Hermes - 01.12.1988, Side 74
72
Guðmundur Ingi Kristjánsson. Útskr.
1932. Bóndi og kennari á Kirkjubóli í
Bjarnardal. Hefur gefið út nokkrar
Ijóðabækur og skrifað fjölda greina í
blöð og tímarit. Ljóðið Samvinnumenn
er úr bókinni Sólbráð sem út kom
1945.
Guðmundur Ingi Kristjánsson
Samvinnumenn
Samvinnumenn! íár er haldin hátíð.
Hugsað er margt um nútíð vora og þátíð.
Lœrið afþví, er enn með hug og höndum
heilsið þér nýjum degi og óskalöndum.
Framtíðarlandið opið stendur yður,
óskar og vonar, þráir, knýr og biður.
Hér er það skylda hlutverk sitt að finna,
hermaður þess og skáld ogfyrirvinna.
Dunar í eyrum íslendingabragur:
Ymjandi vél og bárusöngur fagur,
nýrœktarljóð og niður ríkra vatna.
Nú er sú öld, er land og hœttir batna.
Samvinnumenn! í verzlun vel þér unnuð.
Viðurkennt er, hve margt og gott þér kunnuð.
Gefið nú gaum að útveg, iðn og bcendum.
Er ekki bráðum þeirra hjálp í vœndum?
Víða þér sjáið sœrðar þjóðir standa.
Samvinnan þarfað ná á milli landa
til þess að grœða lönd og lýði afnýju,
lífstrúnni gefa skilning, þrótt og hlýju.
Samvinnumenn! Pær hvíla íhöndum yðar,
hugsjónir brœðralags og vinnufriðar.
Gróandi lífsins er íallra vonum.
Yður mun verða trúað fyrir honum.
Oss er það skylt, sem íslendingar heitum,
alþýðumenn í bæjum og í sveitum,
bera sem hæst í ræðu, riti og verki
regnbogafánann, samvinnunnar merki.
ym
Á árinu 1984 dreymdi mig fyrst um að Samvinnuskólinn yrði
háskóli og síðan hefur verið að þessu stefnt, fyrst leynt og síðan
ljóst. Framan af virtust litlar líkur á að þetta gæti orðið fyrr en
um 1995 eða svo og þá var ljóst að þær framkvæmdir kæmu
ekki í minn hlut. Umskipti í afstöðu stjórnvaldanna og í al-
mennri þekkingu og viðhorfum til skólamála hafa orðið miklu
hraðari en ætla mátti og því hefur markið náðst fyrr en hugar-
órar stóðu til í byrjun.
Það er þannig varla tímabært að fara nú strax að spinna vef-
inn áfram til óljósrar framtíðar. Því verkefni sem nú er hafið
lýkur ekki fyrsta sinni fyrr en með brautskráningu fyrsta
rekstrarfræðingahópsins vorið 1990 með Guðs hjálp og góðra
manna. Þá liggur fyrir að endurmeta reynsluna og bæta það
sem bæta þarf eftir fyrstu reynd. Það mun því varla þurfa að
bæta verkefnunum á starfsmenn skólans alveg á næstunni,
einkum þegar vitað er að mörgum viðfangsefnum ber einnig að
sinna á sviði starfsfræðslunnar á sama tíma.
En menn geta þó levft sér að gefa hugarórunum lausan taum
svona í lesmálinu; þá flögrar þetta fyrir:
1. Afarmikil og stöðug vinna er framundan á sviði námsefnis,
undirbúnings kennara, endurskoðunar, kennslutilrauna
o.s.frv.
2. Átak verður að eiga sér stað varðandi bókasafn skólans.
3. Efna verður til tengsla við mjög mörg fyrirtæki vegna heim-
sókna og kynnisferða nemenda, vegna lokaverkefna o.þ.h.
4. Stöðugt verður að vinna að viðhaldi og endurbótum á tölvu-
búnaði, bæði hugbúnaði og vélbúnaði.
5. Bæta verður starfsaðstöðu, vinnustofur kennara, kennslu-
stofur o.fl. að Bifröst.
6. Trúlegt er að sú krafa verði gerð til skólans að hann standi
að mestu undir rekstri sínum fjárhagslega sjálfur með náms-
gjöldum og aðstoð ríkissjóðs; eins og er kostar ríkissjóður
um 2/3 rekstrarkostnaðar og Samband ísl. samvinnufélaga
um fjórðung; það sem á vantar greiða nemendur og þátttak-
endur starfsfræðslunnar nú.
7. Sennilega verður æskilegt að fjölga nemendum úr rúmlega
80 í u.þ.b. 100 að Bifröst ef húsnæði hamlar ekki; í þessu
skyni verður nauðsynlegt m.a. að taka fleiri sumarbústaði á
leigu en nú er.
8. Þegar nýi Samvinnuskólinn á háskólastigi hefur fest sig í
sessi verður tímabært að huga að tækifærum nemenda til
frekara framhaldsnáms en sjálfsagt munu einhverjir nem-
endur æskja þess. Fyrir liggur að þeim eru leiðir opnar í
stjórnunar- og viðskiptaháskólum nágrannalandanna
beggja vegna Atlantshafs. Rektor Háskólans á Akureyri
hefur einnig nefnt þann möguleika að rekstrarfræðingar frá
Bifröst geti haldið námi áfram þar nyrðra oglokið þar B.S.-
prófi í rekstrarhagfræði. Á hinn bóginn verður það varla tal-
in goðgá að Samvinnuskólamenn velti þeim möguleika fyrir
sér að Samvinnuskólinn sjái um þetta sjálfur með nýrri
Framhaldsdeild er brautskrái nemendur með B.S.-prófi ein
eða í samstarfi við aðra háskólastofnun. Á þessu stigi er
þetta þó aðeins hugarburður, órar sem þó hafa góð áhrif á
okkur í dagsins önn. Áhrifanna vegna er rétt að gleyma
þeim ekki hvað sem öðru líður.
IX
Ég óska Samvinnuskólanum til hamingju með afmælið og Sam-
vinnuskólamönnum öllum óska ég til hamingju með afmælis-
barnið.
Fari vel mun Samvinnuskólinn standast umskipti veraldar-
innar alveg eins og skólinn eflist við eigin umbyltingar.