Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.01.2014, Blaðsíða 20
epa
É
g hafði alltaf verið að spila og leika
mér í fótbolta, en fékk svo í bakið
og varð að hætta. Þá var ann-
aðhvort að setjast upp í sófa eða
finna sér eitthvað annað að gera og þetta
er svo fjölbreytt og sitt lítið af hverju að
mig langaði að prófa. Athuga hvort bakið
gæti þolað þetta álag,“ segir Ragnar Fjalar
Sævarsson en hann undirbýr sig nú af
kappi fyrir eina frægustu skíðagöngu
heims, Vasa-gönguna. Ragnar hefur aldrei
prófað skíðagöngu en þrátt fyrir það ætlar
hann að ganga heila 90 kílómetra á skíðum.
Keppnin sænski klassíkerinn, eða En
Svensk Klassiker, var fyrst haldin 1971 en
keppnin samanstendur af fjórum greinum.
Téðri Vasa-skíðagöngu upp á 90 kílómetra,
Lidingöloppet-víðavangshlaupi þar sem
hlaupnir eru 30 kílómetrar, þriggja kíló-
metra vatnasundi sem kallast Vansbrosimn-
ingen og 300 kílómetra Vätternrundan-
hjólreiðakeppninni. Þessar fjórar greinar
eru frægar um allan heim og mörg þúsund
manns taka þátt í þeim hvert sinn. Þeir
einstaklingar sem ná að klára allar keppn-
irnar á einu almanaksári fá skírteini og
verðlaunapening því til staðfestingar.
Alls hafa nærri 30 þúsund manns náð að
klára þessa keppni, rúmlega 23 þúsund
karlar og nærri fimm þúsund konur. Tíu
einstaklingar hafa lokið keppninni 25 sinn-
um eða oftar.
Á Íslandi var sett á laggirnar keppnin
Landvættir en hún byggist á þessari hug-
mynd. Til að geta orðið Landvættur þarf
viðkomandi að afreka að klára Fossavatns-
gönguna á Ísafirði, Jökulsárhlaupið, Urriða-
vatnssundið og Bláalónshjólreiðarnar á einu
ári.
Erfitt að synda í svartri á
Ragnar er búinn með tvær greinar. Hann
hljóp í Lidingöloppet-víðavangshlaupinu en
hlaupið er stærsta víðavangshlaup heims.
Rúmlega 15 þúsund keppendur skráðu sig
til leiks í 30 kílómetra hlaupið og enn fleiri
í styttri vegalengdirnar.
Hann synti svo Vansbrosimningen-sundið
í júlí á síðasta ári en þá eru tveir
kílómetrar syntir í ánni Vanån og
svo einn kílómetri í Västerdal-
ánni. Ragnar segir að það hafi
verið ákaflega sérstakt en
skemmtilegt. „Sundið sjálft var
ekkert endilega það erfitt heldur að
áin var alveg svört. Maður sá ekki
neitt. Ég var búinn að fara í laugina
og æfa mig vel fyrir sundið. Gat al-
veg synt þessa þrjá kílómetra. En að
synda í svona svartri á þá vissi mað-
ur ekk- ert hvað var að fara
narta í mann,“ segir hann og hlær.
„Það að komast yfir það var eig-
inlega erfiðast.“
Hver grein er áskorun
Hingað til hefur bakið á Ragn-
ari þolað þetta álag sem hefur
fylgt því að undirbúa sig fyrir
þessar keppnir, gert það
betra ef eitthvað er. Hann
reimaði allavega á sig
fótboltaskóna í kringum jólin
og prófaði að sparka í bolta
þegar hann kom til Íslands í
stutt frí. Hann rekur íbúðar-
leiguna Red Apple Ap-
artments frá Lundi í Sví-
þjóð auk þess að æfa sig
fyrir Vasa-gönguna sem
fram fer í mars.
„Þetta er áskorun og mað-
ur er að gera það sem mað-
ur hefur ekki gert áður.
Ég hefði geta farið í
hálfan klassíker en það
hefði ekki verið jafn
gaman.“
Rétt áður en Ragnar
stakk sér til sunds í Van-
ån-ánni þar sem tveir
kílómetrar eru syntir.
Einn kílómetri er syntur í
Västerdal-ánni.
STEFNT Á VERÐLAUN Í SVÍÞJÓÐ
Nennti ekki að
verða sófadýr
RAGNAR FJALAR SÆVARSSON ÁKVAÐ AÐ TAKA ÞÁTT Í EN
SVENSK KLASSIKER EN KEPPNIN GENGUR ÚT Á AÐ KLÁRA
FJÓRAR ÞREKRAUNIR Á EINU ÁRI. NÆST Á DAGSKRÁ ER VASA-
SKÍÐAGANGAN Í MARS OG SVO HJÓLREIÐAKEPPNI Í JÚNÍ.
Benedikt Bóas benedikt@mbl.is
Vasa-gangan í Svíþjóð er sögð vera ein erfiðasta skíðaganga veraldar.
30 kílómetrar að baki, Ragnar
kemur í mark í Lidingöloppet
víðavangshlaupinu.
*Heilsa og hreyfingMegrunarkúrar fyrri tíma eru fjölbreyttir og forvitnilegir að gerð og ekki alltaf skynsamlegir »22