Sveitarstjórnarmál - 01.12.1995, Side 58
KYNNING SVEITARSTJÓRNARMANNA
Ágúsl Ingi Ölafsson
sveitarstjúri Hvolhrepps
Ágúst Ingi
Olafsson, kaup-
félagsstjóri hjá
Kaupfélagi
Rangæinga, hef-
ur verið ráðinn
sveitarstjóri
Hvolhrepps frá
20. ágúst. Kemur hann í staðinn fyr-
ir Isólf Gylfa Pálmason, sem kosinn
var alþingismaður hinn 8. aprfl sl.
Ágúst er fæddur að Hemlu í Vest-
ur-Landeyjum 2. janúar 1949. For-
eldrar hans eru Olafur T. Jónsson og
Magnea H. Ágústsdóttir. Hann lauk
samvinnuskólaprófi 1971 og hefur
síðan sótt ýmis námskeið í stjómun
og rekstri. Ágúst hefur starfað hjá
Kaupfélagi Rangæinga frá árinu
1966 að undanskildum skólaárununt
sem skrifstofumaður, aðalgjaldkeri,
aðstoðarkaupfélagsstjóri og frá ár-
inu 1989 sem kaupfélagsstjóri.
Ágúst var oddviti Hvolhrepps á ár-
unum 1986-1989.
Ágúst er kvæntur Sóleyju Ást-
valdsdóttir og eiga þau þrjú böm.
✓
Arni Egilsson sveitarstjóri
Hofshrepps
fsláturhússtjóri og
sölufulltrúi
Kaupfélags
Skagfirðinga
(KS), hefur verið
__ ráðinn sveitar-
stjóri Hofshrepps frá 1. september
sl., en Jón Guðmundsson frá Os-
landi hefur óskað lausnar frá starfi
vegna veikinda.
Ámi er fæddur 1. september 1959
á Sauðárkróki. Foreldrar hans eru
Alda Vilhjálmsdóttir og Egill
Bjarnason landbúnaðarráðunautur.
Hann lauk stúdentsprófi af við-
skiptabraut frá Fjölbrautaskóla
Norðurlands vestra á Sauðárkróki
1985 og hefur síðan unnið hjá
Kaupfélagi Skagfirðinga á Sauðár-
króki, fyrst í launadeild og sl. sex ár
sem sláturhússtjóri og sölufulltrúi
Sláturhúss og Kjötvinnslu KS.
Árni var varabæjarfulltrúi fyrir
Sjálfstæðisflokkinn á Sauðárkróki
1986-1990 og 1990-1994 og tók
mikinn þátt í störfum bæjarstjórnar
á fyrra kjörtímabilinu.
Sambýliskona Áma er Þórdís Sif
Þórisdóttir og eiga þau tvo syni.
✓
Agúst Iír. Björnsson
sveitarstjóri Súðavíkur-
hrepps
Bjömsson tækni-
fræðingur hefur
f verið ráðinn
s i -■- /oS§|h
sveitarstjóri
Wy- . Súðavíkurhrepps
, ' i frá 15. okt. sl.
Ágúst er fædd-
ur í Reykjavík 22. desember 1956
og eru foreldrar hans Helga Þórðar-
dóttir húsfreyja og Björn Pálsson
sent lengi var deildarstjóri hjá
Reykjavíkurhöfn.
Ágúst lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum við Tjörnina og
prófi í byggingatæknifræði frá
Tækniskóla íslands 1985.
Á árunum 1981 til 1993 starfaði
hann í verktakaiðnaði, hjá Hagvirki
hf. og Hagvirki-Kletti hf., fyrst í
hlutastarfi með nánti og síðan í fullu
starfi. Frá haustinu 1993 starfaði
hann hjá Ríkiskaupum og hafði með
höndum umsjón með útboðum á
sviði framkvæmda, þjónustu og
vörukaupa. Samhliða starfi þar hef-
ur hann haft umsjón með ýmsum
verkefnum, annast ráðgjöf og að-
stoð við verktaka og eftirlit með
byggingarframkvæmdum. Frá því í
febrúar sl. hefur Ágúst unnið við
verklegar framkvæmdir í Súðavík.
Ágúst er kvæntur Sigríði I. Gunn-
arsdóttur úr Reykjavík og eiga þau
eina dóttur, Evu Mjöll, 12 ára.
Kynntu þér
stórkostlega
möguleika
MasterHall
stálgrindarhúsanna
M4SÉBH/"
MasterHall eru algjör tímamótahönnun á stálgrindarhúsum.
Þau eru einföld, létt, þrælsterk og stöðluð í 3 metra einingar í 12 og 15 metra
breiddum. Þau eru einföld í uppsetningu - á einum degi geta fimm menn
reist 300 rn skála og pakkað honum saman á jafn löngum tíma.
MasterHall stálgrindarhúsin eru því sérlega athyglisverður valkostur fyrir
sveitarfélög og fyrirtæki þegar leysa þarf húsnæðismál á sveigjanlegan og
hagkvæman hátt.
Ýmsir möguleikar í boði t.d. kaupleiga og leiga í einstök verkefni.
Allar nánari upplýsingar fúslega veittar.
EG Electrolux
ELECTROLUX GOODS PROTECTION
Arnarhús hf
Garðastræti 6-101 Revkiavík
Garðastræti 6-101 Reykjavík
Sími 562 5080
248