Sveitarstjórnarmál - 01.12.1995, Page 53
ATVINNUMAL
Atvinnu- og ferðamálastofa
Reykj avíkurborgar
Pétur Jónsson, borgarjulltrúi ogformaður atvinnu-
málanefhdar Reykjavíkurborgar
Hinn 31. janúar 1995 samþykkti
borgarráð að setja á stofn sérstaka
Atvinnu- og ferðamálastofu. Skrif-
stofan á að sjá um að framkvæma
samþykktir atvinnumálanefndar og
ferðamálanefndar og sinna öðrum
verkefnum sem henni eru falin af
borgarstjóra.
I greinargerð með tillögunni var
lögð áhersla á að með auknu at-
vinnuleysi hefði mikilvægi opin-
berra aðgerða og stefnumörkunar í
atvinnumálum aukist verulega.
Bæði ríki og sveitarfélög verði að
leggja sitt af mörkum til að styrkja
þann atvinnurekstur sem fyrir er og
hlúa að nýjum vaxtarbroddum. I
Reykjavík, eins og annars staðar,
hafi verkefni á sviði atvinnu- og
ferðamála farið vaxandi á undan-
förnurn árum og því brýnt að búa
betur að þessum málaflokkum í
stjómkerfmu en verið hefur.
I greinargerðinni var einnig bent á
að með þessari tillögu væri stefnt að
því að sókn Reykjavíkurborgar í at-
vinnumálum yrði í aðalatriðum tví-
þætt, annars vegar með starfsemi
Atvinnu- og ferðamálastofu sent
lýtur pólitískri stjórn og hins vegar
með hlutdeild borgarinnar í Aflvaka
Reykjavíkur hf. sem lýtur sjálf-
stæðri stjórn. Atvinnu- og ferða-
Architektur-Keramik
Dæmi um kröfur sem gerðar eru til flísa
• Hátt brotþol
• Mótstaða gegn efnum
(t.d. sýrum o.sfrv)
• Ónæmi gagnvart hita-
breytingum
• Öryggi í notkun
• Hreinlæti
• Ending og þjónusta
• Fagurt útlit og
hönnunarmöguleika
Sérverslun með flísar
I -T- H I I I I I I I I I I I
Stórhöfða 17, við Gullinbrú, sími 674844
Gæðaflísar á góðu verði
243