Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.01.2014, Page 4
4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19.1. 2014
Leikstjórinn Baltasar Kormákur
kvaðst í vikunni afar ósáttur við þá
ákvörðun Reykjavíkurborgar um að
hætta beinum stuðningi við RIFF.
„Mér finnst þetta
skammarleg aðför
að þessari hátíð,
sem hefur ekki
gert neitt annað en
að breiða út fagn-
aðarerindið fyrir
Reykjavíkurborg,“
segir leikstjórinn,
sem sæti á í stjórn RIFF, í samtali
við mbl.is. „Ég vil að Besti flokk-
urinn sýni í verki að hann sé öðruvísi
en aðrir pólitískir flokkar og við-
urkenni að hann hafi gert mistök og
bakki út úr þessu; þeir bæti í og geri
vel við hátíðina,“ segir Baltasar.
Listamenn fyrir listamenn
„Í nokkuð mörg ár hefur fyr-
irkomulagið verið þannig að [Banda-
lag íslenskra listamanna] kemur
með tillögur sem síðan menning-
arráð samþykkir og ekki hefur verið
farið gegn tillögum
þess. Þessi háttur
er hafður á til þess
að koma í veg fyrir
að pólitík eða geð-
þóttaákvarðanir
ráði för. Faghóp-
urinn er skipaður
listamönnum fyrir
listamenn, þetta er þeirra niðurstaða
og það er okkar stefna að fylgja til-
lögum hópsins,“ segir Einar Örn
Benediktsson, formaður menning-
ar- og ferðamálaráðs Reykjavíkur.
Fagfélögin
„Þessi hátíð sem Reykjavíkurborg
ákvað að styrkja er haldin af fag-
félögum kvikmyndagerðarmanna og
er unnin í samráði við alla sem málið
varðar á Íslandi,
sem starfa ann-
aðhvort í kvik-
myndageiranum
eða eiga hagsmuna
að gæta í kvik-
myndaiðnaði,“ seg-
ir Hrönn Sveins-
dóttir,
framkvæmdastjóri Bíó Paradísar.
Sjálfseignarstofnunin Heimili kvik-
myndanna, sem sé í eigu fagfélaga
kvikmyndagerðamanna, hafi sótt um
styrk vegna Kvikmyndahátíðar í
Reykjavík en ekki Bíó Paradís.
Setning RIFF í Þjóðleikhúsinu 2010.
Morgunblaðið/Ernir
Aðför eða
eðlilegt?
Hrönn Marinósdóttir kom
Alþjóðlegu kvikmyndahátíð-
inni í Reykjavík, RIFF, á fót ár-
ið 2004. Hátíðin var því hald-
in í tíunda skipti á síðasta ári.
Í fyrra voru sýndar hátt í
100 kvikmyndir í fullri lengd,
frá meira en 40 löndum, auk
fjölda stuttmynda. Þá voru
sýningar á vegum hátíð-
arinnar í Tjarnarbíói, Há-
skólabíói og Norræna húsinu.
Hrönn vill alls ekki tjá sig
um málefni RIFF að svo
komnu máli en þegar ákvörð-
un menningar- og ferða-
málaráðs borgarinnar lá
fyrir var haft eftir henni á
mbl.is: „Þetta kemur
svo sem ekki á óvart.
Alveg frá því að Besti
flokkurinn tók við
borginni hefur hann
haft sérstakan
áhuga á að halda
lífinu í Bíó Para-
dís.“
Óvíst er hvort Alþjóðlegakvikmyndahátíðin íReykjavík (RIFF) verður
haldin í haust, en þó ekki útilokað
skv. því sem Sunnudagsblað Morg-
unblaðsins kemst næst, þrátt fyrir
að Reykjavíkurborg hafi ákveðið á
dögunum að veita hátíðinni ekki
fjárstyrk í ár. RIFF hlaut í fyrra
hátt í tíu milljóna króna styrk frá
borginni, annað eins frá mennta-
og menningarmálaráðuneytinu, auk
þess sem fjölmörg fyrirtæki hafa
veitt hátíðinni fjárstyrki þann ára-
tug sem hún hefur verið við lýði.
Greinargerðin
trúnaðarmál
Ákvörðun Reykjavíkurborgar á
dögunum vakti töluverða athygli.
Einar Örn Benediktsson borg-
arfulltrúi Besta flokksins og for-
maður Menningar- og ferða-
málaráðs Reykjavíkur, hefur lagt
áherslu á að síðan flokkurinn
komst til valda í borginni hafi í
þessum efnum alltaf verið farið
eftir tillögum faghóps
Bandalags íslenskra lista-
manna (BÍL) og engin
ástæða hafi verið til að
breyta út frá þeirri venju
nú.
Að þessu sinni lagði fag-
hópur BÍL til við ráðið að
gerður yrði samningur við
Heimili kvikmyndanna – Bíó Para-
dís ses. til eins árs vegna Kvik-
myndahátíðar í Reykjavík 2014 að
fjárhæð átta milljónir króna. Til-
lagan var samþykkt á fundi
Mennta- og ferðamálaráðs 16. des-
ember með fimm atkvæðum full-
trúa Besta flokksins, Samfylking-
arinnar og Vinstri grænna en
fulltrúar Sjálfstæðisflokksins sátu
hjá.
Vert er að geta þess að heimildir
úr stjórnkerfinu herma að strax
árið 2010, eftir að Besti flokkurinn
komst til valda, hafi í raun verið
óformlega ákveðið að hætta stuðn-
ingi við RIFF. Frá því var horfið
þá og ekkert skal fullyrt hvort
ákvörðunin nú tengist vilja Besta
flokksins þá. Gunnar Hrafnsson,
formaður faghóps BÍL, lagði í gær
áherslu á að niðurstöður hópsins
byggðust eingöngu á faglegum for-
sendum og hópurinn hefði al-
gjörlega haft frítt spil.
„Greinargerðin með skoðunum
okkar er trúnaðarmál,“ sagði
Gunnar í gær þegar forvitnast var
um ástæður breytinganna. Sótt
væri um alls 270 milljónir en 70-80
úthlutað og því væri óðs manns
æði að rökstyðja allar tillögur
hópsins. Gunnar sagði þó að um-
sóknin sem veitt var brautargengi
hefði einfaldlega höfðað sér-
staklega vel til hópsins.
Heimili kvikmyndanna ákvað í
haust að sækja í fyrsta skipti um
styrk til Reykjavíkurborgar vegna
nýrrar kvikmyndahátíðar. Í bréfi
til fagfólks í kvikmyndagerð segir
að sú ákvörðun hafi verið tekin
þegar fyrir lá að myndir á vegum
RIFF yrðu ekki sýndar í Bíó Para-
dís „vegna viðskiptalegra for-
sendna eiganda RIFF“. Þar er átt
við Hrönn Marinósdóttur. Hún
fæst ekki til þess að tjá sig um það
atriði en rétt að benda á að á síð-
asta ári voru myndir á RIFF ekki
sýndar í Bíó Paradís, eins og árin
á undan. Viðmælandi blaðsins í
kvikmyndahúsabransanum fullyrðir
að það hafi einfaldlega verið vegna
þess að aðrir gerðu hátíðinni mun
hagstæðara tilboð en Bíó Paradís.
Stjórn RIFF skrifaði í vikunni
opið bréf til Reykjavíkurborgar þar
sem ákvörðun borgaryfirvalda er
hörmuð. Þar kemur fram að Menn-
ingar- og ferðamálaráð hafi lagt
mikinn þunga á samstarf við Heim-
ili kvikmyndanna – Bíó Paradís og
RIFF hafi sýnt áhuga á því og
vilji verið fyrir því að gera lang-
tímasamning um samstarf. Ákveðið
hafi verið í lok nóvember að efna
sem fyrst til samráðs- og vinnu-
fundar til að útfæra nánara sam-
starf næstu hátíða en stjórn Bíó
Paradísar ekki enn séð sér fært að
ákvarða dagsetningu þess fundar.
Gestir Alþjóðlegu kvikdmyndahátíðarinnar, RIFF, hafa ekki alltaf notið mynda við hefðbundnar aðstæður. Myndin er tekin í Sundhöll Reykjavíkur haustið 2009.
Morgunblaðið/Kristinn
SÉRSTAKUR ÁHUGI
Á BÍÓ PARADÍS
Riff var ekki lengi
í (Bíó) Paradís
FAGFÉLÖG KVIKMYNDAGERÐARMANNA ENDURVEKJA ALÞJÓÐLEGA KVIKMYNDAHÁTÍÐ. REYKJAVÍKURBORG VILDI
HÆTTA AÐ STYRKJA RIFF FJÁRHAGSLEGA STRAX ÁRIÐ 2010, FLJÓTLEGA EFTIR AÐ BESTI FLOKKURINN KOMST TIL VALDA
* Það er nauðsynlegt að miða lengd kvikmyndarvið þoltíma þvagblöðru mannsins. ÞjóðmálSKAPTI HALLGRÍMSSON
skapti@mbl.is