Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.01.2014, Side 43
Viðskiptavinir auglýsingastofunnar eru í
mestum tengslum við markaðsráðgjafann,
þess vegna eru þeir oft líka kallaðir tenglar.
Ráðgjafahlutverkið snýr að langtímahugsun
og stefnumótun en sem tengill sér hann um
að verkefni séu unninn frá degi til dags.
Oft getur markaðsráðgjafanum fundist hann
bæði vera að vinna vísindastörf í háskóla og
stýra ærslafullum unglingum í sumarbúðum.
Í þeirri fjölbreytni felst skemmtunin við að
vinna á auglýsingastofu.
Tilfinning fyrir púlsi markaðarins og reynsla
af því að vinna með eða á auglýsingastofum
skipta höfuðmáli.
Verkefni af ýmsum stærðargráðum lenda
á borði grafísks hönnuðar. Allt frá því að
sjóða ímynd fyrirtækis niður í sígilt lógó yfir
í stórar auglýsingaherferðir með allri þeirri
handavinnu sem þeim fylgja.
Hönnuður starfar undir umtalsverðu áreiti
í krefjandi umhverfi. Nauðsynlegt er að hafa
bæði keppnisskap og brennandi áhuga.
Grafískur hönnuður þarf að fylgjast með
nýjustu straumum í hönnun og ekki síður
með alþjóða auglýsingabransanum.
Vefforritarinn þarf að geta sveiflað sér eins
og Tarzan á milli ólíkra forritunarmála. Nýir
miðlar eru fundnir upp og vefforritari þarf að
tileinka sér þá strax. Engin auglýsingastofa
má við því að verða á eftir tæknilega.
Vefforritarinn sem við erum að leita að þarf
að hafa HTML5, CSS3, JavaScript og jQuery
algjörlega í fingrunum og geta skrúfað
fumlaust saman verk með PHP og MySQL.
Sköpunargáfa og hæfileikinn til að nota
sérþekkingu til að móta og þróa verkefni
eru kostir sem ráða úrslitum.
Markaðsráðgjafi
með gráðu og reynslu
Vefforritari, -hönnuður,
-gúrú, -nörd, -seiðkarl
Grafískur hönnuður
með háskólapróf
… SVO VERIÐ EKKI HRÆDD VIÐ AÐ SÆKJA UM
Viltu vinna með okkur? Sendu umsókn, CV, möppu og annað á starf@hvitahusid.is