Helgafell - 01.06.1942, Síða 64
198
HELGAFELL
hve ástúð, er hömlur háðu,
með heift hennar var í förum,
hve augu hennar angur tjáðu,
pótt ofmœlin brynnu á vórum,
hve viðkvcem og Ijúf hún leiddi
hinn litla son þeirra beggja,
hve kvöldmild hún klæði breiddi
t kyrrðinni á rekkju tveggja,
og hversu, er að baki baðma
lauk bliknaður dagur flótta,
þau fléttuðu sig l faðma
í fullsælu og Drottins ótta.
Og Adam brá þegar á eril,
og einstöku blóðdropa sá hann
á strjálingi um flóttans feril,
— að Fljótinu helga lá hann.
Hann leit hana á bakkans barmi
með barnið Kain til hliðar,
i andanum hrjáða af harmi
og heiftúð, án stundlegs friðar.
Til Evu hann skundaði að ánni:
„Mig iðrar að slá þig og særa!
— nú þvæ ég þér blóð af bránni
úr blessaðri Evfrat, kæra!
við brjóst þér lauf skal ég leggja,
sem lækna þitt særða hjarta,
og taka byrði okkar beggja
á bak mitt, án þess að kvarta!
Þú ein getur létt mér amann
við útlegðarkjörin hörðu,
við tvö eigum sælu saman
og sorg á þessari jörðu,
hvar snöru okkur virðist vefa