Helgafell - 01.06.1942, Blaðsíða 11
HELGAFELL
TÍMARIT
UM BÓKMENNTIR OG ÖNNUR MENNINGARMÁL
!. ÁRG. JÚNÍ—ÁGÚST 1942 4.-6. HEFTI
Innan garðs og utan
NOREGSSÖFNUNIN Noregssöfnunin um Iand allt nemur um 250 þús. króna, þegar
þetta er ritað. Af framlögum, sem sérstaka athygli vekja, er skylt
að nefna 1000 krónur frá einu fámennasta hreppsfélagi landsins, Þingvallahreppi, er gekk
þannig á undan öðrum bæja- og sveitafélögum með góðu eftirdæmi, 25 þús. krónur frá
bæjarsjóði og bæjarútgerð Hafnarfjarðar, 100 þús. krónur frá bæjarsjóði Reykjavíkur og
verðmætt málverk frá Jóni Engilberts, eftir hann sjálfan.
Það hefur þegar komið fram, að söfnunarhugmyndin nýtur samúðar allra sæmilegra
manna, en þó má ráða af upphæðum þeim, er söfnuninni hafa borizt frá sumum helztu
stríðsgróðafyrirtækjunum, að þrátt fyrir góðan hug hafa forráðamenn þeirra ekki enn gert
sér ljóst til hlítar, að hér er um eitt af stórmálum vor íslendinga sjálfra að ræða. Ef til
vill ríður íslenzku þjóðinni ekki á öðru fremur, en að hún neyti þess réttar, sem hún hefur
til að gera skyldu sína í sameiginlegri baráttu frjálshuga þjóða fyrir mannúð og menningu,
með þeim hætti, að henni auðnist að verða annað og meira í augum sjálfrar sín og ann-
arra en aligæs ógæfunnar að fengnum friði. Hlutdeild vora eigum vér fyrst og fremst að
miða við það, að oss sjálfa muni um bana, en til þess að svo geti orðið, verður þátttaka
vor í Noregssöfnuninni að aukast og margfaldast, nýir stórgefendur að bætast í hópinn,
og þeir hinir fyrri gefendur velmegandi, sem ekki hafa gert sér fulla grein fyrir mikilvægi
málsins í upphafi, að endurskoða hjörtu sín og fjársjóðu með jákvæðum árangri.
Fullvíst má telja, að Alþingi samþykki í sumar eða haust rausnarlega fjárveitingu í
þessu skyni, og vert væri athugunar, hvort þingið ætti ekki að taka ábyrgð á verðgildi söfn-
unarfjárins með núverandi gengi, með því að nokkurs ótta hefur gætt um það hjá almenn-
ingi, að svo geti farið, að sjóðurinn verði orðinn lítils virði, er til hans á að taka.
LISTAMANNA- Á aðalfundi Bandalags íslenzkra listamanna 2 maí í vor sem leið, var
ÞING samþykkt tillaga frá Páli ísólfssyni þess efnis, að Bandalagið beitti
sér fyrir því, að haldið yrði íslenzkt listamannaþing á hausti kom-
anda. Var þegar þar á fundinum kosin nefnd til að annast undirbúning þingsins, og
kjörnir í hana fulltrúar frá öllum deildum Bandalagsins. Nefnd þessi hefur unnið að
málinu síðan og haldið marga fundi. Er Páll ísólfsson formaður hennar, en ritari Helgi