Sveitarstjórnarmál

Årgang

Sveitarstjórnarmál - 01.03.1996, Side 66

Sveitarstjórnarmál - 01.03.1996, Side 66
ÝMISLEGT Upp kom sú hugmynd að kanna mætti skoðanir í hreppum, þar sem kosið var óhlutbundið, með því að láta öllum, sem atkvæði fengu. í té sjóðsatkvæði í hlutfalli við atkvæða- tölu í kosningunum. Þetta var tekið til athugunar í tveimur sveitahrepp- um. I öðrum þeirra reyndist erfitt að finna mál, en í hinum kom í ljós að ekki voru til atkvæðatölur nema þeirra 10 sem kosnir voru í hrepps- nefnd ásamt varamönnum. 10 tel ég heldur fátt þegar beita á sjóðsat- kvæðum. Þar var í staðinn tekið lil athugunar að láta öllum kjósendum í té sjóðsatkvæði. Þar stendur málið. Þá kom upp sú hugmynd, þar sem kosið er óhlutbundið, að félög, ung- mennafélag, búnaðarfélag, kvenfé- lag, kirkjusókn og verkalýðsfélag, fái sjóðsatkvæði í hlutfalli við tölu félagsmanna innan hrepps og færu stjórnarmenn búsettir innan hrepps með atkvæðin. Þetta mæltist ekki vel fyrir á hreppsskrifstofu einni. Starfsmaður hreppsins kvaðst ekki vera í neinu félagi (var reyndar í þjóðkirkjunni og því sóknarbarn), en sumir væru í mörgum félögum, og væri slík málsmeðferð því ekki sanngjörn. I staðinn kom fram sú hugmynd að gefa öllum hreppsbú- um kost á sjóðsatkvæðum. Þar stendur málið, en ekki hefur tekist að finna nógu mörg málefni sem hreppsnefnd telur henta. Reynslan á Eyrarbakka, þótt ekki sé hún víðtæk, styrkir þá von að með sjóðsatkvæðum geti sveitar- stjórn fengið skjalfest ábyrg við- brögð við málum og þannig stuðst við álit þeirra sem með framboði hafa lýst áhuga á málum sveitarfé- lagsins. Eitt einstakt mál má ekki vera yfirgnæfandi í slíkri skoðana- könnun. Því er ekki heppilegt að taka fyrir fjárhagsáætlunina í heild, en á Eyrarbakka er til athugunar að taka þar sérstaklega fyrir hvernig mönnum lítist á að lækka með sér- stakri aðgerð þær skuldir hreppsins sem eru dýrar. Með sjóðsatkvæðum má fá fram viðbrögð við mismun- andi ráðstöfunum í því efni. Eins getur sums staðar átt við að taka fyrir framkvæmdaáætlun, þar sem um yrði að ræða að stilla saman ein- stakar framkvæmdir og hæð útsvars og fasteignagjalda þeirra vegna. Annað mál, sem víða getur verið tímabært, er umhverfismál, þar sem ákveða þarf kvaðir á almenning og eigendur fasteigna og fyrirtækja og gjöld vegna þeirra mála. Þriðja mál- ið, sem endurtekur sig árlega, er um framlög til félaga. Þar gæti sveitar- stjórn ákveðið hámark í heild, en skoðanir manna til skiptingar fjár- hæðarinnar yrðu kannaðar með sjóðsatkvæðum og þá kæmi líka til greina að hún yrði ekki öll hagnýtt. I bæjarfélögum sýnist verklagið geta verið það að bæjarráð feli ein- stökum nefndum bæjarins ásamt starfsmönnum bæjarins að útfæra mál í nokkrum afbrigðum og ráðið leggi þau síðan fyrir handhafa sjóðsatkvæða. Menn spyrja gjarna hvort stækum minnihluta gefist ekki með sjóðsat- kvæðum tækifæri til ráða sérmáli sínu út í æsar. Líturn á til hvers reynslan á Eyrarbakka bendir. Minna verður á að þar er um að ræða mál sem hreppsnefnd (meiri- hlutinn) leitar skoðunar stærri lióps á. Með niðurstöðunni fylgir vit- neskja um hvemig einstakir þátttak- endur beittu sér. Þannig getur meiri- hlutinn metið áhrif einstakra þátt- takenda á niðurstöðuna og hversu góðar ástæður eru til að taka tillit til hennar. Þátttakendur kynna sig með atkvæðaboðum sínum. Maður sem býður atkvæði lítt í samræmi við eigin skoðanir spillir álili sínu og laðar ekki til stuðnings við sjónar- mið sín yfirleitt. Þannig verður kostnaðarsamara fyrir hann að vinna málum sínum brautargengi. Afbrigði í hverju máli þurfa ekki að vera nema tvö, en ég vænti þess að þau verði sjaldan færri en fjögur. Þegar svo er sjá menn sér hag í því að bjóða atkvæði ekki aðeins á það sem menn kjósa helst, heldur einnig næsthelst, þriðja helst og svo fram- vegis. Maður, sem gerir það ekki, á á hættu að glata tækifæri til að koma í veg fyrir að það afbrigði verði ofan á sem hann kýs síst. Eg hygg, ef menn hugsa málið við slík- ar aðstæður, sýnist líklegt að þeir einþykku minnihlutahópar, sem menn þykjast víða verða varir við, trosni upp í liðsmenn, sem vissulega kunna að halda áfram að kjósa helst eitthvað óralangt frá almennings- áliti, en eru hins vegar til viðræðu um það sem er nær almenningsáliti og gefa það til kynna með stiglækk- andi atkvæðatölu og geta þannig átt þátt í því að annað verður ofan á en þeir kjósa helst. Bergnes býður skiltakerfi fyrir: Allar breytingar eru þægilegar, einfaldar og fljótlegar. Óþrjótandi möguleikar. OPINBERAR BYGGINGAR SKRIFSTOFUR HEILSUGÆSLUSTOÐVAR SJÚKRAHÚS ÖLDRUNARHEIMILI SKÓLA BERGNES ehf. Smiðjuvegi 4, 200 Kópavogur. Sími 567 3305. Fax 567 3177 60

x

Sveitarstjórnarmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.