Sveitarstjórnarmál - 01.03.1996, Page 13
SAMEINING SVEITARFE LAGA
Bryggjan viö Holt í Önundarfiröi.
Samstarfsnefndin setti undir lok
starfs síns fram tillögur að bæjar-
málasamþykkt fyrir hið væntanlega
sveitarfélag, þar sem lagt var til að
bæjarfulltrúar hins nýja sveitarfé-
lags yrðu 11, fulltrúar í bæjarráði
yrðu 5, fulltrúar í nefndum 7 og
fjöldi nefndasviða 4. (Sjá meðfylgj-
andi mynd af tillögum að skipuriti.)
I september 1995 taldi samstarfs-
nefndin tímabært að kalla eftir vilja
sveitarstjómanna til þess að boða til
almennrar atkvæðagreiðslu um sam-
einingarmálin og lagði hún fram til-
lögur sínar að sameiningunni ásamt
greinargerð.
Þetta var samþykkt í öllum sex
sveitarstjórnunum og ákveðin at-
kvæðagreiðsla sem fram fór þann 2.
desember 1995. Niðurstaðan varð
eins og greint var frá í upphafi þess-
ara skrifa. Að lokinni atkvæða-
greiðslunni samþykktu allar við-
komandi sveitarstjómir að fela sam-
starfsnefndinni að gera tillögur í
samræmi við 109 gr. sveitarstjórnar-
laganna og vinna frekar að undir-
búningi kosningar sveitarstjórnar
hins nýja sveitarfélags.
Samstarfsnefndin lagði til við
sveitarstjórnirnar að kosningar færu
fram hinn I 1. maí, að fulltrúar í
sveitarstjórn yrðu I I talsins og að
sameiningin öðlaðist gildi hinn 1.
júní 1996. Á það var fallist og var
sameining sveitarfélaganna sex
staðfest með auglýsingu félagsmála-
ráðuneytisins sem dagsett var hinn
23. febrúar.
Jafnframt var í auglýsingu ráðu-
neytisins mælt fyrir um að nafn hins
nýja sveitarfélags skyldi ákveðið á
grundvelli skoðanakönnunar sem
fram skyldi fara. Fór sú skoðana-
könnun fram samhliða kosningu
sveitarstjórnarinnar 11. maí og hef-
ur nafn sveitarfélagsins verið ákveð-
ið í samræmi við niðurstöður hennar
en flest atkvæði í henni hlaut nafnið
ísafjarðarbær.
Það er von allra samstarfsnefnd-
armanna að vel takist til um þessa
sameiningu og allir eru áfram um að
svo verði og að sameining þessi
megi enn frekar styrkja sveitar-
stjómarstigið í landinu.
(Grein þessi var skrifuð í apríl
1996).
Kirkjan á Flateyri. Myndirnar eru frá blaöinu „Bæjarins besta '.
7