Helgafell - 01.06.1942, Page 75

Helgafell - 01.06.1942, Page 75
TVÆR MYNDIR 205 menntamönnum og urÖu mjög vinsæl meðal almennings, þótt þau séu nú minna metin en áður voru. Enginn getur um það sagt, hversu mikið í hon- um hefur búið eða úr honum hefði getað orðið, ef hann hefði notið hæfi- leika sinna til hlítar og náð fullum þroska. Þessar tvær myndir eru ekki annað en spurningarmerki. Hvað hefði orðið úr Leo Tolstoj í kjörum Kristjáns ? Þegar ég gaf út íslenzka lestrarbók fyrir mörgum árum, minntist ég laus- lega á, að Benedikt Gröndal hefði haft ill áhrif á smekk Kristjáns og stíl, og þykktust ýmsir menn við þetta, sumir vegna Gröndals og sumir fyrir hönd Kristjáns. Ur því að ég fór að skrifa þessar línur, þykir mér rétt að nota tækifærið til þess að tilfæra fáeinar klausur, sem Gröndal skrifaði um Kristján í IV. ár Gefnar, 1873. Þær eru úr grein, sem heitir „íslenzkar bækur og blöð“, og býst ég við, að fáir lesendur Helgafells séu henni nákunnugir. „Kvæðið ,,Helhríð“ líkist kvæðasniði Kristjáns Jónssonar, fullt af stór- yrðum og hræðilegum spennlngsskap, svo allt verður svo fjarskalegt, að skáldskapurinn er eins og skæðadrífa, sem er ógurleg í lofti að sjá, en verður að engu, þegar niður kemur“ (37. bls.). „Lökust (þ. e. í 2. útg. Snótar) eru samt kvæði Kristjáns Jónssonar, sem vér drápum á að framan, og höfum vér þar tekið fram og lýst þeim skáld- skaparanda, þar sem orðaglamrið ber hugmyndimar alveg ofurliði, þó svo líti út sem mörgum heima hafi þótt ekki alllítið til þessa koma, og er það skekkja í tilfinningunum og rangur skáldskaparsmekkur“ (42. bls.). ,,Hvað kvæðunum sjálfum (þ. e. Ljóðmælum Kristjáns) viðvíkur, þá hljótum vér nú að taka það aftur, sem vér sögðum hér að framan um skáld- skap Kristjáns; vér þekktum hann þá, þegar það var ritað, einungis af kvæðunum í Snót“ (43. bls.). ,,Á flestum kvæðum Kristjáns í Snót sést augljóslega, að hann hefur þekkt ,,öfgar“ Gröndals, og ekki sízt á því kvæði, er nefnist Dettifoss, því það er beinlínis eftirhljómur eða bergmál af kvæðinu um halastjörnuna 1858, sem að höfundinum fornspurðum var prentað bæði í Nýjum Félagsritum og í Þjóðólfi og þótti allviðunanlegt kvæði þeim, sem ekki brigzluðu höfundi þess um eintómar öfgar“ (43.—44. bls.). Gröndal hrósar útgefanda kvæða Kristjáns, Jóni Olafssyni, fyrir verk hans, en finnst hann gera of mikið úr Kristjáni að setja hann ,,hærra í röðina en Jónas Hallgrímsson“ (þeim dómi sleppti J. Ö. úr ritgerð sinni í 2. útg.). -----,,Svo vér nú sýnum útgefandanum svart á hvítu, hversu ófullkomin sum kvæðin eru, skulum vér taka til dæmis kvæðið um dauða Þormóðar Kolbrúnarskálds, sem kveðið er í alkristnum sálmatón, en þó með samsætis- söngva-lagi. Þó Þormóður væri kristinn að nafninu til, þá var hann alheið- inn í anda.------Enginn maður með hreinum og verulegum skáldasmekk
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Helgafell

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgafell
https://timarit.is/publication/1076

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.