Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.01.2014, Síða 12
Svipmynd
12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19.1. 2014
T
vær nýjar sjónvarps-
stöðvar, Bravó og Mikli-
garður, taka fljótlega til
starfa. Sigmar Vil-
hjálmsson er meðal eig-
enda sjónvarpsstöðvanna. Hann er
sennilega betur þekktur sem Simmi,
annar helmingurinn af Simma og
Jóa, en þeir eru þjóðþekktir fjöl-
miðlamenn, bæði úr sjónvarpi og út-
varpi, og eigendur hinnar vinsælu
Hamborgarafabrikku. Simmi er
meðal eigenda Konunglega kvik-
myndafélagsins og framleiðslufyr-
irtækisins Stórveldisins, en það er
einmitt Konunglega kvikmynda-
félagið sem stendur á bak við þess-
ar nýju sjónvarpsstöðvar.
Spurður hvort ekki sé mikil bjart-
sýni að ætla sér að fara af stað með
tvær sjónvarpsstöðvar segir Simmi:
„Jú. Einhver gárunginn sagði við
mig: Það hefur enginn grætt á því
að stofna fjölmiðil á Íslandi og þess
vegna ætlar þú að stofna tvo.
Þetta eru tveir mjög ólíkir miðlar
og það sem rekur okkur áfram er
að það er gat á markaðnum sem
hægt er að fylla upp í. Bravó verður
tónlistartengdur miðill fyrir ungt
fólk, sem mun hugsanlega minna
nokkuð á Popp Tíví. Við Jói byrj-
uðum að vinna saman á Popp Tíví
og fengum þar tækifæri sem við
hefðum sennilega aldrei fengið hefði
sá miðill ekki verið til. Þar hlupum
við af okkur hornin og tókum út
ákveðinn þroska og fengum að
vinna í friði. Popp Tíví var eins kon-
ar færiband sem gaf ungu og
áhugasömu fólki tækifæri til að láta
ljós sitt skína. Svo komu Sveppi og
Auddi og Pétur Jóhann. Við fimm
vorum of lengi ungu andlitin í sjón-
varpi. En síðan kom ferskur and-
blær á markaðinn með fólki eins og
Steinda, Birni Braga og Hrað-
fréttastrákunum á Mbl sjónvarpi.
Það verður að segjast eins og er
að stóru sjónvarpsstöðvarnar hafa
verið heldur ragar við að gefa ungu
og óreyndu fólki tækifæri. Ungt fólk
þarf fyrst að sanna sig áður en það
fær tækifæri til að komast þar að.
Við erum að mörgu leyti himna-
sending fyrir þessar stóru sjón-
varpsstöðvar því við tökum að okk-
ur tilraunastarfsemina. Ef þáttur á
Bravó sannar sig og slær í gegn þá
hringir kannski Skjár einn eða Stöð
2 og vill fá þáttinn til sín. Þá segj-
um við: Gjörið þið svo vel! – og finn-
um síðan nýja og hæfileikaríka ein-
staklinga. Við ætlum að vera mjög
trúir því markmiði að vera ungir í
anda á miðlinum og gefa ungu fólki
stöðugt tækifæri og gera tilraunir
með því.
Það sem er spennandi við útsend-
ingarnar á Bravó er að þar erum
við með nýjan útsendingarbúnað
sem er gerður fyrir öll dreifing-
arform. Notkunin á miðlinum verð-
ur miklu meiri í snjalltækjum og
fartölvum en í sjónvarpinu sem
slíku. Þarna er líka gagnvirkni sem
hefur ekki sést áður í sjónvarps-
gerð. Við byrjum með marga
skemmtilega gagnvirka möguleika
sem við munum svo auka jafnt og
þétt eftir því sem líður á árið. Hvort
sem fólk er með símann eða sjón-
varpið getur það tekið beinan þátt í
dagskrárgerðinni. Það getur valið
hvaða lag verður spilað næst í tón-
listarþættinum, það getur hringt inn
í sjónvarpsþátt í gegnum skype og
komist sem áhorfandi inn í sjón-
varpsþáttinn. Við getum boðið
áhorfendum að spila spurningaleiki í
gegnum facebook og ef sigurveg-
arinn er úti á landi er hægt að kalla
fram facebook-prófílinn hans í út-
sendingu. Við getum boðið áhorf-
endum upp á að segja: Þetta var
ekki góður þáttur eða: Þetta var
góður þáttur, haldið áfram með
hann. Gagnvirknin skiptir miklu
máli í þessu sjónvarpi og smám
saman verður miðillinn í höndum
áhorfenda sem ráða ferðinni.“
Nýr og ferskur andblær
Er ungt fólk ekki mikið til hætt að
horfa á sjónvarp?
„Ungt fólk er ekki hætt að horfa
á skemmtilegt íslenskt dagskrárefni,
það er bara of lítið efni við þess
hæfi í sjónvarpi og þess vegna sæk-
ir það í erlent efni. Við ætlum fyrst
og fremst að bjóða ungu fólki upp á
skemmtilega dagskrá og bjóða því
að horfa á það í þeim tækjum sem
því hentar, snjalltækjum, tölvum
eða sjónvarpi – þess er valið. Í al-
mennri fjölmiðlun er það sem er
næst okkur miklu áhugaverðara en
það sem er fjær. Það á við um
þennan hóp eins og aðra. Í mínum
huga er það þannig að ef við fram-
leiðum efni fyrir þennan hóp þá
Skapandi
drauma-
verkefni
SIGMAR VILHJÁLMSSON, SIMMI, RÆÐIR UM NÝJ-
ASTA VERKEFNI SITT SEM ER STOFNUN TVEGGJA
SJÓNVARPSSTÖÐVA, EN HANN SEGIR VERA GAT Á
MARKAÐNUM. REYNT FJÖLMIÐLAFÓLK HEFUR
VERIÐ RÁÐIÐ TIL STARFA EN UNGT OG ÓREYNT
FÓLK MUN EINNIG FÁ FJÖLMÖRG TÆKIFÆRI TIL
AÐ LÁTA LJÓS SITT SKÍNA.
Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrun@mbl.is
* Ef þáttur á Bravó sannar sig ogslær í gegn þá hringir kannski Skjáreinn eða Stöð 2 og vill fá þáttinn til sín.
Þá segjum við: Gjörið þið svo vel! – og
finnum síðan nýja og hæfileikaríka ein-
staklinga. Við ætlum að vera mjög trúir
því markmiði að vera ungir í anda á
miðlinum og gefa ungu fólki stöðugt tæki-
færi og gera tilraunir með því.