Sveitarstjórnarmál - 01.03.1996, Blaðsíða 23
UMHVERFISMÁL
úrkast sem praktískt þykir að flokka
frá plasti og þess háttar umbúðum
og án mikillar fyrirhafnar er sett í
sérstök ker sem Gámaþjónustan hf.
tæmir vikulega og flytur á jarðgerð-
arstað þar sem það fær sömu með-
ferð og heimilisúrgangurinn.
Aðstandendur verkefnisins leituð-
ust við að halda sambandi við þátt-
takendur og fylgjast með fram-
vindu. Send voru fréttabréf og síð-
asta vetrardag bauð Gámaþjónustan
hf. þátttakendum til samsætis í
Hafnarborg þar sem boðið var upp á
kaffiveitingar og m.a. sýnd stutt
heimildarmynd, eins konar yfirlit
yfir ferlið. Um sumarið var síðan
komið með tvo gáma af jarðvegs-
bæti í hverfið og þátttakendum boð-
ið að taka sér slatta í kerru.
Helstu nióurstöóur
Fyrirfram var lítið vitað um áhuga
fólks á að taka þátt í nýbreytni af
þessu tagi. Af 103 heimilum við
þessar þrjár götur voru 97 reiðubúin
til þátttöku, sem er rösklega 94%
þátttaka. Þetta háa hlutfall hefur
haldist, þ.e. engir hafa hætt þátttöku
eftir að verkefnið hófst.
Eins og búast mátti við hafa við
framkvæmdina komið upp ýmis
hversdagsleg vandamál. Sums stað-
ar var erfitt að koma aukaílátum fyr-
ir og utandyra er óvíða gert ráð fyrir
fleiri en einni sorptunnu. Nokkrir
íbúar hafa kvartað yfir að ólykt stafi
frá ílátum með matarleifum. I mörg-
um tilfellum hefur það orsakast af
því að lok á tunnum voru undin eða
gölluð á annan hátt.
Vorið 1995, eftir um 7 mánaða
reynslu, voru íbúar beðnir um að
fylla út spurningalista um reynslu
sína af þátttöku. Alls bárust svör frá
83 heimilum og ýmislegt athyglis-
vert kemur þar fram. Hér á eftir fara
spumingar af listanum og niðurstöð-
ur af svörun.
1. Er umtalsverð fyrirhöfn sem fylg-
ir því að flokka sorp í þessa tvo
flokka?
Nei: 94%
Sérálit: 6%
„Innanhússreglurnar" eru elnfaldar.
2. Gleymist oft að flokka sorpið?
Nei: 90%
Já: 1%
Sérálit: 9%
3. Er stærð íláta heppileg? (Ef ekki
hvað þarf að laga?)
Já: 52%
Útiílát ofstórt: 25%
Pokar passa illa: 12%
Þyrfti að passa betur í skáp: 2%
Hafa lok á inniíláti: 2%
4. Finnst heimilisfólki að nýja fyrir-
komulaginu fylgi meiri óþrif eða
lykt?
Nei: 76%
Stundum: 12%
Já: 7%
Bara úti: 4%
5. Hvemig reynast pappírspokamir?
Finnst heimilisfólki nægjanlegt að
klæða innanhússílát í botninn með
gömlum dagblaðapappír?
Pokar nauðsynlegir: 28%
Pokar betri: 29%
Dagblöð í lagi: 17%
Dagblöð og pokar: 4%
Svara ekki: 23%
6. Getur fólk hugsað sér þetta fyrir-
komulag til frambúðar? (Ef nei,
hvers vegna?)
Já: 99%
Alveg eins: 1%
7. Er þjónustan í kringum hið nýja
fyrirkomulag fullnægjandi?
(Ef ekki, hvað þarf að bæta?)
Já: 86%
Svara ekki: 8%
Athugasemdir: 6%
8. Hver eru viðbrögð gestkomandi
við nýju fyrirkomulagi, vina og
vandamanna?
Jákvœð og góð: 73%
Okunn, engin, svara ekki: 19%
Forvitnir, áhugasamir, hissa: 8%
9. Vill fólk fremur jarðgera lífrænan
úrgang sjálft heima í garði eða líst
fólki betur á að efnin séu sótt og
jarðgerð á einum stað eins og gert
er nú?
Efni sótt: 81%
Já og nei, svara ekki, óvíst: 19%
10. Notar heimilisfólk gámastöðvar
Sorpu til að skila flokkuðum úr-
gangi, t.d. pappír, gleri, málmum og
garðaúrgangi?
Já: 48%
Að hluta til: 18%