Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.01.2014, Page 15
Morgunblaðið/RAX
útna skemmtiþátt sem var sýndur á
hverju virku kvöldi. Ég efast um að
margir myndu leggja þetta á sig í
dag. Mér finnst samt að ég eigi eft-
ir að gera draumaþáttinn, sem er
stærri skemmtiþáttur. Við Jói höf-
um talað um að einhvern daginn
væri gaman að gera slíkan þátt en
hvorugur þessara miðla er vett-
vangur fyrir það.“
Fólk er orðið afar vant því að
segja nafnið þitt í tengslum við Jóa.
Þið hafið átt farsælt samstarf, bæði
í fjölmiðlum og viðskiptum. Kemur
Jói að þessu nýja sjónvarpsverk-
efni?
„Jói er ekki með í þessu fjöl-
miðlaverkefni. Hann á hins vegar
hlut í Stórveldinu og er þar með
okkur í því að framleiða efni fyrir
aðrar sjónvarpsstöðvar. Þetta nýj-
asta fjölmiðlaverkefni er sérfélag
sem Stórveldið á hlut í. Jói hefur
þar enga beina aðkomu.“
En hefur þú enn aðkomu að
Hamborgarafabrikkunni?
„Ég er hluthafi og fylgist með því
skemmtilega verkefni þótt ég sé
ekki á Fabrikkunni dags daglega.
Þetta er eins og að eignast annað
barn og þriðja barnið; það þýðir
ekki að þú hættir að sinna fyrsta
barninu. En fókusinn er meiri á
verkefnið sem brýnast er að sinna í
það og það skiptið og þessa stund-
ina eru það sjónvarpsstöðvarnar
tvær. Ég set mesta orku í þær.“
Ekki gróðahugsun
Þið Jói voruð lengi með útvarpsþátt
á Bylgjunni þar sem þið grínuðust.
Eruð þið mjög lífsglaðir að eðl-
isfari?
„Við Jói höfum alltaf haft gaman
af lífinu. Við vorum með útvarps-
þátt á Bylgjunni í fimm ár og þar
fengum við ákveðna útrás fyrir
sköpunargleðina enda leyfðum við
okkur að gera þá hluti sem okkur
þóttu skemmtilegir á þeim tíma.
Það var mikil leikgleði í því sem við
gerðum. Við höfðum þá stefnu í
þáttum okkar að minnast ekki á
þjóðfélagsmál eða pólitík. Við gerð-
um grín að sjálfum okkur og því
höfðum við leyfi til að gera grín að
öðrum. Við vorum ekki rætnir og
ekkert sem við sögðum í þáttunum
stafaði af annarlegum hvötum.
Hvatinn að því að gera grín að ein-
hverjum má aldrei vera sá að mað-
ur þolir ekki viðkomandi. Þegar
menn eru komnir í þá átt í gríni
eiga þeir að hætta og snúa sér að
einhverju öðru.“
Þú virðist óhræddur við að takast
á við ögrandi verkefni. Hvað er það
sem drífur þig áfram?
„Ég er þannig gerður að mér
finnst ég þurfa að gera mjög margt
áður en ég verð of gamall. Mér
finnst mjög mikilvægt að það sem
ég geri sé skemmtilegt og kannski
má rekja ástæðu þess til hrunsins.
Ég var að vinna í Landsbankanum
en hætti þar og fór að vinna fyrir í
fyrirtæki sem hét Hive sem síðan
sameinaðist Sko og Tal var end-
urreist. Ég vann þar á hrunárunum
og eftir hrunið breyttist gildismat
mitt. Ég fann að ég var í starfi sem
ég hafði enga ánægju af en var
verulega vel launað. Ég var að
vinna fyrir peningana en ekki
ánægjuna. Þetta var ekki það sem
ég vildi gera. Ég sagði upp án þess
að hafa nokkuð annað í hendi og á
tíma þegar konan mín var ófrísk.
Ég hugsaði með mér: Þeir fiska
sem róa. Upp úr þessu kviknaði
hugmyndin að Hamborgarafabrikk-
unni og eftir það hétum við Jói hvor
öðrum því að gera bara það sem við
hefðum gaman af. Við erum ekki
viðskiptamógúlar eða milljónamær-
ingar eins og ákveðnir miðlar vilja
vera láta. Að stofna þessa sjón-
varpsstöð kostar peninga en er
fyrst og fremst vinna. Gríðarlega
mikil vinna en af því að hún er
skemmtileg finnur maður ekki eins
mikið fyrir álaginu og ef manni
leiddist vinnan. Ef maður hefur
gaman af því sem maður er að gera
verður vinnan ekki erfið.
Ég segi það í fullri alvöru að það
er ekki hugsunin um gróða sem
rekur mig áfram. Ég veit mætavel
að það verður enginn ríkur af því að
reka fjölmiðla. Ég tel samt, og er
reyndar sannfærður um, að það sé
hægt að rekja fjölmiðil réttum meg-
in við strikið. Það er gaman að
vinna í fjölmiðlun ef umhverfið er
skemmtilegt og skapandi. Ég hef
komið að fjölmiðlum frá mörgum
hliðum og veit að það er ekki gam-
an við vinna undir tímapressu að
verkefnum sem maður hefur ekki
áhuga á. Ég veit jafnvel að það er
ákaflega gaman að vinna þegar
maður fær að velja viðfangsefnin
sjálfur og hefur frelsi til að skapa.
Á meðan við sem komum að þessu
verkefni getum skapað eitthvað nýtt
erum við í skemmtilegu umhverfi
sem hentar okkur. Og ef það er
hægt að hafa í sig og á í þeirri
starfsemi án þess að borga með
henni þá er þetta draumaverkefni.“
* Ég var að vinna fyrir peningana enekki ánægjuna. Þetta var ekki þaðsem ég vildi gera. Ég sagði upp án þess að
hafa nokkuð annað í hendi og á tíma þeg-
ar konan mín var ófrísk. Ég hugsaði með
mér: Þeir fiska sem róa. Upp úr þessu
kviknaði hugmyndin að Hamborgarafa-
brikkunni og eftir það hétum við Jói hvor
öðrum því að gera bara það sem við hefð-
um gaman af. Við erum ekki viðskiptamó-
gúlar eða milljónamæringar eins og
ákveðnir miðlar vilja vera láta.
Félagarnir Simmi
og Jói. Jói er ekki
með í hinu nýja
fjölmiðlaverkefni.
Við bjóðumvelkomna
ítalska hönnun
Natuzzi endurspeglar fullkominn samhljóm og kjarna Ítalskrar hönnunar.
Það er æðislegt að upplifa hlýja og kósý stemningu í Natuzzi umhverfi.
Staður þar sem fólki líður vel.
100%made in Italy
www.natuzzi.com
Skeifunni 8 | sími 588 0640 | casa.is
Komið og upplifið Natuzzi gallerýið okkar
19.1. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15