Sveitarstjórnarmál - 01.03.1996, Side 38
NÁTTÚ RUHAMFARIR
Varnir gegn snjóflóðum
og skriðuföllum
Magnús Jóhannesson, ráðuneytisstjóri í umhverfis
ráðuneytinu
Inngangur
Um síðustu áramót öðluðust gildi
breytingar á lögum um vamir gegn
snjóflóðum og skriðuföllum (nr.
151/1995). Með þessum breytingum
er stefnt að því að einfalda stjórn-
sýslufyrirkomulag snjóflóðavarna
frá því sem áður var. Yfirstjórn
málaflokksins er flutt úr félagsmála-
ráðuneyti í umhverfisráðuneyti og
Veðurstofu íslands falinn veigamik-
ill þáttur í framkvæmd varna gegn
ofanflóðum.
Hinir hörmulegu atburðir sem
urðu á norðanverðum Vestfjörðum
á síðastliðnu ári, fyrst á Súðavík og
síðar á Flateyri, vörpuðu nýju ljósi á
framkvæmd snjóflóðavarna í land-
inu og undirstrikuðu nauðsyn þess
að styrkja framkvæmd laganna sem
í gildi höfðu verið frá því 1985.
Þess ber þó að geta að ekki fór fram
heildarendurskoðun á lögunum,
heldur var ákveðið að einskorða
breytingamar við afmarkaða þætti,
þannig að taka mætti á þeirn vanda
sem við blasti eftir hamfarirnar á
Súðavík og Flateyri. Heildarendur-
skoðun laganna mun hins vegar fara
fram síðar á þessu ári og mun frum-
varp þar að lútandi væntanlega lagt
fram á Alþingi fyrir lok ársins.
Lagabreytingar
Breytingar á stjórnsýslufyrir-
komulagi snjóflóðavarna eru í höf-
uðdráttum tvenns konar. Eins og
áður hefur komið fram flyst yfir-
stjórn málaflokksins úr félagsmála-
ráðuneyti í umhverfisráðuneyti en
um leið eru allar rannsóknir og for-
varnir ofanflóða fluttar undir um-
sjón Veðurstofu Islands. Þetta þýðir
m.a. að mat á hættu vegna snjóflóða
er flutt frá Almannavörnum ríkisins
til Veðurstofu Islands. Samhliða
þessu hefur sú breyting orðið að
snjóaathugunarmenn, sem nú hafa
verið ráðnir á öllum snjóflóðasvæð-
um við byggð, verða starfsmenn
Veðurstofu Islands.
Með flutningi forvarnarstarfs frá
Almannavörnum rfkisins til Veður-
stofu Islands er rannsóknum á snjó-
flóðum, mati á snjóflóðahættu, snjó-
flóðaeftirliti og snjóflóðaviðvörun-
um komið undir eina stjórn. Með
þessum skipulagsbreytingum er að
því stefnt að einfalda það verklag
sem tíðkast hefur vegna snjóflóða-
vama. Þetta þýðir þó ekki að starfs-
menn Veðurstofunnar komi til með
að vinna alla þætti forvarnarstarfs
sjálfir, heldur munu þeir bæði í
samvinnu við erlenda aðila og inn-
lenda, svo sem vísindamenn við Há-
skóla íslands og aðrar stofnanir og
einkafyrirtæki, sjá til þess að nýtt
verði öll aðgengileg þekking til að
tryggja eftir fremsta megni öryggi
íbúa gagnvart ofanflóðum.
Með því að gera snjóaathugunar-
menn að starfsmönnum Veðurstofu
Islands, og veita þeim góða þjálfun
og nauðsynlegan tækjabúnað til
starfa á heimaslóðum, er að því
stefnt að styrkja snjóflóðaspár fyrir
einstök svæði.
Hin veigamikla breytingin á lög-
unum, sem þó ber að líta á sem
bráðabirgðaráðstöfun á meðan fram
fer endurskoðun á öllu hættumati, er
gerð svonefndra rýmingarkorta fyrir
byggð á snjóflóðahættusvæðum
sem Veðurstofan mun annast. Veð-
urstofunni er nú falið að gefa út við-
varanir um svæðisbundna snjóflóða-
hættu og ákveða um rýmingu hús-
næðis í samráði við viðkomandi
lögreglustjóra og almannavarna-
nefndir hverju sinni. Þessi ákvörðun
var áður í höndum lögreglustjóra og
almannavarnanefnda, sem byggðu
ákvarðanir sínar á gildandi hættu-
mati. Markmiðið með þessum
breytingum er að koma í veg fyrir
frekara manntjón af völdum snjó-
flóða á meðan unnið er að endur-
skoðun hættumats og hönnun og
byggingu varnarvirkja á snjóflóða-
hættusvæðum í byggð.
Veðurstofan hefur nú lokið gerð
rýmingarkorta fyrir öll helstu sveit-
arfélög á snjóflóðahættusvæðum.
Hafa starfsmenn Veðurstofunnar
haft náið samstarf um gerð kortanna
við sveitarstjómir og lögreglustjóra
viðkomandi staða og verða kortin
kynnt íbúum sveitarfélaganna á
næstunni. Þar sem reynslan hefur
sýnt að nauðsynlegt er að endur-
skoða frá grunni gildandi hættumat
fyrir byggð á snjóflóðasvæðum,
munu rýmingarsvæðin í aftakaveðr-
um og við óvenjuleg snjósöfnunar-
skilyrði verða umfangsmeiri en
tíðkast hefur. Það má hins vegar
ætla að þessi rýmingarsvæði muni
minnka og rýmingum fækka þegar
fyrir liggja niðurstöður úr þeirri um-
fangsmiklu vinnu, rannsóknum og
gagnaöflun sem hafin er á vegum
Veðurstofunnar.
Önnur breyting sem gerð var á
lögunum og ástæða er til að nefna er
að þar eru nú settar reglur um til-
högun á greiðslum úr Ofanflóða-
sjóði til eigenda þeirra húsa sem
keypt kunna að verða eða flutt af
32