Sveitarstjórnarmál - 01.03.1996, Side 69
KYNNING SVEITARSTJORNARMANNA
Guðjón Petersen bæjar-
stjóri Snæfellsbæjar
Guðjón Peter-
sen, fram-
kvæmdastjóri
Almannavarna
ríkisins, hefur
verið ráðinn bæj-
arstjóri Snæfells-
bæjar frá 1. febr-
úar sl. Hann er fæddur 20. nóvem-
ber 1938 í Reykjavík. Foreldrar
hans eru Guðný Guðjónsdóttir Pet-
ersen húsfreyja og Lauritz Petersen
vélstjóri.
Guðjón tók farmannapróf til stýri-
manns og skipstjóra frá Stýrimanna-
skólanum í Reykjavík 1961 og skip-
herrapróf á varðskipum ríkisins
1965. Hann starfaði sem háseti hjá
Eimskipafélagi íslands 1956-1961,
var kennari við Stýrimannaskólann í
Reykjavík 1961-1962, stýrimaður
hjá Landhelgisgæslunni 1962-1971
og fulltrúi hjá Almannavömum rík-
isins 1971-1979. Hann hefur verið
framkvæmdastjóri Almannavarna
ríkisins frá 1979.
Guðjón átti sæti í landgrunns-
nefnd 1969-1971, í nefnd Menning-
armálastofnunar Sameinuðu þjóð-
anna (UNESCO) um eldgosavá
1975-1979 og hefur verið í al-
mannavarnanefnd Atlantshafs-
bandalagsins frá 1975, skipulags-
nefnd jarðvísindadeildar UNESCO
frá 1981 og jarðskjálftanefnd frá
1984. Hann hefur verið ritari ofan-
flóðanefndar frá 1985 og í áhættu-
matsnefnd Reykjavíkurflugvallar
1988-1991.
Guðjón átti sæti í nefnd Samein-
uðu þjóðanna (SÞ) um alþjóðaátak í
vörnum gegn náttúruhamförum
1988-1990 og hefur starfað í
UNESCO-nefnd um fræðslu um
náttúruvá frá 1990. Hann hefur ver-
ið í skipulagsnefnd um vamar- og
öryggismál frá 1990, var ráðgjafi SÞ
við uppbyggingu almannavarna á
Niue í Suður-Kyrrahafi 1981, ráð-
gjafi Alþjóðasambands Rauðakross-
félaga við skipulag neyðarvarna á
Grenada 1989 og ráðgjafi SÞ við
uppbyggingu almannavama á Möltu
1990.
Guðjón hefur skrifað greinargerð-
ir um mótun og gerð neyðaráætlana
fyrir einstakar byggðir og lands-
hluta, fræðslurit, skýrslur um nátt-
úruhamfarir og aðrar vár og varnir
gegn þeim. Einnig fjölmargar blaða-
og tímaritsgreinar um sömu mál,
m.a. í Sveitarstjómarmálum.
Guðjón er kvæntur Lilju Bene-
diktsdóttur verslunarmanni og eiga
þau tvö uppkomin böm.
Reynir Þorsteinsson
sveitarstjóri
Raufarhafnarhrepps
Reynir Þor-
steinsson, oddviti
Raufarhafnar-
hrepps, hefur
verið ráðinn
sveitarstjóri
hreppsins frá
15. nóvember sl. Hann er fæddur í
Reykjavík 11. mars 1964. Foreldrar
hans eru Hrafnhildur Halldórsdóttir
H-Laun
Heildarlausn sem einfaldar
Launabókhald
Og það máttu bóka!
63