Sveitarstjórnarmál - 01.03.1996, Qupperneq 40
FORNLEIFAR
Um fornleifaskráningu á íslandi,
upphaf og ástæður
Fyrri grein: Upphafið og lögin
Bjarni F. Einarsson fornleifajrœðingur, Þjóðminjasafhi Islands
I 18. grein nýrra þjóðminjalaga stendur
eftirfarandi: „Þjóðminjasafn lœtur, eftir
föngum, skrá allar þekktar fornleifar og gef-
ur út skrá um friðlýstar fornleifar og skal
hún enditrskoðuð á þriggja ára fresti. Skylt
er að fornleifaskráning fari fram á skipu-
lagsskyldum svæðum áður en gengið er frá
skipulagi eða endurskoðun þess og skal
Þjóðminjasafn eiga samvinnu við skipulags-
yftrvöld um það. “ (Lög um breyting á þjóð-
minjalögum, nr. 88/1989, sbr. lög nr.
43/1991).
I I. grein laga um mat á umhverfisáhrifum stendur:
„Markmið laga þessara er að tiyggja að áður en tekin
er ákvörðun um framkvœmdir, sem kunna, vegna stað-
arvals, staifsemi sem þeim fylgir, eðlis eða umfangs, að
liafa íför með sér umtalsverð áhrifá umhverfi, náttúru-
auðlindir og samfélag, liafi farið fram mat á umhveifis-
áhrifum, svo og að tryggja að slíkt mat verði fastur liður
í gerð skipidagsáœtlana." (Lög um mat á umhverfis-
áhrifum, nr. 63/1993). I 10. grein sömu laga stendur: „1
mati á umhveifisáhrifum skal tilgreina á viðeigandi hátt
áhrif sem framkvœmdir og fyrirhuguð starfsemi kunna
að hafa á menn, samfélag og menningu, dýr, plöntur og
aðra þœtti lífríkis, jarðveg, vatn, loft, veðuifar, landslag
og samverkan þessara þátta. “
Því er ljóst að samkvæmt lögunt ber okkur að skrá
fornleifar og aðrar greinar þjóðminjalaga sýna að ekki
skiptir máli hvort um þekktar eða óþekktar fornleifar er
að ræða, allar njóta þær friðunarákvæða þjóðminjalag-
anna.
Þjóðminjaráð og Þjóðminjasafn Islands hafa nú
ákveðið að hefja undirbúning að fornleifaskráningu á
öllu landinu. Fyrsta skrefið er að finna þá aðferð sem
hentar og Þjóðminjasafn mælist til að notað verði um
landið allt. Næsta skref er að hrinda tilraunaskráningu af
stað og reyna kerfið til fulls. I því sambandi verður hald-
ið námskeið þar sem farið verður yfir kerfið, aðferðimar
og fæmina að lesa í landið. Að því loknu mun fomleifa-
skráning vonandi geta hafist víðs vegar úti um landið og
orðið fastur liður í minjavörslunni.
En okkur ber ekki að skrá fornleifar ein-
ungis vegna þess að lög kveða á um það,
heldur höfum við siðferðislegar, fræðilegar
og sögulegar skyldur í þessum efnum. I
þessari grein verður lítillega fjallað um upp-
haf þessara mála hér á landi og hugtökin
fornleifaskráning og fornleifar skilgreind. I
næstu grein mun ég fjalla um þessi mál út
frá siðferðislegum, heimspekilegum og
fræðilegum sjónarhóli.
Myndirnar sem hér birtast eru valdar af
handahófi úr skyggnusafni Þjóðminjasafns
Islands. Þær uppfylla mínar kröfur um fegurð sem ég
hafði að leiðarljósi við valið og þær eru góður fulltrúi
hinna mörgu fomleifa sem kúra öllum gleymdar úti um
allt land. Þessar eru þó svo lánsamar að hafa komist að
vissu marki undir verndarvæng samfélagsins. Þær eru
allar birtar með leyfi Þjóðminjasafnsins.
Fornleifaskráning
Hugtakið fornleifaskráning felur í sér skráningu á
fomleifum og er þá átt við svokallaðar fastar fomleifar,
svo sem mannvirki, varir, kuml o.s.frv. (ekki lausar fom-
leifar sem við köllum forngripi. Hugtökin fornleifar og
fomgripi köllum við fornminjar). Einnig er hægt að tala
um fastar fornleifar sem ekki eru mannvirki í orðsins
fyllstu merkingu, svo sem uppsprettur, álfasteina og
álagabletti, og fornleifar sem eru afleiðing óskyldra at-
hafna, svo sem reiðgötur, vöð og stöðlar. Hugtakið
greinir ekki í sundur þekktar fornleifar frá óþekktum,
heldur felur það í sér skráningu á öllum fomleifum og til
að hún geti gengið eftir þarf að leita skipulega að þeim í
landslaginu. Stundum getur jafnvel borgað sig að leita að
þeim í heimildum. Til eru skráningar sem ekki fela í sér
skráningu allra fomleifa, svo sem skráning á sérstökum
tegundum fomleifa, eins og kumlum, þjóðleiðum, álfa-
steinum o.s.frv. Eins má ímynda sér staðbundnar skrán-
ingar á sögulegum minjum, hellum, vörðum, stnðsminj-
um, minjum tengdum hvalveiðum Norðmanna o.s.frv.
Slíkar skráningar uppfylla tæplega ákvæði þjóðminja-
laga um fomleifaskráningu, hversu góðar eða merkilegar
34