrirtækið Röst hf. var stofnað af Raufar- hafnarhreppi, Þórshafnarhreppi, Vopnafjarðarhreppi og einkaaðilum á þessu svæði. Félagið keypti austur-þýsku stálskipin Jón Trausta og Bjarnareyna en eins og nafn félagsins gefur til kynna var lífsdans þess krappur dans og voru hlutabréf þess seld nokkrum árum síðar á 50% af nafnverði. A gullaldartíma síldaráranna breyttist Raufarhöfn úr fámennu sveitaþorpi í umfangsmikið sjávarút- vegspláss. Ein aflahæsta útílutnings- höfn landsins ár eftir ár, síldarplön úti um allt og er mest lét þúsundir manna í vinnu. Það má til sanns veg- ar færa að mannlíf hafi verið fjöl- skrúðugt hér þegar t.d. í brælu einni, er entist í viku, lágu á annað hundrað skip og bátar hér í höfninni. Menn geta rétt ímyndað sér hvílíkur mann- fögnuður þetta hefur verið, ástin og viðskiptin hljóta að hafa blómstrað. Það er fróðlegt til þess að hugsa hvernig Raufarhafnarhreppur væri staddur í dag fjárhagslega ef allur þessi mannfjöldi hefði borgað sitt út- svar og önnur gjöld í kassa Raufar- hafnarhrepps. Við hefðum sjálfsagt ekkert verið verr stödd en sum olíu- riki Arabíu. En því var ekki að fagna, þess í stað hvarf síldin end- anlega af Islandsmiðum 1968, sama ár, 13. janúar, brann frystihúsið er hafði verið starfrækt síðan 1955 og í júlí hætti kaupfélagið störfum vegna fjárskorts. Við blasti at- vinnuleysi sem aldrei fyrr, nánast hver einasta fyrirvinna mátti hverfa suður á bóginn í atvinnuleit til að sjá sér og sínum farborða. Upp úr þessum hörntungum fæddist Jökull hf. fyrir tilstuðlan Raufarhafnarhrepps, og 1973 kemur togarinn Rauðinúpur hingað til Raufarhafnar og má þá segja að þar hafi verið komið það atvinnutæki, þ.e.a.s. frystihús og útgerð, er veitti stórum hluta íbúa at- vinnu árið um kring. Síldarverk- smiðjur rikisins og síðar SR-mjöl hf. hefur frá stofnun sveitarfélagsins ver- ið snar þáttur í atvinnulífi staðarins; þar hefur oft á tíðum verið mikil vinna og menn komist í veruleg upp- grip- Síðastliðinn vetur byggði SR-mjöl hf. loðnuflokkunarstöð og keypti Fiskiðja Raufarhafnar hrognatöku- búnað. Menn voru bjartsýnir á þessa nýju hráefnisvinnslu en veturinn sem leið sýndi mönnum fram á að eina leiðin til þess að tryggja hráefni til þessarar vinnslu er að eiga og gera út eigið loðnuskip og er það verðugt verkefni fyrir viðkomandi aðila að slík útgerð verði orðin að veruleika fyrir næstu vertíð. A þessu ári hafa verið keyptir tveir SR-mjöl hf. Greinarhöfundur tók myndina og þær myndir aörar sem birtar hafa veriö hér aö framan í greininni. 200

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.