Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.01.2014, Page 2
Hvað? Tónsnillingar
morgundagsins.
Hvar? Kaldalón í Hörpu.
Hvenær? Sunnudag kl.
20.
Nánar: Þórunn Vala Valdi-
marsdóttir, sópran, flytur ljóðaflokkinn
Frauenliebe und Leben eftir Schumann
og aríur eftir Scarlatti, Caccini, Händel
og Mozart við meðleik strengjakvartetts.
Eyru morgundagsins
Hvað? Kjarval bankanna.
Hvar? Kjarvalsstöðum.
Hvenær? Sunnudag kl. 10-17.
Nánar: Fulltrúar á vegum Arion banka,
Íslandsbanka og Landsbanka segja frá og
kynna verk Kjarvals sem er að finna í
listaverkaeign þeirra.
Kjarvalssýning
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19.1. 2014
Rígur er af hinu góða. Alltént inn-
an heilbrigðra skynsemismarka.
Hann getur ef rétt er með farið
hvatt menn til góðra verka.
Um þetta hugsaði ég þegar ég
hitti Indru Nooyi, stjórnar-
formann PepsiCo, fyrr í vetur.
Hún brennur fyrir það að gera
Pepsi að stærsta gosdrykk í heimi
og til þess þarf hún að gera betur
en höfuðandstæðingurinn, Coca
Cola. Milli þessara risa á gos-
drykkjamarkaði ríkir rígur sem
hefur þá skemmtilegu birtingar-
mynd að enginn hjá Pepsi nefnir
kók á nafn, aðeins er talað um
„hinn cola-drykkinn“. Þetta varð-
ar örugglega brottrekstri.
Ungur Íslendingur, Árni Ingi
Pjetursson, gerir þetta einnig að
umræðuefni í viðtali í Sunnudags-
blaði Morgunblaðsins í dag. Hann
er á leið frá Ölgerðinni Agli
Skallagrímssyni, sem einmitt hef-
ur umboð fyrir Pepsi á Íslandi, til
íþróttavörurisans Nike í Bret-
landi. Hann fer því úr einum ríg í
annan, í stað þess að tala um
„hinn cola-drykkinn“ verður hann
nú að muna að segja bara „Adi“,
þegar vísað er til helsta keppi-
nautar Nike á markaði. Eflaust
gilda sömu reglur hjá Adidas.
Sem knattspyrnuáhugamaður
þekkir Árni Ingi þetta líka en
hann fylgir Manchester United að
málum í enska boltanum. Á þeim
vettvangi er rígurinn síst minni en
í viðskiptunum og stuðningsmenn
United vísa gjarnan til höfuðand-
stæðings síns, Manchester City,
sem „háværa nágrannans“.
Þannig styrkir rígurinn bæði lið
og hvetur þau til afreka á velli.
Í þessu ljósi hyggst ég taka
þetta upp í mínu lífi. Sem Morg-
unblaðsmaður mun ég framvegis
aðeins tala um „F-ið“ í Skaftahlíð-
inni og sem Þórsari bara um „K-
ið“ á Brekkunni. Hver veit nema
það dugi til að halda mínum
mönnum uppi í sumar?
RABBIÐ
Rígur er af hinu góða
Orri Páll Ormarsson
Fyrri umferð Gettu betur, spurningakeppni framhaldsskólanna á Rás 2, fór fram um síðustu helgi, en í ár eru 30 skólar skráðir til leiks. Spurningakeppnin
er árlegur viðburður en framhaldsskólanemar öttu fyrst kappi í Gettu betur árið 1986 og Fjölbrautaskóli Suðurlands var fyrsti skólinn til að vinna keppn-
ina.
Ýmsir hafa komið að stjórn og dómgæslu þáttanna í gegnum tíðina. Má þar nefna Vernharð Linnet, Stefán Jón Hafstein, Davíð Þór Jónsson, Evu Maríu
Jónsdóttur og Sigmar Guðmundsson og feðgin hafa með löngu millibili verið í hlutverki spyrils; Hermann Gunnarsson á níunda áratugnum og Edda Her-
mannsdóttir árin 2011 til 2013. Logi Bermann Eiðsson er sá spyrill sem hvað lengst sá um að hlýða menntaskælingum yfir lærdóminn en hann spurði þá
spjörunum úr í ein sjö ár. Hér er hann ásamt dómara Gettu betur árið 2000, Ólínu Þorvarðardóttur. Á þessum tíma var sá háttur hafður á að ferðast
var milli framhaldsskóla með spurningarnar. julia@mbl.is
AUGNABLIKIÐ
Morgunblaðið/Sverrir Vilhelmsson
GETTU BETUR AF STAÐ
GETTU BETUR HÓFST UM SÍÐUSTU HELGI Á RÁS 2 OG ÁTTA SKÓLAR ERU KOMNIR ÁFRAM Í AÐRA UM-
FERÐ. EFTIR TVÆR VIKUR HEFST BEIN ÚTSENDING Í SJÓNVARPI FRÁ SÍÐARI VIÐUREIGNUM KEPPNINNAR.
GETTU BETUR HEFUR NOTIÐ MIKILLA VINSÆLDA MEÐAL ÞJÓÐARINNAR FRÁ ÞVÍ AÐ ÞÁTTUNUM VAR
HLEYPT AF STOKKUNUM ÁRIÐ 1986.
Hádegismóum 2,
110 Reykjavík.
Sími 5691100
Útgáfufélag
Árvakur hf.,
Reykjavík.
Útgefandi Óskar Magnússon
Ritstjórar Davíð Oddsson, Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri Karl Blöndal
Umsjón
Eyrún Magnúsdóttir,
eyrun@mbl.is
Prentun
Landsprent ehf.
Hvað: Franska kvik-
myndahátíðin.
Hvar: Háskólabíó.
Hvenær: 18.-30. jan-
úar.
Nánar: Hátíðin sem
færði okkur The Into-
uchables árið 2011 hefst um helgina.
Veisla fyrir skynfæri
Í fókus
VIÐBURÐIR HELGARINNAR
Hvað: Við slaghörpuna í
hálfa öld.
Hvar: Salnum í Kópavogi.
Hvenær: Sunnudag kl.
12.
Nánar: Í tilefni af hálfrar
aldar starfi Jónasar við slaghörpuna fær
hann til sín gesti, sópransöngkonuna
Þóru Einarsdóttur og leikkonuna Krist-
björg Kjeld.
Afmælistónleikar Jónasar
Hvað? Reykjavíkurleik-
arnir.
Hvar? Laugardalshöll.
Hvenær? Sunnudag kl.
13-15.
Nánar: Aníta Hinriks-
dóttir og aðrar stjörnur
frjálsíþróttanna keppa í Laugardalshöll.
Íþróttaborgin Reykjavík
Hvað? Ég hef aldrei séð fígúratíft rafmagn.
Hvar? Ásmundarsafni.
Hvenær? Laugardag kl. 10.
Nánar: Ný verk eftir níu íslenska sam-
tímalistamenn ásamt abstraktverkum
Ásmundar Sveinssonar (1893-1982). Á
sýningunni er vakin athygli á efnistökum
Ásmundar á sjöunda áratugnum og sam-
hljómi hans við starfandi listamenn í dag.
Níu nýir
* Forsíðumyndina tók Ómar Óskarsson.