Sveitarstjórnarmál - 01.12.1995, Blaðsíða 44
MÁLEFNI ALDRAÐRA
Próun hjúkrunarheimila
Aöhlynning viö andlát
Langlegusjúklingar
meö verulegt
færnitap
Aöhlynning viö andlát
Langlegusjúklingar
meö verulegt
færnitap
?
Skammtímavistun og
hvíldarinnlagnir
Aöhlynning viö andlát
Langiegusjúkl. meö
verulegt færnitap
Tími í árum taliö
Próun aðstoðar í heimahúsum
A E = s | s 'T'I
Langlegusjúklingar meö verulegt færnitap 11
S| 1! m
Tímabil aöstoöar
laust er hér um að ræða mjög hagstæða leið fyrir við-
komandi sveitarfélag þegar lil lengri tíma er litið en
hvort hér sé tryggt að unnið sé til fulls í samræmi við
markmið laganna eða hvort þessari leið fylgi aukin lífs-
gæði fyrir aldraða íbúa sveitarfélagsins hlýtur að vera
matsatriði í hverju tilviki. Skiptir landfræðileg stærð og
lega sveitarfélaganna vissulega máli í þessu tilliti.
Heimaþjónusta
Löngum hefur verið talað fyrir þeirri þjóðhagslegu
hagkvæmni sem felst í heimaþjónustu og víst er að það
er ódýrari leið fyrir þjóðfélagið en sjúkrahús- og hjúkr-
unarheimilispláss fyrir aldraða sem þurfa umönnun og
aðhlynningu. Þetta staðfestir nýútkomin skýrsla Hag-
sýslu ríkisins. Þá er þessi leið í fullu samræmi við óskir
aldraðra sjálfra og ítrekaðar niðurstöður rannsókna þar
um. Eg tel ekki ástæðu að fjölyrða um það frekar hér,
svo mikið hefur verið rætt og ritað um mikilvægi heima-
þjónustu á undanförnum árunt. Ég hef þó alltaf haldið
því fratn að heimaþjónusta eigi ekki og geti reyndar
ekki leyst stofnanir af hólmi hvað þá að koma í staðinn
fyrir þá ómældu aðstoð sem ættingjar veita sínum öldr-
uðu fjölskyldumeðlimuin. Ég tel að alltaf verði þörf fyrir
stofnanir fyrir aldraða en að hlutverk þeirra sé að breyt-
ast og eigi eftir að breytast enn meir er fram líða stundir.
Kem ég nánar að því síðar. Það hlýtur þó að vera um-
hugsunarefni að svo mikil áhersla skuli vera lögð á
stofnanauppbyggingu fyrir aldraða í þeirri mynd sem nú
tíðkast, sérstaklega í ljósi þess að þjónusta við aðra hópa
í samfélaginu, t.d. fatlaða og þroskahefta, snýst um að
leggja niður stofnanir og skapa íbúum þeirra skilyrði er
tryggir heimilislegra umhverfi og meira sjálfstæði og
sjálfsforræði. A sama tíma sé ég að úrræði eins og
heimaþjónusta og heimahjúkrun hafa enn ekki l'engið
tækifæri til að þróast sem raunverulegar úrlausnir sem
aldraðir geta treyst og byggt áform sín á um áframhald-
andi búsetu á eigin heimili. Það sem ungt fólk stefnir að
og öllum þykir sjálfsagt, það að verða sjálfstætt og halda
sitt eigið heimili, þurfa aldraðir nú að berjast fyrir að
viðhalda.
En heimaþjónusta er ekki bara heimaþjónusta. Hún er
aldrei betri en það skipulag sem hún byggir á og það
starfsfólk sent innan hennar starfar. Annars staðar á
Norðurlöndum hafa ýmsar leiðir verið reyndar við skipu-
Úr ráöstefnusal á Hótel Loftleiöum. Gunnar G. Vigfússon tók myndirnar.
234