Sveitarstjórnarmál - 01.12.1995, Side 49
BÆKUR OG RIT
Úrskurðir og álit fé-
lagsmálaráðuneytisins
1994
Félagsmálaráðuneytið hefur
gefið út ritið „Urskurðir og álit
félagsmálaráðuneytisins í sveitar-
stjórnarmálum 1994“. Ritið er
hið fjórða sem ráðuneytið gefur
út á grundvelli 119. greinar sveit-
arstjórnarlaganna frá 1986 þar
sem segir að ráðuneytið skuli ár-
lega gefa út úrskurði sína í sveit-
arstjómarmálum.
A árinu 1990 gaf ráðuneytið út
úrskurði áranna 1986-1989, árið
1992 komu út úrskurðir og álit
ráðuneytisins á árunum 1990 og
1991 og á árinu 1994 úrskurðir
áranna 1992 og 1993. í ritinu nú
eru í fyrsta skipti gefnir út úr-
skurðir eins árs, samtals 69 að
tölu, enda fjölgaði kærum og öðr-
um erindum geysilega á síðasta
ári frá því sem verið hafði árin á
undan. Að dómi ráðuneytisins
eru skýringar þess einkum tvær.
Annars vegar gildistaka stjórn-
sýslulaga nr. 37/1993 því að al-
menningur hafi með tilkomu
þeirra orðið meira meðvitaður
um rétt sinn til að fá úrlausn mála
hjá stjórnsýslunni og hins vegar
sveitarstjórnarkosningarnar 28.
maí 1994, því að deilumál hafi
skapast við undirbúning þeirra og
við framkvæmd kosninga á ýms-
um stöðum.
Fremst í ritinu er birt efnisskrá
þar sem bent er á hvaða greinar
sveitarstjórnarlaganna fjallað er
um í hverjum úrskurði og áliti.
Önnur skrá sýnir hvaða úrskurðir
og álit eigi við einstakar greinar
og loks er skrá um önnur lög sem
vitnað er til.
Ritið er 208 bls. að stærð. Það
fæst í félagsmálaráðuneytinu og á
skrifstofu sambandsins og kostar
1.800 krónur eintakið. Hin ritin
með úrskurðum ráðuneytisins eru
einnig fáanleg í ráðuneytinu og á
skrifstofu sambandsins.
Nákvæm
vitneskja...
forsendur skynsamlegrar ákvörðunar
Fróðleikur um land og þjóð
Landshagir cru ársrit Hagstofunnar sem hefur að geyma mikinn
fjölda athyglisverðra og aðgengilegra upplýsinga um flest svið
þjóðfélagsins, svo sem mannfjölda, laun, verðlag, vinnumarkað,
framleiðslu, heilbrigðismál, menntamál o.fl. Landshagir 1995
eru einnig komnir út.
Verð kr. 2.200.
Fjármál sveitarfélaga
I ritinu Sveiiarsjóðareikningar 1994 er gerð ítarleg grein fyrir
fjárhagslegri afkomu allra sveitarfélaga í landinu. Einnig er fjallað
um þjónustu hvers sveitafélags á sviði dagvistar, félagsmála,
fjárhagsaðstoðar o.fl.
Verð kr. 1.800.
Utanríkisverslun fslendinga
f ritinu Utanríkisverslun 1994 eftir tollskrámúmerum eru
upplýsingar um utanríkisviðskipti íslendinga árið 1994.
Handhægt rit fyrir þá sem stunda innflutning eða útflutning og
einnig fyrir framleiðendur sem eru í samkeppni við innflutning.
Verð kr. 2.200.
Alþingiskosningar
Alþingiskosningar 1995 greina frá nýafstöðnum kosningum.
Þar eru ítarlegar upplýsingar um frambjóðendur.kosningaþáttlöku,
kosningaúrslit o.fl. Rit fyrir alla áhugamenn um stjómmál.
Verð kr. 800.
Hagtíðindi
Hagtíðindi em mánaðarrit Hagstofunnar. I þeim em birt reglu-
bundið yfirlit um utanríkisverslun, fiskafla, þróun peningamála,
ýmsar vísitölur, greinar um félagsmál, ferðamenn o.fl.
Ársáskrift kr. 3.000. Einstök hefti kr. 300.
Ferðamenn á fslandi
Gistiskýrslur 1994 greina frá fjölda gististaða, herbergja og rúma,
gistinátta og nýtingu gistirýmis eftir landsvæðum. Rit fyrir alla þá
er tengjast ferðamannaþjónustu.
Verð kr. 700.
Vinnumarkaður
í ritinu Vinnumarkaður 1994 er fjallað um atvinnumál,
atvinnuleysi, vinnustundir o.fl. Handhægt og greinargott rit um
íslenskan vinnumarkað.
Verð kr. 1.000.
Hagstofa íslands
Skuggasundi 3 150 Reykjavflc S. 560 9800 Bréfas. 562 3312
239