Helgafell - 01.06.1942, Blaðsíða 12
146
HELGAFELL
Hjörvar. Framkvæmdarstjóri undirbúningsnefndar hefur verið ráðinn Ragnar Ólafsson, lög-
fræðingur Sambands ísl. samvinnufélaga.
Þó að störfum nefndarinnar sé hvergi nærri lokið og enn síður undirbúningi þeim,
er framkvæmdarstjórinn hefur með höndum, má telja líklegt, að þinghaldið fari fram
með þessum hætti í meginatriðum:
Þingið verður sett í Reykjavík, þegar alþingiskosningar eru um garð gengnar í haust,
og kyrrð komin á hugi manna og dagfar. Ákveðið hefur verið, að þingsetning fari fram
á sunnudegi í hátíðasal háskólans, en þingslit að viku liðinni. Fyrirhuguð dagskrá þings-
ins má teljast þríþætt, auk almennrar myndlistasýningar, sem opin verður allan þingtím-
ann.
Ber þess fyrst að geta, að íslenzk nútímalist verður kynnt almenningi í samkomuhús-
um bæjarins alla daga þingvikunnar, með upplestri skálda og rithöfunda úr eigin verkum
í lausu máli og bundnu, hljómlist og leiklist til skiptis. Munu upplestrarnir fara fram í
hátíðasal háskólans. Vál á leikriti til hátíðasýningar hefur ekki verið fullráðið enn, en lík-
legt er, að fyrir því verði annaðhvort „Mörður Valgarðsson" eða „Dansinn í Hruna.“
Þá má telja víst, að samningar takizt við útvarpsráð um flutning útvarpsefnis á veg-
um Bandalagsins á hverju kvöldi alla vikuna og kvöldvöku að skilnaði. Verður hér um
að ræða upplestur skálda og rithöfunda, erindi um einstakar listgreinir og íslenzka lista-
starfsemi yfirleitt, auk hljómlistar á hverju kvöldi, að meiru eða minna leyti. Ekki er senni-
legt, að útvarpinu verði lagt það til lýta af hlustendum þess, þótt útvarpstími Banda-
lagsins vcrði ekki við neglur skorinn þessa einu viku, enda ekki ástæða til annars en að
vænta víðsýni og velvildar af útvarpsráði, og þá eigi sízt formanni þess, þegar samtök
listamanna eiga hlut að máli.
I þriðja lagi munu listamennirnir sjálfir halda daglega þingfundi, þar sem rædd verða
hugðarefni og hagsmunamál þeirra. Verður „listamannadeilan" svonefnda vafalaust tekin
til athugunar á þinginu og bornar fram og samþykktar tillögur til umbóta á því ástandi,
sem nú ríkir í opinberri ráðsmennsku gagnvart íslenzku listalífi. Er það í samræmi við
samþykkt á síðasta aðalfundi Bandalagsins, að þessi mál verði athuguð og afgreidd á lista-
mannaþinginu í haust, því að á aðalfundinum í vor var samþykkt svohljóðandi ályktun
með öllum greiddum atkvæðum:
„Bandalag íslenzkra listamanna skorar á öll sambandsfélögin og bvern einstakling
innan þeirra að vinna að því, að á Alenntamálaráði Islands verði gerðar þœr breytingar,
að það verði fœrt um að rcekja það hlutverk sitt, að styðja og efla bókmenntir og listir t
landinu. Ennfremur skorar B. I. L. á öll sambandsfélög sin að beita sér af alefli gegn and-
legri kúgun í hvaða mynd sem htin birtist".
Ályktun þessi eða efni hennar var birt í einu dagblaði Rcykjavíkur að minnsta kosti,
þegar eftir aðalfundinn, en þar sem íormaður Menntamálaráðs hefur staðhæft í blaði sínu,
að ekki hafi vcrið á listamannadeiluna minnst á síðasta aðalfundi, er hún prentuð aftur
honum til leiðbeiningar, og ættu menn ekki að gera sér leik að því að efast um, að hann
telji sér skylt að hafa bað er sannara reynist.
Rétt er að geta þess, að eins og stcndur horfir óvænlega um ákjósanleg húsakynni
fyrir myndlistasýninguna, en þó mun óhætt að fullyrða, að hún muni ekki verða látin
niður falla, hverju sem fram vindur, enda mundi svipur listamannaþingsins missa mikils
í við það. Félag myndlistamanna hafði að vísu fengið loforð hjá bæjarráði Reykjavíkur um
lóð undir sýningarskála, með þeim skilyrðum að rýmt yrði af lóðinni, ef krafist væri,