Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.01.2014, Síða 14
verð? Já. Auglýsingar eru upplýs-
ingar. Síðan hefur fólk skoðun á
því hvort umfjöllunin um þessa
ákveðnu vöru og þjónustu höfðar til
þess eða ekki. Mikligarður verður í
sama dreifingarformi og Bravó, þar
er talað mál, myndmál og vídeó-
miðlun. Ef menn efast um að það
sé framtíð í því ættu þeir að sjá
tölurnar sem sýna að aldrei hefur
verið meiri notkun á vídeómynd-
forminu en núna.“
Þú segir að ungt fólk muni sjá
um dagskrárefni á Bravó, en hverjir
sjá um dagskrána á Miklagarði?
„Það fólk sem við höfum fengið
til starfa á Miklagarð er fjölmiðla-
fólk sem hefur starfað við fjölmiðla í
þó nokkuð langan tíma. Þetta fólk á
það sameiginlegt að búa yfir mikil-
vægri reynslu úr fjölmiðlum. Við
teljum að það búi enn meira í þessu
fólki en það hefur fengið að sýna. Í
þessum hópi eru Vignir Freyr And-
ersen sem hefur stýrt lottóinu í
sjónvarpi í fjórtán ár, Svanhildur
Þórsteinsdóttir, eða Svansí, sem
hefur mikla reynslu í útvarpi en
hefur einnig unnið í sjónvarpi og
Ólafur Örn, sem var einn af dóm-
urunum í Masterchef, eigandi K-
barsins og mun fjalla um mat og
vín. Við erum líka stolt af því að
hafa innanborðs Guffa, Guðfinn Sig-
urvinsson, sem var í síðdegisútvarpi
Rásar 2, auk fleiri hæfileikaríkra
einstaklinga sem ekki er hægt að
greina frá á þessari stundu. Því skal
svo haldið til haga að kynjahlutföllin
verða jöfn á Miklagarði og mörg
þessara nafna munu koma skemmti-
lega á óvart.“
Á eftir að gera
draumaþáttinn
Hvernig hefur gengið að fjármagna
verkefnið?
„Þegar við fórum af stað með
þetta verkefni og leituðum eftir
fjármögnun fannst okkur lykilatriði
að vera þar með aðila sem hafa eitt-
hvað til málana að leggja. Við vild-
um ekki sækja í sjóði hjá fjárfestum
sem hafa ekki áhuga á fjölmiðlun.
Við erum að reyna að gera þetta
fyrir eins lítinn pening og hægt er
en á móti kemur að verkefni eins og
þetta kostar sitt. Allir þeir fjár-
festar sem standa á bak við þetta
verkefni gera það vegna þess að
þeir vilja taka þátt í uppbyggilegu
og skemmtilegu verkefni. Skúli
Gunnar Sigfússon á Subway er einn
þessara fjárfesta og hann er maður
sem vill hafa gaman af því sem
hann er að gera. Ég sagði við hann
að ef hann tapaði peningunum sem
hann legði í þennan rekstur gæti
hann allavega huggað sig við að
hann hefði tekið þátt í skemmtilegu
verkefni. Ég hef hins vegar fulla trú
á því að hann muni ekki tapa þess-
um peningum.
Ég er ekki í góðgerðarstarfsemi
og ætla ekki að borga með verkefn-
inu. Við erum með stóran og mik-
ilvægan markhóp sem er ungt fólk
sem er oft haft með í ráðum þegar
kemur að ákvörðunum á heimilinu
eins og til dæmis hvernig tölvu eða
bíl á að kaupa. Það eru ansi mörg
fyrirtæki sem vilja höfða til þessa
neytendahóps og fá tækifæri til
þess í gegnum þessar nýju sjón-
varpsstöðvar.“
Verður þú sýnilegur á skjánum?
„Nei, enda væri það í mótsögn
við það sem ætlum að gera. Ég fæ
mikið út úr því að gefa ungu fólki
sama tækifæri og ég fékk á sínum
tíma.“
Saknarðu þess að vera ekki leng-
ur sýnilegur á skjánum?
„Nei, við Jói vorum mjög mikið í
fjölmiðlum og sú vinna var mjög
krefjandi. Árin í 70 mínútum voru
galin. Við vorum að vinna 70 mín-
14 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19.1. 2014
Svipmynd
Hlynur Sigurðsson er fram-
kvæmdastjóri Konunglega kvik-
myndafélagsins. Hann hefur unn-
ið lengi í fjölmiðlum, fyrst sem
fréttamaður á Ríkissjónvarpinu á
árunum 2001-2005 en fór þá í
eigin rekstur og stofnaði Fast-
eignasjónvarpið og rak fram-
leiðslufyrirtæki sem framleiddi
meðal annars Fyrstu skrefin,
þætti sem sýndir voru á Skjá ein-
um. Hann vann hjá Latabæ og
var maðurinn á bakvið stuttu
skemmtiþættina vinsælu á MBL
sjónvarpi.
„Eins og gefur að skilja er að
mörgu að hyggja við undirbún-
ing útsendinga tveggja nýrra fjöl-
miðla. En sem betur fer er þetta
mjög skemmtileg vinna og ein-
staklega skemmtilegur vinnu-
staður. Það er mikið líf í tusk-
unum og allir tilbúnir til að
leggja mikið á sig fyrir verkefnið.
Hópurinn á bakvið þetta hefur
ótrúlega mikla reynslu af fjöl-
miðlum, hvort sem er tæknisvið-
inu, framleiðslu sjónvarpsefnis
eða framkomu í sjónvarpi. Ég
segi stundum að uppstillingin sé
eins og byrjunarlið Barcelona.
Við stefnum að því að miðl-
arnir fari í loftið í mars. Vinnan
núna snýst um að finna og fram-
leiða rétta dagskrárefnið á
stöðvarnar, setja upp tæki og tól
sem og að forrita útsendingar-
búnað sem er sá fullkomnasti
sem völ er á, hanna útlit og ann-
að við hæfi. Við tölum um fjöl-
miðla en ekki sjónvarpsstöðvar.
Okkur er sama hvort þú neytir
miðilsins í sjónvarpi, í snjalltæki
eða tölvu. Markmið okkar verð-
ur að bjóða upp á skemmtilegt
íslenskt dagskrárefni.
Hraðfréttir hófust í MBL sjón-
varpi, sömuleiðis Gunnar á Völl-
um og Ebba heilsukokkur, en í
dag eru þau öll á RÚV. Þetta seg-
ir okkur að aðrar sjónvarps-
stöðvar eru tilbúnar til að ráða
til sín efnilegt fólk af öðrum
miðlum. Það er gríðarlega
margt hæfileikaríkt fólk til á Ís-
landi sem vantar vettvang til að
láta ljós sitt skína, en það er ein-
mitt markmið okkar með Bravó
að skapa þennan vettvang. Við
eigum eflaust eftir að framleiða
fullt af lélegu efni, en vonandi
munum við einnig geta dregið
hæfileikaríkt fólk fram í sviðs-
ljósið. Það er eitt af því
skemmtilegasta við verkefnið að
finna þetta fólk. Það eru örfáir
dagar frá því að við gerðum fyr-
irætlanir okkar opinberar en
okkur hafa þegar borist hundruð
tölvupósta með skemmtilegum
hugmyndum. Þannig viljum við
hafa það, við skoðum allar hug-
myndir og hvetjum fólk til að
senda okkur póst á bra-
votv@bravotv.is.“
HLYNUR SIGURÐSSON FRAMKVÆMDASTJÓRI KONUNGLEGA KVIKMYNDAFÉLAGSINS
Morgunblaðið/Ómar
Uppstilling eins
og hjá Barcelona
„Okkur hafa þegar
borist hundruð
tölvupósta með
skemmtilegum hug-
myndum,“ segir
Hlynur Sigurðsson.
Skírnartertur
að hætti Jóa Fel
– undurfagrar og bragðgóðar
Kíktu á úrvalið á www.joifel.is.
Holtagarðar & Smáralind & Kringlan & Garðabær & Hringbraut
15% afsláttur af öllum skírnartertum