Helgafell - 01.06.1942, Blaðsíða 26
160
HELGAFELL
víðar, hin mestu harðindi til lands og sjávar. Þá féll aska úr gosum á
Mývatnsöræfum, en illræmdastur er frostaveturinn mikli (1882) og mislinga-
sumarið. Árið 1887 hættu þau hjón búskap og leystu upp heimilið fyrir fá-
tæktar sakir. Var börnunum komið fyrir víðs vegar, nema Magnúsi. —
Hann fór með foreldrum sínum að Miðfirði, en þar gjörðist Stefán nú
vinnumaður. Stefán drukknaði 25. maí 1887, skömmu eftir, að hann fór
að Miðfirði, í Miðfjarðará. Var hann að flytja björg til bóndans í Kverkár-
tungu, sem tók þar við búi af honum. Kverkártunga stendur nokkurn spöl
upp af MiðfirSi, í kverkinni, sem myndast milli Kverkár og MiSfjarðarár.
Voru ár þessar vatnsmiklar og oft ófærar yfirferðar vor og haust í leysing-
um. Á harðindaárunum hafði Stefán orðið aS leita á náðir hreppsnefndar-
innar, og stóð í nokkurri sveitarskuld, þegar að hann andaðist. Sveitarstjórnin
taldi sig því eiga ráðstöfunarrétt á því litla, sem Stefán átti. HöfuSeignin
voru 6 ær, einn gemlingur og eitt hross. Svo mikið lá hreppsnefndinni á
að koma þessum litlu eignum hans í peninga, að hún efndi til uppboSs, með-
an hann lá ennþá á líkbörunum. Þó harðýSgi væri mikil í garð þurfamanna
um þessar mundir, munu þessar aðfarir vera einsdæmi, og mæltust þær mjög
illa fyrir. ÁSur hafði Stefán fengið aS finna til þess, að það lá ekki laust, sem
hreppsnefndin hélt. Einhverju sinni þegar heimili hans var með öllu bjarg-
arlaust, var honum algjörlega neitað um nokkra hjálp, og leitaði hann þá til
selstöðukaupmannanna á VopnafirSi, en
á Kolbeinstanga
er kvíðvænleg ganga
körlunum norðan af Strönd.
Þeir áttu sitt ráð
undir Orum Wulfs náS,
enda leitaði Stefán náðarbrauðsins þangað árangurslaust. Hljóp þá Magnús
á Læknisstöðum á Langanesi undir bagga með honum og lánaði honum
sex krónur fyrir mat, svo að hann gæti bætt úr sárustu þörfinni.
Eftir andlát Stefáns fór Ingveldur bústýra að ÞorvaldsstöSum, til Þór-
arins Árnasonar bónda, og fór Magnús með henni. EignuSust þau Þórarinn
eina dóttur og bjuggu saman þangaS til Ingveldur andaðist árið 1912.
Magnús ólst upp að ÞorvaldsstöSum, en var þó víðar, meðan hann var
ennþá ungur. Innan við fermingu var hann að Bakka í BakkafirSi hjá Valdi-
mar stjúpsyni Þórarins Hálfdánarsonar. Þórarinn var móðurafi Gunnars
Gunnarssonar skálds. í riti sínu S/jip heiSríkjunnar gengur Þórarinn undir
dulnefninu Ketilbjörn Hranason. Þótti Magnúsi honum lýst með ágætum,
og fleiri mönnum, sem hann þóttist kannast við úr VopnafirSi.
Strax á barnsaldri var Magnúsi haldið að vinnu. Gætti hann fjár og
vann önnur störf, sem til féllu, og stundaði sjó. Bernskuheimili sínu hefur