Hermes - 01.12.1988, Page 47

Hermes - 01.12.1988, Page 47
45 Og svo er skólinn búinn og þaö þarfaö pakka niður. Þá er oft gott að fá hjálp frá bekkjarsyst- ur. Ljósm.: Gísli Sigurðsson. En þrátt fyrir alla aðkomna fræðslu og stundarstyttingu og námsferðir og önnur samskipti utan skólans var starfið heima alltaf aðalatriðið og átti það ekki hvað síst við um félagslíf nemenda. Ahersla var lögð á að gera það svo öflugt og fjöl- breytt, að heimilið væri sjálfu sér nóg á því sviði og nemendur þyrftu ekki að sækja út fyrir veggi þess. Meðal annars ráku nemendur sjálfir eigið kaupfélag, sem verslaði með skólavörur, bækur og aðrar nauðsynjar. Einangruninni sem svo var kölluð fylgdi félagslegur styrkur. Byggt á gagnkvæmu trausti í upphafi voru skólaheimilinu settar nokkrar skýrar reglur, sem fyrst og fremst miðuðu að því að skapa nemend- um þægilegt og næðissamt námsum- hverfi og móta heimilislegt samfélag. Byggt var á gagnkvæmu trausti og trún- aði gagnvart sjálfum sér og þeim, sem starfað var og numið með. Þessi tvöfaldi kvartett söng fyrsta ár Samvinnuskólans að Bifröst. F.v.: HalldórSigurðsson, spari- sjóðsstjóri í Borgarnesi sem lengi æfði söng að Bifröst, Marías Þórðarson, Sigfús Gunnarsson, Grétar Björnsson, Hilmar Daníelsson, Haukur Logason, Gunnar Ingi jónsson, Kristinn Guðna- son og Sigurður G. Sigurðsson. Undirleikari er Margrét Helga Halldórsdóttir. voru farnar nokkurra daga ferðir, ýmist til Akureyrar eða Reykjavíkur til þess af eigin sjón og raun að kynnast starfsemi á vegum samvinnuhreyfingarinnar og fleiri aðila. Voru fyrirtæki skoðuð, grein gerð fyrir starfsemi þeirra og með þeim hætti leitast við að koma nemendum í nánari snertingu við atvinnu- og við- skiptalífið og þau viðfangsefni, sem þar var verið að fást við. Jafnframt var beitt aðhaldi og leið- beiningum um sköpun heilbrigðra og menningarlegra lífshátta og virðingu fyr- ir þeim verkefnum, sem unnið yar að og búið sig undir. Kröfur voru gerðar um umgengnis- hætti í borðsal og klæðaburð í kennslu- stundum og við máltíðir, reglu í sam- bandi við svefn og matmálstíma, ekki síst að morgni og vakin rækileg athygli á nauðsyn þess að kunna að skipuleggja tíma sinn og nýta til þarflegra hluta þær tómstundir, sem gáfust frá náminu. I þessum efnum og mörgum öðrum er sneru að samskiptum og sambúð á heim- ilinu kom til kasta húsmóður og sannað- ist rækilega, að vel var ráðið, er ákveðið var að stofna til þessa starfs. í krafti þeirrar sérstöðu er hún hafði fékk hún oft það hlutverk að taka á og vinna úr ýmsum þeim vandamálum og aðstæðum, sem eðlilegra og léttara var fyrir hana að ræða og leysa vegna þess að þau sneru að sambúðinni á heimilinu frekar en nám- inu í skólanum. Grundvöllur skólans í Bifröst var og er samvinnuhugsjónin, meginmarkmið starfsins að búa nemendur undir starf á sviði viðskipta og félagslegrar þjónustu, en jafnframt efla með þeim skilning á þeim verðmætum, sem mölur og ryð geta ekki grandað og víðsýni hins menntaða manns, sem sífellt heldur áfram að bæta við þekkingu sína. Þessum markmiðum leitaðist skólinn Það er gott að grípa í handavinnuna, svona á milli, en hér eru f.v. Kristín Björnsdóttir, Sig- ríður Friðriksdóttir og Bjarney Gísladóttir. við að ná með því að opna augu nemenda fyrir þeim undirstöðum, sem menntun og þjóðlíf grundvallast öðru fremur á, með kynningu á menningu þjóðar og mannkyns, koma þeim það áleiðis í tungumálum, að þeir gætu átt samskipti við fólk og tileinkað sér fróðleik á er- lendum tungumálum og kynnu skil þeirra faglegu fræða, sem nauðsynleg voru til þess að fást við verslun og við- skipti og veita forystu á því sviði. Ekki má þar gleyma fræðslu um samvinnu- hreyfinguna, einkenni hennar og sögu og almennri félagsmálafræðslu. Þríþætt námsefni Eftir þessu greindist námsefni skólans í þrjá aðalþætti: tungumál: (danska, enska, þýska) var um það bil fjórðungur, almennar greinar: (íslenska, menningar- saga, samvinnusaga) í þeirra hlut kom annar fjórðungur, viðskiptagreinar: (bókfærsla, vélritun,
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160

x

Hermes

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hermes
https://timarit.is/publication/1070

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.