Helgafell - 01.06.1942, Side 107

Helgafell - 01.06.1942, Side 107
BÓKMENNTIR 237 um fræðum. Þessi fimm arka bæklingur lætur ekki mikið yfir sér, en í honum er fólgið mikið og merkilegt starf, efnið kannað til þrautar og hugsað til hlítar, svo að ritið varpar nýju ljósi á eitt helzta vandamál forníslenzkrar bók- menntasögu og er þar að auki djúpsæ og and- rík ritskýring á einhverju fullkomnasta lista- verki íslenzkra bókmennta. Hrafnkelssaga hefur til þessa verið talin með- al áreiðanlegustu Islendingasagna um söguleg sannindi, svo að ýmsir hafa jafnvel tekið hana fram yfir Landnámu, þar sem á milli ber um sömu frásagnir. Hefur sagan einnig verið önd- vegisdæmi þess, hvílfkum þroska munnleg frá- sagnarlist hafi náð hér á landi. Það var því ekki ráðizt á garðinn, þar sem hann var lægst- ur, þegar Sigurður Nordal tók að grafast fyr- ir upptök Hrafnkelssögu. Það er víst, að þeg- ar hann hóf þá rannsókn, hafði hann enga oftrú á óhagganleik munnmæla og staðreynda- gilda íslendingasagna. En allt um það munu niðurstöður hans um þessa sögu hafa komið honum á óvart, þvf að djörfustu bókfestufylgj- endur hefði varla getað um þær dreymt. — Hér er ekki rúm til að rekja í einstökum at- riðum rannsóknarháttu hans og ályktanir. Sög- una dæmir hann bæði eftir ytri og innri rök- um: samanburði við aðrar heimildir og sér- kennum þeim, er finna má með því að líta á söguna eina saman. Hin ytri rök benda m. a. til þess, að tvær af aðalpersónunum, er sagan fær alls ekki án verið, þeir Þjóstarsynir, hafi aldrei verið til, og uppgangur Hrafnkels og ríki hans í Fljótsdal sé einber skáldskapur. Rit- aðar heimildir virðist höfundur lítið hafa not- að og engar um aðalviðburði sögunnar. En þar sem hann aflar sér þaðan einhverra fanga, svo sem úr Landnámu og Droplaugarsonasögu, fer hann með það efni allt eftir eigin geðþótta, án þess að hirða um sannfræði þess. Ornefni ýmis á sögustöðunum bera heiti sumra per- sónanna og hafa því hingað til þótt styðja mjög söguleg sannindi Hrafnkelssögu, en Nor- dal færir að því sterkar líkur, að mörg þessara örnefna, sem á annað borð eru eldri en rit- un sögunnar, muni ekki gerð eftir mönnum þeim, er sagan fjallar um, heldur sé þessu öf- ugt farið, að höfundur hafi skírt sumar per- sonur 8Ínar eftir gömlum örnefnum til að auka þeim tilvistarlíkur og gera söguna þannig senni- legri og áhrifameiri. Það munu því fleiri en Þjóstarsynir einir vera hugarfóstur höfundar. Innri einkenni sögunnar sjálfrar hníga mjög að sama ósi. Samsetning hennar og frásagn- arbáttur bera öll einkenni sjálfráðs skáldskap- ar; atburðir hnitaðir saman í órofa beild; aldrei vitnað í mÍ8sagnir manna um söguefnið; eng- ir útúrdúrar vegna fróðleiksefnis, er höf. ætti erfitt með að finna stað í frásögn sinni; sam- töl mörg og tiLvör manna oft löng, ólík því, sem ætla má að geymzt hefði óbreytt í arf- sögnum. En mest kemur til mannlýsinga sög- unnar. Þær eru gerðar af manni, sem hefur mikla lífsreynslu, djúptæka mannþekkingu, fá- gæta glöggskyggni og föst listatök á efni sínu. Þar er að verki skapandi listamaður, óvenju- legt skáld. Helztu niðurstöður Nordals um söguna eru í stuttu máli þær, að höfuðviðburðirnir, er hún hermir frá, hafi aldrei gerzt, og sumar per- sónur hennar hafi aldrei verið til. Sagan beri þess engin merki að vera runnin af munnmæl- um, heldur sé hún verk eins höfundar, sem hafi alls ekki ætlað sér að segja sanna sögu, heldur að semja skáldrit. Auðvitað má ekki nota þessar niðurstöður um Hrafnkelssögu sem algildan dóm um aðrar Is- lendingasögur, enda tekur Nordal það skýrt fram, þar eð hann telur sögurnar einmitt sund- urleitari og bera persónulegri höfundarsérkenni en menn hafa hingað til fengið augu á fest. Það verður því að kanna hverja sögu sérstak- lega. En hér er fengið fullkomið fordæmi þeirra rannsókna, og um leið hefur bókfestukenning- unni bætzt f undirstöður sínar traustasti steinn- inn, sem þar hefur verið lagður. En rit þetta á ekki aðeins erindi til fræði- manna í forníslenzkri bókmenntasögu og áhuga- manna um upptök Islendingasagna. Það er einn- ig hinn mesti fengur þeim mönnum, er temja vilja sér lestur fagurra bókmennta svo, að þeir hafi af honum sem fullkomnast yndi og sem dýpsta nautn, auðgist sjálfir og vaxi sem mest af viðkynningu sinni við listaverkið. Takið ykk- ur í hönd Hrafnkelssögu, sem að hyggju Nor- dals er, „þegar á allt er litið, ein hin fullkomn- asta stutta bóksaga (short novel), sem til er í heimsbókmenntunum". Lesið hana með gaum- gæfni nokkrum sinnum (hún er aðeins 1000 línur að lengd); hugleiðið hvern þátt sögunnar sérstaklega, atílinn, einkenni hans, ágæti hans og veilur, bygginguna, hverjum listatökum sé við hana beitt og hvort þar sé nokkra brota- löm að finna, en gerið ykkur einkum grein fyrir mannlýsingunum, eðliseinkennum persón- anna og skapgerðarþróun og hverjum brögð- um höfundur beitir við lýsingu þeirra. Sérhver vex mest á þv! að hugsa um söguna sjálfur,
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120

x

Helgafell

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgafell
https://timarit.is/publication/1076

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.