Helgafell - 01.06.1942, Page 81

Helgafell - 01.06.1942, Page 81
DRAUMUR TIL KAUPS 211 kunnáttuleysi hans í að tala ensku, þótt hann geti lesið hana. Vonbrigði hennar gera hana geðstirða á ný, kvart- anir hennar verða að beiskum ásökun- um, öll vizka hans er þá gagnslaus, þegar til á að taka. En honum tekst að bjarga heiðri sínum: Hann getur kennt byrjendum ensku. Hún fellst á það sem neyðarúrbót, útvegar honum tvo kvennemendur og ákveður sjálf kennslugjaldið. En þessir tímar krefjast sérstakrar hæfni hjá þeim, sem vilja draga gull- fiskinn úr djúpi þeirra. Hann á ekki þessa hæfni til, er of forneskjulegur, getur ekki kennt þessum stúlkum, sem vilja ráða því, hvað þær kaupa. Þær hlusta ekki á útskýringar hans á óá- kveðnum greini, en heimta að fá að vita, hverju þær eigi að svara, þegar þær séu ávarpaðar: Da-rling! Kenn- arinn fer hjá sér og fullyrðir, að eng- inn Englendingur ávarpi stúlku þann- ig við fyrstu sýn. En þær vita betur, refjast um að borga fyrstu kennslu- stundina og koma aldrei aftur. Tilraun með aðra nemendur tekst lítið betur, fyrirtækinu er hætt. Stóra frúin er kvalin af óþolinmæði, hamslaus af vanmáttugri bræði. Alls staðar örlar á tækifærum til auðssöfn- unar, en þau líða hjá, hvað mann hennar snertir, út í tómið. Sjálf er hún farin að sauma vasaklúta með enskum áletrunum handa hermönnunum, sem hafa lítið annað að gera en leita uppi slíka minjagripi og senda heim til sín þessi sýnishorn af þjóðlegum, íslenzk- um heimilisiðnaði. Listaskrifarinn lít- ur með hryllingi á klunnalega stafina á þessum ósmekklegu sneplum, en hún hamast við verkið, meðan hugur henn- ar fálmar stirðlega en sótthitakenndur eftir stærri viðfangsefnum. Öfund og ágirnd gera líf þessarar dagfarsgóðu konu galli blandið, hún tekur að ger- ast miskunnarlaus við mann sinn, heimtar, að hann fari í grjótvinnu til Bretanna ellegar spreyti gáfur sínar á einhverju gróðabralli. Fram að þessu hefur hann lagt trún- að á hinar vondu fréttir hennar, verið henni auðsveipur og reynt að gera sitt til að verja heimilið hruni. En nú fer eitthvert þvermóðskusæði að skjóta frjóöngum í sál þessa friðsama spek- ings. Hann telur kröfur hennar á- stæðulausar, sprottnar af rangri hugs- un, kveður það ósæmilegt að lifa á hvalrekum, hver maður á sér ævistarf, sem hann á ekki einungis að lifa af heldur og fyrir. Honum dettur ekki í hug að víta það, þótt fólk grípi atvinnu feginshendi eða geri kaupkröfur vegna dýrtíðar, en ástríðu hennar til gróða- bralls flokkar hann undir siðferðis- veilu, sem hún verði að sigrast á. — Þessar röksemdir róa ekki skap henn- ar, sannfæra hana ekki, heldur móðga, hugarstríð hennar eykst, hún reynir að beita áhrifum sínum utan heimilisins máli sínu til framdráttar. En hann hættir að hafa áhyggjur út af öðru en því raski, sem þessi styrj- öld og þetta hernám hafa á venjur hans. Honum finnst þessi litla borg sífellt vera að minnka. Slík rangfærsla
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Helgafell

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgafell
https://timarit.is/publication/1076

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.