Sveitarstjórnarmál - 01.03.1996, Blaðsíða 16
ÍÞRÓTTIR OG ÚTIVIST
iþróttamiöstööin á Þingeyri.
fþróttamiðstöðin á Þingeyri
Jónas Ólafsson, sveitarstjóri Þingeyrarhrepps
Bygging íþróttahúss og sundlaug-
ar hefur verið langþráður draumur
íbúa Þingeyrarhrepps síðustu ára-
tugi. Undirbúningsvinna að forsögn
fyrir núverandi íþróttamannvirki,
þ.e. íþróttahús og sundlaug, á Þing-
eyri hófst formlega 1987 en það ár
fóru þeir Jónas Olafsson sveitarstjóri
og Sigmundur Þórðarson bygginga-
meistari til Noregs, Svíþjóðar og
Danmerkur til þess að kynna sér
íþróttamannvirki af svipaðri stærð
og gerð sem gætu hentað fyrir að-
stæður á Þingeyri.
Þá kynntu þeir sér einnig rekstur
slíkra mannvirkja. Hreppsnefnd
Þingeyrarhrepps samþykkti á fundi
sínum þann 30. janúar 1991 að leita
eftir tillögum að íþróttahúsi og sund-
laug.
Tillaga Helga Hjálmarssonar,
arkitekts á Teiknistofunni Oðins-
torgi, og samstarfsmanns hans,
Olafs Erlingssonar, verkfræðings hjá
Verkfræðistofu Sigurðar Thorodd-
sen hf. (VST hf.), var valin til úr-
vinnslu.
I byggingamefnd íþróttamiðstöðv-
arinnar eru: Bergþóra Annasdóttir,
oddviti hreppsins, Angantýr Valur
Jónasson, Magnús Guðjónsson, Sig-
mundur Þórðarson og Jónas Olafs-
son, sem er formaður nefndarinnar.
Staöarval
Iþróttamiðstöðinni var valinn
staður á Þingeyrarodda við Kirkju-
stræti, á íþrótta- og útivistarsvæði
Þingeyringa, í nánum tengslum við
íþróttavöllinn og tjaldstæðin. Lóð í-
þróttamiðstöðvarinnar tengist lóð
Þingeyrarkirkju og verða bifreiða-
stæðin sameiginleg. Reynir Vil-
hjálmsson landslagsarkitekt hefur
gert heildarskipulag af lóðunum, en
á svæðinu eru fomminjar, sem taka
þarf sérstakt tillit til.