Sveitarstjórnarmál - 01.03.1996, Blaðsíða 65
ÝMISLEGT
Tilraun með sjóðsatkvæði á Eyrarbakka
Björn S. Stefánsson, dr. scient.
Sveitarstjómir hafa ýmis ráð til að
gera sér hugmynd um hvernig megi
taka tillit til skoðana almennings.
Hreppsnefndin á Eyrarbakka hefur
hafið tilraun með sjóðsatkvæði í því
skyni. Eg vísa til greinar minnar,
Atkvæðafjöldi eftir vægi máls, í 2.
tbl. Sveitarstjórnarmála 1995, en
minni á, að með sjóðsatkvæðum
geta menn látið það koma fram í at-
kvæðatölu, ef um kappsmál er að
ræða, og sömuleiðis leitt mál að
mestu hjá sér með því að bjóða fá
atkvæði eða alveg með því greiða
engu afbrigði málsins atkvæði.
Hreppsnefndin ákveður hvaða
mál eru lögð fyrir. Þeir sem skipuðu
aðalmannssæti á framboðslistum
vorið 1994 fá atkvæði til ráðstöfun-
ar. Listamir voru þrír og aðalmenn í
hreppsnefnd sjö. Samtals var því 21
gefinn kostur á þátttöku. Þrír urðu
ekki með, einn án þess að ástæða
væri tilgreind, en tveir vegna fjar-
veru. I stað þeirra komu varamenn
listanna.
Atkvæðin sem menn fá í sjóð eru
í hlutfalli við atkvæðastyrk listanna
í kosningunum 1994. D-listinn fékk
þá 113 atkvæði. Hver D-listamaður
fær í sjóð sinn 11,3 atkvæði fyrir
hvert mál, sem borið verður undir
atkvæði. E-listinn fékk 62 atkvæði.
Fær hver maður þar í sjóð sinn 6,2
atkvæði vegna hvers máls. I-listinn
fékk 193 atkvæði og fær hver mað-
ur 19,3 atkvæði vegna hvers máls.
Til þess að gefa mönnum þegar í
fyrsta málinu kost á að greiða
kappsmáli atkvæði í samræmi við
eigið mat fengu þátttakendur fjór-
falda áðurnefnda atkvæðatölu sem
stofnframlag, 45,2 atkvæði hver D-
listamaður, 24,8 atkvæði hver E-
listamaður og 77,2 atkvæði hver I-
listamaður.
A vel sóttum kynningarfundi 18.
janúar var fyrsta mál tekið fyrir. Það
var reglur um útivistartíma barna.
Voru fjórir kostir í málinu: almenna
reglan, Akureyrarreglan, Selfoss-
reglan og Vopnafjarðardæmi. Fékk
hver þátttakandi atkvæðaseðil með
nafni sínu, tölu atkvæða í sjóði og
afbrigðunum fjórum. Nokkrum dög-
um síðar var ég á hreppsskrifstof-
unni, ef menn þættust þurfa frekari
leiðbeiningu. Skilafrestur var til 30.
janúar. Allir skiluðu atkvæðaseðli (í
lokuðu umslagi).
Menn þurfa að hafa hugmynd um
þau mál, sem síðar á að taka fyrir,
til þess að meta vægi þess máls sem
er til afgreiðslu. Þess vegna voru
tvö næstu mál kynnt á fundinum 18.
janúar. Annað varðar fjárstyrki til
afreksmanna í íþróttum. Hreppurinn
hefur veitt slfka styrki. Spumingin
er hvort svo skuli vera áfram og þá í
meira eða minna mæli. Hitt málið er
um hraðahindranir og leiksvæði. Þar
kemur ýmislegt til greina, miskostn-
aðarsamt. 15. febrúar var niðurstaða
atkvæðagreiðslunnar kynnt á fundi
þátttakenda, vinnubrögðin rædd og
næsta mál reifað.
Sjóðsatkvæðagreiðsla á alllangan
aðdraganda á Eyrarbakka. Magnús,
oddviti hreppsnefndar, fékk áhuga á
aðferðinni haustið 1994. Varð það
til þess að ég kom á hreppsnefndar-
fund í janúar 1995. Fékk hugmynd-
in góðar undirtektir. Það stóð all-
lengi í okkur Magnúsi að finna
heppileg málefni. Hugmyndir um
heppileg málefni reynast koma auð-
veldar þegar farið er á stað og fleiri
koma að umræðunni. Magnús
kveðst fús að ræða sjóðsatkvæði við
forvitna sveitarstjómarmenn.
Menn spyrja hvort sveitarstjórn
gefi frá sér völd með skoðanakönn-
unum af þessu tagi. Það gerir hún
ekki. Hennar einnar er réttur og
skylda að álykta og taka ákvarðanir
fyrir hönd sveitarfélagsins. Þá má
spyrja hvort hún sé ekki að gefa frá
sér áhrif. Ég hygg að sveitarstjómir
reyni yfirleitt að gera sér grein fyrir
því hversu þóknanlegar ákvarðanir
kunna að verða almenningi. Ein leið
til þess er sjóðsatkvæðagreiðsla
meðal þeirra sem kynnt hafa al-
mennan áhuga sinn með framboði.
Sveitarstjórn ræður því hvaða mál
em lögð þannig fyrir. Þó að meiri-
hlutinn hafi einsett sér að ljúka máli
má gera það á ýmsan hátt. Með
sjóðsatkvæðum getur hann kynnt
sér skoðanir manna á ýmsum úr-
lausnum.
Þessi vinnubrögð hafa víðar verið
til athugunar. Ég hef meðal annars
leitað fyrir mér í fjölmennari sveita-
hreppum, bæði þar sem var lista-
kosning og þar sem kosið var óhlut-
bundið. Illa hefur gengið að finna
málefni. Má vera að auðveldara sé
að finna mál í þéttbýli.
5 9