Morgunblaðið - 24.01.2013, Qupperneq 35

Morgunblaðið - 24.01.2013, Qupperneq 35
MINNINGAR 35 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. JANÚAR 2013 ✝ Halldór Þor-kell Guð- jónsson fæddist í Reykjavík 27. apríl 1939. Halldór lést á Landspítalanum við Hringbraut á gamlársdag, 73 ára að aldri. Foreldrar hans voru hjónin Ólöf Bjarnadóttir húsfreyja úr Grundarfirði og Guðjón Guðmundsson bifreiða- smiður frá Miðdal í Kjós og var hann næstelstur fimm barna þeirra. Elstur er Bjarni, en hin eru tvíburarnir Þorbjörn og Guðrún, sem er látin, og Jóna. Eiginkona Halldórs var Mary Therese Butler, Vestur-Íri, fædd og uppalin í Fall River í Massachusetts. Mary var kenn- ari að mennt, en starfaði síðustu tíu ár ævi sinnar í utanrík- isþjónustu Bandaríkjanna. Mary lést árið 2000. Börn þeirra Hall- dórs eru Brynja Elisabeth og Hrafn Patrick. Brynja, sem fyr- ir skemmstu lauk doktorsprófi í menntavísindum, gegnir doktorsstöðu við Mennta- vísindasvið Háskóla Íslands. Sonur hennar er Þorkell Niku- lás. Hrafn er búsettur í Minnea- Íslands. Hann var stundakenn- ari við Menntaskólann við Hamrahlíð 1969-’70, aðjúnkt við stærðfræðiskor HÍ 1969-’72 og dósent þar 1972-’75. Hann gegndi stöðu kennslustjóra Há- skóla Íslands um 15 ára skeið, frá 1975 til 1990, en eftir það dósentsstöðu við tölv- unarfræðiskor raunvís- indadeildar Háskólans frá 1991 til 2009, og var vorið 2010 stundakennari í tölvunarfræði. Hann kenndi stærðfræði í leyfi frá HÍ vormisserið 1994 við Há- skólann í Swazilandi í Afríku. Auk kennslustarfa sinna gegndi Halldór ýmsum trún- aðar- og stjórnunarstöðum inn- an Háskóla Íslands. Hann var fulltrúi Félags háskólakennara í háskólaráði 1974-’75, fulltrúi háskólaráðs í stjórn Reikni- stofnunar Háskóla Íslands 1976 og sat í kjörstjórn vegna rekt- orskjörs sama ár. Halldór var hugsandi maður, djúpvitur og greinandi, ekki að- eins á fræðasviði sínu heldur einnig á umhverfi sitt og sam- félag, siðfræðileg álitaefni og jafnréttismál. Hann hneigðist æ meir til heimspekilegra pælinga með árunum og las mikið á því sviði, einkum rit Hegels og Rawls. Hann þýddi og skrifaði fjölda greina í blöð og tímarit, ekki síst um stjórnarskrármál Íslendinga síðustu misserin, sem voru honum mjög hugleikin. Útför hans hefur farið fram í kyrrþey. polis, sérfræðingur í þarfa- og gagna- greiningu hjá Health Partners. Kona hans er Celia McCoy. Börn þeirra eru Ella At- hena og Fenris Þorkell. Að afloknu stúd- entsprófi frá MR 1959 hélt Halldór til Þýskalands og nam við Háskólann í Erlangen stærðfræði og eðlisfræði um tveggja ára skeið. Að því búnu kenndi hann við MR eitt ár, en hélt svo til Bandaríkjanna þar sem hann stundaði nám í stærð- fræði og eðlisfræði næstu fimm árin við University of Minne- sota. Hann var lektor við Gust- avus Adolphus College í St. Pet- er í Minnesota 1968-’69 og lauk í desember 1968 Ph.D.-prófi í stærðfræði, en leiðbeinandi hans var Erwin Engeler. Ber doktorsritgerð hans heitið An Investigation of Limitultrapro- ducts. Næsta ár starfaði Halldór sem sérfræðingur við stærð- fræðistofnun Háskólans í Münc- hen og frá 1969-1972 við stærð- fræðistofu Raunvísindastofnunar Háskóla Síðasta umræðuefni okkar Halldórs var eðli þeirra hug- taka sem gera okkur kleift að hugsa um veruleikann í því skyni að ná á honum fræði- legum tökum. Dæmin sem ég var með í huga voru ríki og fjöl- skylda. Halldór benti samstund- is á að þessi orð vísuðu á tvenns konar hugtök. Annars vegar safnhugtök, hins vegar heildar- hugtök. Hann tók orðið „skóg- ur“ sem dæmi. Það er dæmigert safnhugtak og gerir okkur kleift að hugsa fjölda trjáa og mis- munandi tegundir þeirra í ákveðinni einingu. En orðið „skógur“ er líka heildarhugtak sem gerir okkur kleift að skilja ákveðið náttúrukerfi sem þarf að hugsa í tengslum við önnur kerfi náttúru og samfélags. Síð- an bætti Halldór við og brosti: „Safnhugtökin koma að neðan frá reynslunni – heildarhugtök- in að ofan frá hugsuninni – en þau mætast aldrei. Svartsýni mín birtist í þessu.“ Ég segi frá þessu af einni til- tekinni ástæðu. Hún er sú að engum manni hef ég kynnst sem var eins áhugasamur um fræðilegar samræður og Hall- dór. Í rúm 40 ár hefur hann gengið um háskólalóðina og stundað fræðilegar samræður við ótal einstaklinga, stúdenta, kennara og annað starfsfólk. Samræðurnar tengdust að jafn- aði efnum sem hann sjálfur var að hugsa um og þá var hann óþreytandi við að fræða viðmæl- anda sinn. Halldór var ótrúleg- ur lestrarhestur og hafsjór af fróðleik um aðskiljanlegustu mál. En tilgangur samræðunnar var samt ævinlega að hræra í huga viðmælandans og hvetja hann til að hugsa um efnið og taka afstöðu til þess. Iðulega reyndi þetta á viðmælanda Halldórs sem gekk að því vísu að hann hefði jafn brennandi áhuga á efninu og Halldór sjálf- ur. Halldór taldi að skortur á skilningi mikilvægra hugtaka væri það sem stæði menningu okkar og samfélagi mest fyrir þrifum. Hér ættu fræðimenn, ekki síst heimspekingar og hag- fræðingar, mikið verk óunnið við að móta og skýra fræðileg hugtök, miðla þeim til almenn- ings og sjá þar með til þess að réttum vinnubrögðum væri beitt við úrlausn samfélagslegra verkefna. Sjálfur gekk Halldór á undan með góðu fordæmi þeg- ar hann kom til starfa í Háskóla Íslands sem kennari í stærð- fræði árið 1969. Hann átti mik- ilvægan þátt í að endurskipu- leggja stjórnsýslu Háskólans og tók að sér árið 1975 að stýra einum helsta þætti hennar, kennslusviðinu, en það gerði hann um 15 ára skeið. Hér beitti hann sér fyrir nýmælum í stjórnsýslu sem átt hafa mikinn þátt í þróun Háskólans allar götur síðan. En hugur Halldórs varðandi Háskólann var ekki bundinn stjórnsýslu eingöngu. Hann sá Háskóla Íslands fyrir sér sem eina af meginundirstöðum ís- lenska ríkisins við hlið löggjaf- ar-, dóms- og framkvæmda- valds. Hugsjón Halldórs og trú var sú að vísindin, sem öll starf- semi háskólafólks er helguð, myndu lyfta menningu okkar og stjórnmálum í æðra veldi miðað við það sem nú er: Þekkingin, fræðileg, tæknileg og siðferðileg í senn, væri það afl sem úrslit- um réði um örlög heimsins. Halldór Guðjónsson var merkilegur hugsuður, góður kennari og góður vinur. Hans verður sárt saknað. Páll Skúlason. Ég hitti Halldór fyrst í sept- ember 1982 er ég mætti til vinnu í Háskóla Íslands fyrsta sinni sem starfsmaður þar. Hann var kennslustjóri og ég ráðinn sem prófstjóri og var hann minn yfirmaður. Við byrj- uðum samstarfið með því að Halldór bauð upp á kaffi í Nor- ræna húsinu. Þar ræddum við saman um starfsemi háskólans og ýmis málefni sem tengdust skólanum og háskólum almennt vestan hafs og austan og könn- uðum hugðarefni hvor annars, einkum þau er tengdust heim- speki og rökfræði og skilgrein- ingu hugtaka. Halldór reykti vindil og leið tíminn án þess að maður tæki eftir því. Þannig var það reyndar iðulega æ síðan og umræðuefnin aldrei léttvæg. Hann hafði ávallt eitthvað í huga, las mikið og var óþreyt- andi við að velta upp marg- víslegum málefnum og ræða þau í þaula. Hegel var sjaldan langt undan. Við Systa eigum minningu um góða vináttu Hall- dórs og Mary. Hann bar hag Háskóla Ís- lands mjög fyrir brjósti og var í því efni ódeigur við að brydda upp á nýmælum sem horfðu til framþróunar skólastarfsins. Þannig stóð Halldór framar öðrum fyrir því að nemendabók- hald háskólans var tölvuvætt á árunum 1977-78 og sömuleiðis að tekið var upp einingamat námskeiða. Var Háskóli Íslands þar töluvert á undan öðrum norrænum háskólum. Hann hvatti jafnframt mjög til inn- leiðingar notkunar tölva í gjör- vallri starfseminni í árdaga tölv- unnar. Halldór beitti sér fyrir samræmdri framsetningu kennsluskrár fyrir háskólann í heild og margvíslegum umbót- um í skólastarfinu, í senn hvað varðaði skipulag, gæði kennslu, aðbúnað og réttindi nemenda. Eftir að hann lét af starfi kennslustjóra 1989 tók hann aftur til við kennslu og sem kennari þótti hann einkar nat- inn og laginn við að skýra flókin viðfangsefni. Og samræður okk- ar héldu áfram. Fyrir honum var menntun forsenda siðaðs samfélags og vísindin nauðsyn- legur grunnur menningar í þágu farsældar þess. Halldór bjó yfir andlegu þreki sem ekki kiknaði í barátt- unni við sjúkdóminn sem að lok- um bar hann ofurliði. Áhuginn á hugðarefnunum dofnaði ekki. Í síðasta samtali okkar tveimur dögum fyrir andlát hans var komið víða við – og ekki nein merki þess hjá honum að stund hans væri að linna. Við starfs- fólk Háskóla Íslands fyrr og nú kveðjum góðan vin og sam- starfsmann sem sjónarsviptir er að. Við vottum börnum Hall- dórs, Brynju og Hrafni, og systkinum hans okkar dýpstu samúð. Þórður Kristinsson. Fallinn er frá á 74. aldursári fyrrverandi vinnufélagi minn og kennari, Halldór Guðjónsson stærðfræðingur. Halldór varði stærstum hluta starfsævi sinnar í að kenna stærðfræði, lengst af hjá Háskóla Íslands. Hann kom frá námi erlendis þrítugur að aldri 1969 og var þá strax ráð- inn sérfræðingur á stærðfræði- stofu Raunvísindastofnunar og kennari í stærðfræði við verk- fræði- og raunvísindadeild. Hann varð svo dósent við stærðfræðiskor 1972. Árið 1975 varð hann kennslustjóri HÍ en kenndi áfram stærðfræði með því starfi fyrstu árin. Hann var kennslustjóri í 15 ár, en árið 1991 kom hann aftur í kennsl- una, nú sem dósent í tölvunar- fræðiskor, en hún hafði klofnað út úr stærðfræðiskor 1988. Halldór var svo dósent við tölv- unarfræðiskor til sjötugs og hélt reyndar áfram að kenna til 2010. Hafa ófáir tölvunarfræði- nemar notið kennslu Halldórs í rökfræði, siðfræði, stærðfræði, formlegum málum, reiknanleika og ýmsum skyldum fræðum. Halldór var formaður skorar- innar 1999-2000. Ég kynntist Halldóri um leið og ég hóf nám í HÍ haustið 1977. Ég kunni strax vel við þennan kennara minn í stærð- fræðigreiningu. Hann var íhug- ull og fór sér að engu óðslega, en kunni efnið vel og gekk vel að koma því frá sér. Tveimur árum seinna kenndi hann mér aftur, námskeið sem þá var kallað graffræði en heitir nú netafræði. Mér fannst alltaf stafa hlýju og rósemd frá Hall- dóri og kunni vel að meta sam- tölin sem við áttum öðru hvoru um ýmis hugðarefni mín og hans. Svo fékk ég tækifæri til að tala enn oftar við hann og kynnast honum nánar þegar ég fór sjálfur að vinna í tölvunar- fræðiskor í byrjun ársins 2006. Það var gott að vera með hon- um á fundum í skorinni þar sem stundum þurfti að leysa erfið mál. Hann var næmur á að greina kjarna máls frá auka- atriðum. Hann sat og hlustaði á menn og svo datt honum oft í hug snjöll lausn á málinu. Al- úðin sem Halldór lagði í kennsl- una þessi síðustu ár var síst minni en þegar hann kenndi mér fyrir 35 árum. Halldór var duglegur náms- maður og fékk að loknu stúd- entsprófi 1959 góðan styrk frá Menntamálaráði til að fara utan og læra stærðfræði og eðlis- fræði. Hann var fyrst í Erlang- en í Þýskalandi en kom þaðan eftir tvö ár, kenndi við MR einn vetur og tók próf í stærðfræði við HÍ um vorið. Hann fór svo í framhaldsnám við University of Minnesota í Minneapolis og lauk þaðan doktorsprófi í stærð- fræðilegri rökfræði með ritgerð sem heitir „An investigation of limitultraproducts“ 1968. Leið- beinandi hans var Erwin Enge- ler og meðal annarra kennara hans þar var Bjarni Jónsson. Samhliða náminu kenndi Hall- dór stúdentum í Minnesota áður en hann kom heim til að helga sig kennslu íslenskra stúdenta. Áhugi Halldórs á rökfræði og siðfræði tengdist miklum áhuga hans á heimspeki. Hann var í félagi við íslenska heimspek- inga, ritstýrði tímariti, skrifaði greinar og hélt fyrirlestra um þau fræði. Fyrir hönd samkennara Hall- dórs við námsbrautir í stærð- fræði og tölvunarfræði við Há- skóla Íslands þakka ég honum samveruna og samvinnuna und- anfarna áratugi og votta fjöl- skyldu hans innlega samúð. Kristján Jónasson. Halldór Þorkell Guðjónsson Sigmar Bent Hauksson, vinur okkar og leiðtogi í starfi Astma- og ofnæmisfélagsins, er horfinn á braut, langt fyrir aldur fram. Sigmar var áberandi á mörg- um stöðum í samfélaginu okkar og geta margir minnst hans sem ötuls hvatamanns á sviðum er snerust um líknar- og sam- félagsmál, heilbrigði fólks og réttindi sjúkra. Einnig á allt öðru sviði, í málefnum er lúta að umgengni við náttúru landsins, þeirri virðingu sem við skulum sýna henni og alls þess sem hún gefur okkur. Sigmar hafði brennandi áhuga á heilnæmi andrúmsloftsins sem við öndum að okkur, bæði gagnvart meng- un í stórborgum en einnig frjó- mengun og óskynsamlegri gróð- ursetningu trjáa nálægt leikskólum, skólum og stofnun- um svo dæmi séu tekin. Sigmar var rétt að byrja á þessu bar- áttuverkefni sínu þegar hann var kallaður á braut svo snögg- lega. Sigmar var sjálfur afar fróð- ur, vinnusamur og reynslumik- ill. Eftir hann standa mörg frá- bær verkefni sem hver maður gæti verið stoltur af, verkefni sem við hin þurfum að halda lif- andi og leiða til lykta. Fyrir SÍBS og Astma- og of- næmisfélagið stóð hann í ströngu allt undir það síðasta. Hann ritstýrði til fjölda ára fréttablaði Astma- og ofnæm- isfélagsins og síðar tímariti þess. Hann safnaði í þau ótelj- andi greinum frá sérfræðingum Sigmar Bent Hauksson ✝ Sigmar BentHauksson fæddist í Reykjavík 3. október 1950. Hann lést á Land- spítalanum við Hringbraut 24. des- ember 2012. Minningarathöfn um Sigmar fór fram í Hallgríms- kirkju 4. janúar 2013. og fróðum áhuga- mönnum, greinum sem ávallt hittu í mark á hverjum tíma og er tímaritið vinsælt til aflestrar mjög víða, meðal annars á biðstofum lækna og í apótek- um. Í matreiðsluþátt- um, þar sem mat- reitt er fyrir of- næmissjúka, stýrði hann okkur Stefaníu Sigurðardóttur í gegn- um upptökurnar og lét okkur líða eins og næstu meistara- kokkum Íslands. Sigmar ritaði sjálfur handritin fyrir fræðslu- myndirnar um „Astma og of- næmi“, „Að lifa með astma“ og „Fæðuofnæmi barna“, myndir sem hafa reynst vel við að fræða og upplýsa um sjúkdóm- ana. Sigmar studdi undirritaða í gegnum viðamikla þýðingu á uppskriftabókinni „Kræsingar“, sem brátt kemur út, og ekki má gleyma því spennandi sam- starfsverkefni sem við unnum saman með Hagkaupum sem snýst um aukið og vel skilgreint framboð á vörum fyrir ofnæm- issjúka. Allt þetta var unnið af brennandi áhuga í sjálfboða- vinnu. Við erum þakklát Sigmari fyrir samfylgdina, það voru for- réttindi að fá að taka þátt í líf- inu með honum og hver hefði trúað því þegar við hittumst á frábærum vinnufundi stjórnar fyrir um ári að við myndum ekki endurtaka þá góðu kvöld- stund síðar eins og við lofuðum okkur þá. Við erum einnig þakklát Hauki Bent fyrir að gefa okkur færi á að kveðja föður hans og vin okkar í hinsta sinn á Þor- láksmessukvöld, dagur og kvöld sem við munum seint gleyma. Við vottum fjölskyldu Sigmars okkar dýpstu samúð. Fyrir hönd stjórnar Astma- og ofnæmisfélagsins, Fríða Rún Þórðardóttir. Við kynntumst Kötu fyrir lið- lega 30 árum, þegar leiðir henn- ar og Hans, mágs og bróður, lágu saman. Með tilkomu Kötu í fjölskylduna fóru nýir og ferskir vindar að blása. Þarna var á ferðinni sjálfstæð kjarnorku- kona, með ákveðnar skoðanir, sterka réttlætiskennd, hrein- skiptin og lét sér mjög annt um náungann. Margar góðar og skemmtileg- ar minningar sækja á þegar litið er til baka. Ferðir í sumarbú- stað með fjölskyldunum, golf, sund og gjarnan dregin fram spil á kvöldin. Já, þau voru mörg golfmótin sem við Kata tókum þátt í, síð- asta mótið var síðastliðið sumar. Þar lét hún engan bilbug á sér finna, fór í gegnum mótið með mikilli reisn, þótt heilsan væri ekki góð. Kata var mjög fjölskyldu- og vinarækin, og hjálpsöm var hún, veigraði sér ekki við að halda jólaboð fyrir stórfjölskylduna Katrín Guðmundsdóttir ✝ Katrín Guð-mundsdóttir fæddist á Ísafirði 8. júní 1954. Hún lést á krabbameinsdeild Landspítalans við Hringbraut 26. des- ember 2012. Útför Katrínar var gerð frá Graf- arvogskirkju 4. jan- úar 2013. eða bjóða öðrum að halda veislu hjá sér, ef þannig stóð á. Bauð fjölskyldu minni að dvelja hjá sér í nokkrar vikur, alltaf boðin og búin fyrir aðra. Kata var búin að berjast við krabba- mein í fjögur ár og beið að lokum lægri hlut í þeirri bar- áttu. Þrátt fyrir að við vissum að hverju stefndi í nokkurn tíma er dauðinn samt eins og að fá þungt högg. Stundum var erfitt að átta sig á því að Kata væri yfir höfuð veik. Alltaf leit hún vel út, aldrei kvartaði hún heldur hélt ótrauð áfram, ákveðin að berjast, lifa lífinu til fulls og láta gott að sér leiða. Hver minning dýrmæt perla að liðn- um lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Elsku Hans, Dagmar, Kjart- an, Klara, Ragnheiður og fjöl- skyldur. Megi góður Guð styrkja ykkur og vernda á erf- iðum tímum. Ólafía, Hermann og fjölskyldur. Morgunblaðið birtir minning- argreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Neðst á forsíðu mbl.is má finna upplýsingar um inn- sendingarmáta og skilafrest. Einnig má smella á Morgunblaðs- lógóið efst í hægra horninu og velja viðeigandi lið. Skilafrestur | Sé óskað eftir birt- ingu á útfarardegi þarf greinin að hafa borist á hádegi tveimur virk- um dögum fyrr (á föstudegi ef út- för er á mánudegi eða þriðju- degi). Þar sem pláss er takmarkað get- ur birting dregist, jafnvel þótt grein hafi borist innan skilafrests. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.