Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.01.2014, Qupperneq 28
*Matur og drykkir Prestshjónin á Akureyri buðu matargestum sínum upp á villibráð í fjórum útfærslum »324 kjúklingabringur500 g kotasæla
300 g spínat
1 laukur
1 rauð paprika
6 tómatar
eitt búnt af basiliku
hálfur lítill parmesanostur
hvítlauksgeirar að vild, sjálf nota ég ca 5 geira.
mozzarellaostur
1 tsk. múskat
1 dós af hökkuðum tómötum með basiliku
1 dós af hökkuðum tómötum með chili
2 msk. chili-chutney
2 msk. blönduð berjasulta
1 egg
Sjálf krydda ég sósuna og kjúklinginn með ítölsku
kryddi, paprikukryddi, salti og pipar og smakka síðan
til.
1 poki af ferskum lasagna-plötum
Aðferð: Byrjað er á því að skera niður lauk, papr-
iku og tómata. Allt sett á bökunarpappír og inn í ofn í
15 mín. við 170°C hita. Á meðan er kjúklingurinn
steiktur upp úr hvítlauk og kryddi. Einnig er spínatið
steikt á pönnu upp úr ólífuolíu.
Kotasælu blandað saman við eggið, 4 msk. af par-
mesanosti, hálft búnt af basiliku og spínat í skál og að
lokum er kjúklingnum bætt við.
Grænmetið er tekið úr ofninum og sett í pott með
hvítlauk, tveimur dósum af tómötum, afganginum af
basilikunni, sultu, chutney, múskati, teskeið af par-
mesanosti, ítölsku kryddi og salti og pipar. Sósan er
látin malla í 30 mín. en því lengur sem hún mallar því
betri verður hún.
Að lokum fara lasagna-plöturnar í bleyti í fimm
mínútur. Þá eru 2-3 msk af fyllingu settar á hverja
plötu. Ég var með sex plötur og fékk úr því sex can-
nelloni-rúllur. Plötunum er rúllað varlega upp og
settar í eldfast mót, sósunni síðan hellt yfir allt og
mozarellaostur rifinn yfir. Sett inn í ofn við 180° í 25
mínútur.
H
in nýbakaða móðir Ósk Gunn-
arsdóttir hefur mikinn áhuga á
matargerð og fær oft hugmyndir
úr matreiðsluþáttum. Hún starfar
sem útvarpskona og sinnir einnig verkefnum
í viðburðastjórnun en hún er ásamt bróður
sínum með útvarpsþáttinn Kristján & Ósk á
FM957.
Hún segist dugleg að elda mat en sé ekki
nógu góð í því að baka, hún ætli þó að reyna
að bæta sig á því sviði á nýju ári. „Ég hef
mikinn áhuga á matargerð og þakka for-
eldrum mínum fyrir það,“ segir Ósk. „Pabbi
er lærður kokkur og mamma er sjálf algjör
meistarakokkur. Þau voru alltaf að bardúsa í
eldhúsinu og leyfðu okkur systkinunum að
vera með hvort sem það var verið að gera
slátur eða baka smákökur,“ segir Ósk sem
hefur einnig mikið dálæti á matreiðsluþáttum.
Allir eiga einhverjar skemmtilegar ham-
farasögur úr eldhúsinu, óreyndir sem þaul-
reyndir. „Einn morguninn vaknaði ég
snemma og var að fara að búa mér til ber-
jabúst í blandaranum. Ég setti skyr og ber í
blandarann og hef greinilega ennþá verið
sofandi því ég skildi skeið eftir á kafi í
gumsinu. Ég kveikti á blandaranum og sat
uppi með eldhús sem leit út fyrir að vera úr
hryllingsmynd og ónýtan blandara,“ segir
hún og hlær.
Maturinn sem aldrei klikkar hjá Ósk er
ofnbakaður lax, ýmist með chili og mangó,
lime og kóríander eða sesamfræjum og ter-
iyaki-sósu. „Þá er toblerone-ísinn sem ég bý
til á jólunum alveg guðdómlegur, enda fæ
ég hann aðeins einu sinni á ári.“ Réttinn
sem hún framreiðir hér sá hún í mat-
reiðsluþætti og ákvað að prófa sig áfram
með hann. „Ég breytti réttinum aðeins og
gerði hann svolítið að mínum með einhvers
konar tilraunastarfsemi,“ segir Ósk að lok-
um.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
PABBINN KOKKUR OG MAMMAN MEISTARAKOKKUR
Fær innblástur úr matreiðsluþáttum
ÓSK GUNNARSDÓTTIR ÞAKKAR FORELDRUM SÍNUM ÁHUGA SINN Á ELDAMENNSKU. HÚN FÉKK AÐ VERA MEÐ Í ELDHÚSINU UNG AÐ
ALDRI OG HEFUR SÍÐAN ÞÁ VERIÐ DUGLEG AÐ ELDA EN ÆTLAR SÉR AÐ VERÐA BETRI Í BAKSTRINUM Á NÝJU ÁRI.
Gunnþórunn Jónsdóttir gunnthorunn@mbl.is
Ósk Gunnarsdóttir sá rétt-
inn að ofan í matreiðslu-
þætti en breytti honum
eftir ýmsar tilraunir og
lagaði að eigin smekk.
Kjúklinga-, spínat- og
ostafyllt cannelloni